Hrossarækt
Hrossarækt Grafarkotsbúsins byggist í upphafi aðallega á tveimur hryssum Hjálp frá Stykkishólmi sem fékk 1.verðlaun fyrir afkvæmi á L.M 1994 og Röst frá Mosfellsbæ. Þessar hryssur reyndust afar farsælar og afkomendur þeirra mynda nú sterkan ræktunarkjarna hér í Grafarkoti. Þriðja hryssan er Harpa frá Hnjúki, hún er 1. verðlauna hryssa, undan henni er t.d hryssan Ásjóna sem fékk 1. verðlaun 2002.
Undan Hjálp er 1. verðlauna hryssan Ótta 1987255411 undan Otri frá Sauðárkróki, með 8,41 fyrir hæfileika þar af 9,0 fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag. Ótta er ein aðalræktunarhryssa Grafarkotsbúsins í dag. Undan henni er t.d. 1. verðlauna hryssan Æra frá Grafarkoti, stóðhesturinn Órator frá Grafarkoti og 1v. stóðhesturinn Grettir frá Grafarkoti. Kímni undan Kjarvali frá Sauðárkróki er einnig dóttir Hjálpar, hún hefur reynst afar farsæl kynbótahryssa. Tryppin undan henni hafa komið fljótt, t.d hafa þrjú hross fengið 1. verðlaun fyrir hæfileika aðeins fjögurra og fimm vetra gömul. 1. verðlauna hryssan Ballerína er dóttir Kímni og Baldurs frá Bakka.Þess má einnig geta að 1.verðlauna stóðhesturinn Tvinni er komin frá Kímni í föðurætt. Einnig ætlar Tign dóttir Hjálpar og Stíganda frá Sauðárkróki að reynast góð undaneldishryssa.
Röst hefur gefið misfalleg hross en afar hæfileikarík. Undan henni er t.d. hryssan Klassík undan Otri frá Sauðárkróki. Hún er með 8,5 fyrir tölt og brokk og 9,0 fyrir skeið.Klassík hefur reynst farsæl undaneldishryssa undan henni hafa komið góð alhliðahross,t.d. Vif Galsadóttir 8,22 í aðaleink. Vin Roðadóttir 7,96 og nú síðast í sumar 2009 fór unghryssan Kara 4v. í 1. verðlaun með byggingareinkun upp á 8,33 Nátthrafn sonur Rastar og Viðars frá Viðvík er með 8,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir skeið. 1. v. stóðhesturinn Útlagi er undan henni og Stíganda frá Sauðákróki en hann var seldur til Þýskalands. Að lokum er það stóðhesturinn Rauðskinni sem fékk 1.v. vorið 2003 5 vetra gamall, hann fékk 8,5 fyrir tölt, fegurð í reið og geðslag.
Ræktunarhryssurnar eru núna 16 og flestar af Sauðárkrókslínunni, hér áður fyrr notuðum við hrafnslínuna á móti hryssunum, en síðustu ár hefur verið farin ný leið í vali á stóðhestum, t.d nú í sumar 2009 voru notaðir stóðhestarnir,Grettir frá Grafarkoti, Þristur frá Feti, Ómur frá Kvistum, Kappi frá Kommu, Feldur frá Hæli, Grásteinn frá Brekku, Arður frá Brautarholti, Dofri frá Steinnesi. og ungfolinn Haukur frá Lönguhlíð undan Álfi frá Selfossi og Sædísi frá Stóra-Sandfelli 2
Við leggjum aðaláherslu á að rækta hross með afburðargott geðslag góðar aðskildar gangtegundir og að hrossin sómi sér vel í reið séu hágeng og mjúk.. Ræktunin er því ekki ein lína heldur valin stóðhestur handa hverri hryssu.
Ballerína frá Grafarkoti u. Baldri frá Bakka og Kímni frá Grafarkoti. 1. verðlauna hryssa nú í eigu Grétu B. karlsdóttur og Gunnars Þorgeirssonar á Efri-Fitjum.
Önn frá Grafarkoti,fékk 1. verðlaun vorið 2003 þá 5 vetra gömul. Hún er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Óreglu frá Grafarkoti. Önn er nú í eigu Jóhanns Magnússonar Bessastöðum.
Ræktunarbúið á LM 2000 í Reykjavík.
Hjálp frá Stykkishólmi hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu 1994.
Landsmót 1994 - Ótta, Kilja og Tign dætur Hjálpar frá Stykkishólmi.