Hafa samband | Prenta síđuna 
 

2009

Hestaferðin

 Fórum í skemmtilega 6 daga hestaferð í síðustu viku í góðum félagsskap, fórum saman frá þremur heimilum, frá Grafarkoti voru það Hedda Kolla og Raggi sem riðu að mestu leyti Eydís var með fyrstu tvo dagana og Indriði var trússinn síðustu tvo, frá Höfðabakka voru það Sigrún og Sverrir sem voru allan tímann og Þórhallur hluta úr ferðinni og svo voru Alla og Jón Ingi alla ferðina og Fríða reið aðeins með líka, vorum með 44 hross. Lögðum af stað þriðjudaginn 21 júlí frá Grafarkoti og var planið að ríða fyrst í Hvol þaðan í Þingeyrar svo fram Vatnsdal og upp á heiði en sökum slæmrar veðurspár ákváðum við að snúa við á Þingeyrum og vera frekar í byggð á meðan miðsumarshretið gengi yfir, svo á degi þrjú riðum við frá þingeyrum í Nýpukot og fengum höfðinglegar móttökur þar. Svo daginn eftir var riðið upp með Víðidalsá og í Hrísa, þess má geta að í Galtanesi bauð Sverrir upp á dýrindis gamaldags rjómatertu sem er rjómaterta með kokteilávöxtum, (sjá myndir) 'A fimmta degi 25 júli var riðið frá Hrísum og fram með Fitjaánni og niður að Barkarstöðum í Miðfirði,þessi dagur byrjaði í logni og sól á Hrísum en rétt áður en við lögðum af stað heyrðust þrumuhlóð og svo svona 15 mín seinna kom þetta svakalega haglél sem stóð svona í 10 mín en fengum svo aftur logn og sól, mjög sérstakt. Síðasta daginn var svo riðið út með Miðfjarðará og heim.Þess má geta að haglélið í Fitjárdalum var eina bleytan sem við lentum í þessa viku sem verður að teljast vel sloppið, miðað við veðrið allt í kringum okkur, engin datt af baki og enginn hestur heltist sem sagt frábærir dagar :) 

Myndir úr ferðinni má sjá hér

Skrifað 27.07.2009

_________________________________________

Fjórðungsmót.

   

Þá er skemmtilegu fjórðungsmóti lokið, Fengum gott veður nánast allan tímann, og ekki skemmdi nú fyrir að vera í skemmtilegum hópi Þytsfélaga í heila 5 daga :)  Grafarkotsbúið má vel við una vorum með tvö hross í kynbótadómi þau Gretti 7v og Köru 4v, þau stóðu sig bæði með prýði Grettir stóð nánast í stað lækkaði um 0,5 fyrir fet en hækkaði fyrir hægt stökk upp í 8,5. Og Kara hækkaði skeiðeinkunn sína í 7.0 og fór þar með í aðaleink í 8,01. Svo urðu Fanney og Eldur í 14 sæti í A-flokki gæðinga,  flott hjá þeim.

Nú 10 júlí eiga aðeins tvær hryssur eftir að kasta þær Aría og Vakning,  fædd eru 14 folöld í okkar eigu og er kynjahlutfallið 12 hryssur og 2 hestar sem við erum ansi ánægð með :))) Það verður spennandi þegar að þessi hópur kemst á tamningaaldurinn.

 

Folöld.

Merarnar hafa verið duglegar að kasta síðustu daga, Komnar myndir inn á Uppeldi /unga kynslóðin, endilega kíkið á það :)

Félagsmótið og fl.

   

Mjög annasöm helgi að baki, félagsmót Þyt var haldið á laugardag og sunnudag, Hedda keppti á Gretti í B-flokk og tölti og Skinnu í A flokki. Það gekk bara vel Grettir vann töltið með eink 7,11 í úrslitum 6,60 í forkeppni og í B-flokki endaði hann þriðji með eink 8,50 í úrslitum en 8,29 í forkeppni en það var hálf misheppnuð sýning. Skinna endaði í 2-3 sæti í A-flokki með eink 8,34 fékk í forkeppni 8,21.

Svo hafa fæðst 3 folöld síðustu 3 daga. Fyrst kastaði Kæti á sunnudag rauðskjóttum hesti undan Álfi. Í gær kom jarpskjótt hryssa hjá Grásíðu líka undan Álfi og svo í morgun kom brúnstj hryssa undan Urt og Hófi frá Varmalæk. Nú verður smá pása í sýnigarhaldi fram að fjórðungsmóti Grettir fær að vera í friði með merarnar sínar og öll önnur hross að verða  komin á græn grös alltaf góð tilfinning þegar húsin verða tóm.

Skrifað 16 júní 2009

_________________________________________

Folaldafréttir.

Fædd eru fimm folöld í viðbót, tvær brúnar hryssur undan Gretti og þeim Græsku og Glósu, svo kom bleikálóttur hestur undan Æru og Hnokka frá Fellskoti,næst kastaði Trú rauðstj hryssu undan Akk frá Brautarholti, og svo kom rauðblesóttur hestur undan Gretti og Urtu, það folald á Ragnar Smári.

Myndir koma  fljótlega en snúran af myndavélinni er týnd, en vonandi kemur hún í leitirnar sem fyrst.

.

Kynbótasýningar

Þá eru kynbótasýningarnar á fullu, þegar er búið að sýna 6 hross frá Grafarkoti og þar af 4 í 1. verðlaun, sem er bara góð byrjun.

Grettir í 8,23, Kanslari 8,15 Kænska 8,05 og Skinna í 8,02 og svo er að sjá hverning yngri hrossunum gengur.

En kynbótasýningar eru bæði á Blönduósi og Gaddstaðaflötum þessa vikuna og þar eru skráð nokkur hross frá okkur.

Grettir frá Grafarkoti.

  

Grettir verður til afnota hér í Grafarkoti í sumar. Gjald undir hestinn er 60.000 m/vsk og hagagjaldi.

Grettir var sýndur á Sauðárkróki í síðustu viku og hlaut eftirfarandi dóm

Héraðssýning kynbótahrossa á Sauðárkróki

Dagsetning móts: 26.05.2009 - Mótsnúmer: 07
Íslenskur dómur

IS-2002.1.55-416 Grettir frá Grafarkoti

Sýnandi: Herdís Einarsdóttir

Mál (cm):

140   133   137   65   139   35   41   40  
6,5   29,0   18,0  

Hófa mál:

V.fr. 8,0   V.a. 8,2  

Aðaleinkunn: 8,23

 

 

Sköpulag: 8,18

Kostir: 8,26


Höfuð: 8,0
   Fínleg eyru  

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Langur   Mjúkur   Háar herðar  

Bak og lend: 8,5

Samræmi: 8,0
   Hlutfallarétt  

Fótagerð: 8,0

Réttleiki: 8,0
   Afturfætur: Réttir  

Hófar: 8,0
   Djúpir   Þröngir  

Prúðleiki: 8,5


Tölt: 9,0
   Rúmt   Taktgott   Há fótlyfta  

Brokk: 8,5

Skeið: 5,0

Stökk: 8,5
   Ferðmikið   Svifmikið   Hátt  

Vilji og geðslag: 9,0
   Ásækni   Þjálni   Vakandi  

Fegurð í reið: 9,0
   Góður höfuðb.   Mikill fótaburður  

Fet: 7,5

Hægt tölt: 9,0

Hægt stökk: 8,0

Skrifað 03.06.2009

______________________________________

Hedda fimmtug

Jæja haldið var afmælispartý fyrir Heddu í Óttuhöllinni í gærkvöldi. Teknar voru mjög margar myndir og er hægt að sjá þær hér fyrir neðan í linknum. Þetta var heljarinnar partý og mætti fjöldi fólks. Gestabókin gleymdist því miður en talið er að um 80 manns hafi mætt.

MYNDIR

Skrifað 31.05.2009

________________________________________________

Myndataka

Í dag var loksins drifið í því að taka nokkrar myndir af Gretti kallinum bæði á tölti og brokki. Hann hefur verið feikna góður undan farið og staðið til lengi að festa hann á filmu, hér sést hluti af myndunum. Þess má geta að hann er alls óþyngdur og á 8mm skeifum.

     

                                                                                                                                                                                                      

smella á myndirnar til að gera þær stærri           

skrifað 17. maí 2009.

_________________________________________

 

Fyrsta folaldið fætt

ÁsjónudóttirLitla liggurSjón og Fanney feb 2009

Það var Ásjóna frá Grafarkoti sem reið á vaðið og átti fyrsta folaldið laugardagsmorguninn 16. maí. Ásjóna er  í eigu Fanneyjar og er 1v. hryssa undan Hervari frá Sauðárkróki og Hörpu frá Hnjúki. Hún átti jarpskjótta hryssu undan Gretti frá Grafarkoti.Folaldið er á litinn eins og  Harpa mamma Ásjónu en hún var líka 1v. hryssa undan Vattari frá Blönduósi og Bleikskjónu frá Hnjúki. Ásjóna hefur aðeins eignast 3 folöld, það hefur gengið illa hjá henni að festa fang. En sem betur fer eru öll afkvæmin hryssur. Sú elsta er komin á tamningaaldur og byrjar mjög vel, til gamans má geta að hún er næstum því alsystir þessa folalds því hún er undan Órator bróðir Grettis. Þriðja myndin er af Sjón síðan í vetur.

______________________________________________________________

Kasper frá Grafarkoti

Kasper Kasper er einn ungu stóðhestanna hér í Grafarkoti. Hann er alls óskyldur Orralínunni sem er að hluta til spennandi en Kasper er undan Kletti frá Hvammi og Kæti frá Grafarkoti, Kæti er svo aftur undan Gný frá Hrepphólum og Kímni frá Grafarkoti,  bráðflinkur foli á 5.vetur,  mjúkur viljugur alhliðahestur, sem hefur verið að þroskast í rétta átt í allan vetur

Fleira

  smella á myndirnar til að stækka þær

Listamaðurinn Guðrún Hálfdánardóttir  (Gunna á Söndum) hefur verið að gera fyrir okkur útskorin skilti í vetur til að setja á hesthúsið og á nýju reiðhöllina sem er skírð í höfuðið á uppáhaldsmerinni okkar henni Óttu og svo fyrir nokkrum dögum birtist hún með gripina sem eru æðislega flottir.

Vorið.

Vorið er komið það er ekki spurning sauðburður á fullu hefur gengið ágætlega, c.a 2/3 borin og heldur fleiri þrílembur en einlembur sem bóndanum líkar vel ;) Farið að spá í hvaða hross verða nú sýnd í kynbótadómi, pínulítið breytilegt hversu mörg þau verða  eftir dögum. Komin nýr hundur húm Pæja sem er border collý rúmlega 2 mán voða stillt og góð.

  pæja

Sveinn-Hervar

Sveinn-Hervar frá Þúfu verður til afnota á Þingeyrum A-Hún í sumar bæði fyrra og seinna gangmál. Hann hefur nú þegar sannað sig sem góður kynbótahestur og  keppnishestafaðir, nánari upplýsingar um hestinn er hægt að nálgast hjá Gunnari Ríkharðssyni í símum 8954365 / 4524365

Nokkur afkvæmi Sveins-Hervars

 

dugurlm08dAfkvæmi Sveins-Hervars eru áberandi í sýningum og keppnum þessa dagana. Það er því gaman að nefna nokkur þeirra og birta af þeim myndir.  Þetta eru glæsihross og vekur framganga þeirra athygli.  Það er áberandi í afkvæmum Sveins-Hervars hversu góða einkunn þau fá fyrir vilja og geð, tölt, brokk, stökk og fegurð í reið. Látum myndirnar tala sínu máli.

 

Mynd: Dugur frá Þúfu F: Sveinn-Hervar frá Þúfu M.  Dröfn frá Þúfu. Knapi Sigurður Sigurðsson/Tóta

 

flogri

 

 Flögri frá Hábæ 

 F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

 M: Kolbrún frá Bjólu 2

 

 Mynd: Flögri og Olil /www.helledige.dk

 

kjarni081

Kjarni frá Auðsholtshjáleigu

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Framtíð frá Auðsholtshjáleigu

 

Mynd: Kjarni og Þórður / Tóta 

 

torTór frá Auðsholtshjáleigu

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Tign frá Enni

 

Mynd: Lena og Tór/Axel

 

 

svinavatn094Pipar-Sveinn frá Reykjavík

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Perla frá Ölvaldsstöðum

 

Mynd: Bylgja og Pipar-Sveinn/krissa

 

limrakirkjub01Limra frá Kirkjubæ 2

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Kvika frá Hvítárbakka 1

 

Mynd: Limra og Lena/Guðmundur Gíslason 

 

ork081Örk frá Auðsholtshjáleigu

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Ör frá Auðsholtshjáleigu

 

Mynd: Örk og Gunnar Arnarson/Krissa

 

holar083

 Gjörfi frá Auðsholtshjáleigu

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Gletta frá Árgerði

 

Mynd: Gjörfi og Þórdís Erla /Krissa 

 

 

 

hafnarfj081Garún frá Auðsholtshjáleigu

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Gletta frá Árgerði

 

Mynd: Garún og Bylgja / Tóta

 

bylgjableik1Þöll frá Garðabæ

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Kolgríma frá Ketilsstöðum

 

Mynd: Bylgja og Þöll / Tóta

 

 

 

lindahamarsey

Linda frá Feti

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Filipía frá Feti

 

Mynd: Linda og Erlingur /www.Hamarsey.is

 

oskthingnesiÓsk frá Þingnesi

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Ógát frá Þingnesi

 

Mynd: Ósk og Eyjólfur/www.hestafrettir.is 

konuris09

Grýta frá Garðabæ

F: Sveinn-Hervar frá Þúfu

M: Fluga frá Garðabæ

 

Mynd: Grýta og Gréta Boða/Krissa 

STELA STELA STELA

 

 
Logi annað fórnarlambið í þessu máli kom með snilldartexta við ABBA lagið money money money og söng á söngvarakeppninni og sigraði ásamt lögreglukórnum.
Með þessu er talið að málinu sé formlega lokið en það er aldrei að vita hvort bangsinn Kútur eða varðhundurinn Assa bruggi glæponunum launráð.

Hér má sjá textann:


Á góðum stað í Víðidal.
er Hrísakot, já svaka slot.
Svaka slot.
Þar búa oggolítil hjón,
en ekki litla Gunna og Jón.
Gunna og Jón.

Aðkasti þau urðu var,
af glæpamönnum frá þessum stað.
Engan tóku peninginn,
með látum samt þau brutust inn.

Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.

Er ábúendur komu heim,
þá heyrðist í þeim mikið kvein.
Mikið kvein.
Þar ótti og hræðsla tóku völd,
og nóttin var svo dimm og köld.
Dimm og köld.

Og lögreglan á svaka ferð,
brimklædd vopnum með skjöld og sverð.
Að minnsta kosti fjórir fimm,
því þjófum þarf að stinga inn.

Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.

Mafían í Reykjavík,
hún getur verið engu lík.
Engu lík.
Því bréfum fór að senda þeim,
sem Þorgeir póstur fór með heim.
Fór með heim.

Hótað var hreinu ofbeldi,
spark í magann eða rassskelli.
Svo stóð með litlu áletri,
Frá Guðrúnu og Halldóri.

Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.

Skrifað 18.04.2009

__________________________________

Flott mynd

Grettir í mars Þessa fínu mynd af  Gretti og Heddu sendi Maria Svenson  í Svíþjóð okkur.

______________________________________

Krummi.

Grafarkots Krummi Krummi Krummi

Hér á bæ hefur verið sami hrafninn í mörg ár, við erum alveg viss því að hann er með hvítan kraga og líka hvíta fjöður í vængnum. Þetta er mjög sérstakur fugl að því leyti að það er ekki hægt að nálgast hann er maður mundar myndavél eða eitthvað álíka.(Við höldum helst að hann viti hvað byssa er).  Allavega þá er hann mjög var um sig, en annars getur hann setið salla rólegur og spjallað.  loksins tókst þó að ná mynd af honum, reyndar út um eldhúsgluggann ;)

Skrifað 05.04.2009

_______________________________________

Fjórgangsmótið.

Fjórgangur Kjartan og Eiríkur flottir :)

Mikið fjör var í gær á fjórgangsmótinu, mikill fjöldi kom til að horfa á og var húsið alveg stútfullt (örugglega um 200 manns) og létu áhorfendur vel í sér heyra;). 

Grafarkotsfólkinu gekk alveg ljómandi vel, Kolla og Eydís kepptu fyrir 2 Good og enduðu báðar í A úrslitum í flokki 2 á þeim Uglu og Skinnu. Eydís fór eftir krókaleiðum í A úrslitin með því að vinna fyrst B úrslitin. Í A úrslitum voru nánast allir með sömu tölur svo draga varð milli keppenda og 2 Good var ekki heppið þar. Hedda keppti á Gretti í 1. flokki og voru þau efst  fyrir úrslit með eink 6.60, Grettir varð svo dálítið spenntur yfir þessu öllu í úrslitunum, og þar með klikkaði fetið,  og fór svo að þau  enduðu í 3ja sæti í úrslitum. Fanney keppti fyrir lið 3 á Eldi  og fór líka í A úrslit með eink 6.2 og endaði svo í 6. sæti. Þetta var síðasta mótið í mótaröð vetrarins og frábært hvað það hefur verið mikil þátttaka á öllum mótunum, og margt skemmtilegt skeð í kringum keppnina.Okkar lið 2 Good stóð sig skemmtilega vel keyrði nánast í allan vetur á sömu keppendunum frá þremur bæjum Grafarkoti Gauksmýri og Syðri -Völlum. Lítið  fór fyrir keppnisreyndum hestum hjá liðinu,  flest voru hrossin ung og óreynd á keppnisbrautinni.Stundum varð það að vera þannig að  sömu hestarnir notaðir í hinar ýmsu greinar, svo við hefðum nóg af keppendum en  undir lokin fengum við þó liðsauka úr Vesturhópinu sem var mjog gaman og tvö síðustu keppniskvöldin var boðið upp á kræsingar í boði myndarlegu húsfreyjanna í liði 2 ;) í kaffistofunni hjá Gullu og Hjálmari og Þórdísi og Steina,  sem var frábært og vakti mikla öfund hjá hinum liðunum ;)

 En leikar fóru þannig í mótaröðinni að  lið 3 Víðdælingar og Fitjárdalur sigruðu með 132,5 stig. Næst kom 2 Good, lið 2 Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur með 109,5 stig. Í 3. sæti varð lið 1 Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður með 74,5 stig og í 4. sæti varð lið 4 Austur-Húnvetningar með 51,5 stig.

Til hamingju Lið 3 ; )

Úrslit urðu eftirfarandi, forkeppni/úrslit:

Fjórgangur börn
1. Kristófer Smári Gunnarsson og Kofri frá Efri-Þverá. Eink. 4,0 / 3,6
2. Sigurður Bjarni Aadnegard og Óviss frá Reykjum. Eink. 2,3 / 2,7

Fjórgangur Unglingar
1. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi. Eink.5,7/ 5,80
2. Hanna Rún Ingibergsdóttir og Byrjun frá Torfunesi. Eink. 5,6 / 5,70
3. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum. Eink.5,3 /  5,60
4. Elín Huld Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi. Eink. 5,8 / 4,90
5. Jónína Lilja Pálmadóttir og Heimir frá Sigmundarstöðum. Eink.5,4 / 3,40

Fjórgangur 2. flokkur
A-úrslit

1. Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum. Eink. 5,8 / 6,20
2. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík. Eink. 5,7 / 5,9
3. Alda Björnsdóttir og Skuggi frá Sauðadalsá. Eink. 5,7 / 5,9
4. Eydís Ósk Indriðadóttir og Skinna frá Grafarkoti. Eink. 5,6 / 5,9
(varpað var hlutkesti þar sem þær voru jafnar í 2. - 4. sæti)
5. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Ugla frá Grafarkoti. Eink. 5,7 / 5,7
6. Ingunn Reynisdóttir og Svipur frá Syðri-Völlum. Eink. 5,7 / 5,7
(varpað var hlutkesti þar sem þær voru jafnar í 5. - 6. sæti)
7. Gréta B Karlsdóttir og Birta frá Efri-Fitjum. Eink. 5,8 / 5,6

B-úrslit
7. Eydís Ósk Indriðadóttir og Skinna frá Grafarkoti. Eink. 5,6 / 5,9
8. Steinbjörn Tryggvason og Össur frá Galtanesi. Eink. 5,6 / 5,6
9. Ninni Kulberg og Samba frá Miðhópi. Eink. 5,5 / 5,4

Fjórgangur 1. flokkur
A-úrslit
1. Ísólfur Líndal Þórisson og Ögri frá Hólum. Eink. 6,3 / 6,7
2. Tryggvi Björnsson og Hrannar frá Íbishóli. Eink. 6,1 / 6,5
3. Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti. Eink. 6,6 / 6,1
4. Aðalsteinn Reynisson og Nótt frá Flögu. Eink. 6,5 / 6,1
5. Jakob Víðir Kristjánsson og Börkur frá Brekkukoti. Eink. 6,2 / 5,9
6. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá. Eink. 6,2 / 5,8

B-úrslit
6. Tryggvi Björnsson og Hrannar frá Íbishóli. Eink. 6,1 / 6,5
7. Halldór P Sigurðsson og Sómi frá Böðvarshólum. Eink. 6,0 / 6,0
8. Ragnhildur Haraldsdóttir og Ægir frá Móbergi. Eink. 6,1 / 5,9
9. Helga Una Björnsdóttir og Hljómur frá Höfðabakka. Eink. 6,1 / 5,9

MYNDIR og fleiri myndir

Skrifað 04.04.2009

__________________________________________________________________

 

87 skráðir til leiks á lokamóti LIÐAKEPPNINNAR

Það stefnir í mjög skemmtilegt mót annaðkvöld í Hvammstangahöllinni en það eru 87 skráðir til leiks. Okkar lið er skipað sama genginu og vanalega og stefnum við auðvitað á sigur. Það munar 17 stigum á okkur og liði 3 og er greinilegt að lið 3 hræðist okkur þar sem liðsstjórinn þar á bæ liggur á facebook spjalli liðs 2 en hann gróf upp lykilorðið hjá konunni. Síðan hefur hann reynt að fá til liðs við sig stórstjörnur að sunnan og er kominn með hálfan Skagafjörð og Eyjafjörð með sér í lið til að reyna að halda 1. sætinu. ( En viðbrögðin voru misjöfn :)

Halldór á Súluvöllum og Haddý á Hvalshöfða sömdu skemmtilega um Gunnar og hans brellubrögð:

Frá Halldóri kom eftir að hafa lesið á Þytssíðunni:

Viðbrögð margra voru snögg
virðast flestir spyrja nú.
Fékk hann annað höfuðhögg
höfðinginn í liði þrjú.

Síðan kom frá Haddý:

Hausnum halla þykir
helvíti nú mikið
Ég held sé satt
á hausinn datt
höfðinginn í rykið

Ráslista má svo sjá hér!

KOMA SVO 2 Good

Skrifað 02.04.2009

_________________________________________________

Lið 2 sigurvegarar kvöldsins í Smalanum

Mjög skemmtileg og spennandi Smalakeppni er að baki, alls voru skráðir til leiks 70 keppendur. Lið 2 náði flestum stigum í kvöld eða 36 stigum en fast á hæla þeirra kom lið 3 með 34 stig og þá lið 1 með 32 stig. Lið 4 náði 16 stigum.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Unglingaflokkur:
1. Rakel Rún Garðarsdóttir og Stúdent frá Sólheimum I, liði 1
2. Albert Jóhannsson og Dorit frá Gauksmýri, liði 2
3. Jóhannes Geir Gunnarsson og Auður frá Grafarkoti, liði 3
4. Stefán Logi Grímsson og Kæla frá Bergsstöðum, liði 4
5. Rakel Ósk Ólafsdóttir og Rós frá Grafarkoti, liði 1

2. flokkur
1. James B Faulkner og Karítas frá Lækjamóti, liði 3, 300 stig/tími 37,59 sek
2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Óvissa frá Galtanesi, liði 1, 280 stig/tími 41,67 sek
3. Stefán J Grétarsson og Hóseas, liði 1, 256 stig/tími 41,81 sek
4. Sofia Birgitta Krantz og Snót frá Bjargshóli, liði 2, 250 stig/tími 43,05 sek
5. Halldór Jón Pálsson og Lyfting frá Súluvöllum, liði 2, 246 stig/tími 42,71 sek
6. Þorgeir Jóhannesson og Stínóla frá Áslandi, liði 1, 240 stig/tími 43,77 sek
7. Rúnar Örn Guðmundsson og Dynjandi frá Húnsstöðum, liði 4, 220 stig/tími 44,89 sek
8. Þórarinn Óli Rafnsson og Funi, liði 1, 196 stig/tími 46,95 stig
9. Lena Petterson og Sjöfn frá Höfðabakka, liði 1, 188 stig/tími 44,59 sek
10. Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi, liði 4, 186 stig/tími 53,77 sek

1. flokkur
1. Ragnar Stefánsson og Vafi frá Hlíðskógum, liði 4, 286 stig/tími 39,5 sek
2. Elvar Logi Friðriksson og Hvinur frá Sólheimum, liði 3, 266 stig/tími 40,35 sek
3. Matthildur Hjálmarsdóttir og Gáta frá Bergsstöðum, liði 2, 256 stig/tími 41,90 sek
4. Pálmi Geir Ríkharðsson og Heimir frá Sigmundarstöðum, liði 2 250 stig/tími 42,71 sek
5. Magnús Á Elíasson og Hera frá Stóru-Ásgeirsá, liði 3 246 stig/tími 42,21 sek
6. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá, liði 3 240 stig/tími 44,89 sek
7. Aðalsteinn Reynisson og Olver frá Syðri-Völlum, liði 2, 220 stig/tími 47,44 sek
8. Eðvarð Ingi Friðriksson og Edda frá Þorkelshóli, liði 3, 216 stig/tími 45,67 sek
9. Herdís Einarsdóttir og Stika frá Grafarkoti, liði 2, 182 stig/tími 53,67 sek
10. Halldór P Sigurðsson og Von frá Dalvík, liði 1, 172 stig/tími 55,66 sek.


LIÐAKEPPNIN stendur þá þannig eftir 3. mótið:

1. sæti er Lið 3 með 100,5 stig
2. sæti er Lið 2 með 83,5 stig
3. sæti er Lið 1 með 52,5 stig
4. sæti er Lið 4 með 41,5 stig



Mótanefnd þakkar öllu starfsfólki mótsins kærlega fyrir aðstoðina. Allt gekk upp og var móti slitið 22.30

Skrifað 22.03.2009

____________________________

Áskorendamót riddaranna

Eldur og Fanney

Fanney og Logi fóru og tóku þátt í áskorun Riddaranna í Skagafirði um síðustu helgi með þeim í liði voru Magnús á Ásgeirsá og Tryggvi Björnsson á Blönduósi, liðin voru 6 og enduðu þau i þriðja sæti. Þessi mót eru skemmtileg viðbót í mótaflóruna  þar sem aðeins eru riðin úrslit.  Fanney fór með Eld sinn í fimmgang og gerðu þau sér lítið fyrir og sigruðu hann með eink 6,69

_____________________________________

 Happdrætti Hvammstangahallarinnar


MIÐARNIR eru komnir í hús og kostar miðinn 2.000.- Vinninga má sjá hér. Aðeins verður dregið úr seldum miðum. Hægt að greiða inn á reikning 1105-05-403400 kt. 550180-0499 og senda staðfestingu á kolbruni@simnet.is og fá þá miðann sendann um hælemoticon
Félagsmenn munu sjá um söluna, upplýsingar hjá Kollu í s. 863-7786, Fanney í s. 865-8174, Loga í s. 848-3257 og Tryggva í s. 898-1057.

Skrifað 14.03

_________________________________________________

 

 

 

 Sigur og Hans Kjerúlf tvöfaldir Ís-landsmeistarar. Mynd af vef Hestafrétta.is

Áttum frábæran dag á Svínavatni á Ís-landsmótinu. Um um 230 hross voru skráð til leiks og var hestakosturinn frábær. Mótið tókst mjög vel og veðrið var gott.

Úrslit B-flokkur
     
1. Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki
2. Árni Björn Pálsson Kjarni frá Auðsholtshjáleigu
3. Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka
4. Jakob Svavar Sigurðsson Kaspar frá Kommu
5. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Frægð frá Auðholtshjáleigu
6. Sigurður Sigurðarson Gerpla frá Steinnesi
7. Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund
8. Bylgja Gauksdóttir Þöll frá Garðabæ

Úrslit A-flokkur

1. Vignir Siggeirsson Ómur frá Hemlu
2. Jón Pétur Ólafsson Fróði frá Staðartungu 
3. Sölvi Sigurðarson Seyðir frá Hafsteinsstöðum
4. Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga 
5. Elvar Þormarsson Bylgja frá Strandarhjáleigu
6. Páll B. Bálsson Glettingur frá Steinnes
7. Hinrik Bragason Straumur frá Breiðholti
8. Steingrímur Sigurðsson Sturla frá Hafsteinsstöðum

Úrslit tölt

1. Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki
2. Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka
3-4. Valdimar Bergstað Leiknir frá Vakurstöðum
3-4. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum
5-6. Artemisia Bertus Rósant frá Votmúla I
5-6. Sigurður Sigurðarson Freyðir frá Hafsteinsstöðum 
7. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Pipar Sveinn frá Reykjavík
8-9. Gústaf Ásgeir Hinriksson Knörr frá Syðra Skörðugili
8-9. Bylgja Gauksdóttir Hera frá Auðsholtshjáleigu
10. Teitur Árnason Váli frá Vestmannaeyjum
 

SKrifað 08.03.2009

___________________________________________________

Svellkaldar.

Fanney og Grettir

Fanney ákvað að skella sér á Svellkaldar með Gretti síðasta laugardag þann 28 feb, þar sem að ekki gekk nógu vel að hennar mati hjá þeim skötuhjúum á Bautatöltinu um daginn. (sem kom svo í ljós að það var vegna smá miskilnings þeirra í milli). Svo það var um að gera að prófa aftur.  Í þetta skiptið gekk þetta glimrandi vel hjá þeim og enduðu þau í 9. sæti af rúmlega 30 keppendum í opnum flokki með eink 6.61, en þetta var í þriðja skiptið sem Gretti er rennt í gegnum töltprógrammið og þar af tvisvar á ís.

Stemmning....

Í kringum liðakeppnina hefur skapast skemmtileg stemmning,  og í hópnum eru skemmtilegir einstaklingar sem kveða sín á milli ( misdýrt að vísu) og láta flest flakka, hér koma nokkrar vísur sem hafa gengið á milli liðs 3 og 2

Lið 3 byrjar

Í ykkar liði er mikið grobb
Hjá mér furðu vekur
Enda liðið kennt við SNOBB
En sigurliðið þetta tekur

2 good svaraði

Af því að efni á því hef
Ég ávallt mun mér hreykja
En ekkert samt þér eftir gef
Þú afganga mátt sleikja

3 svarar

sleikja botn er ekki gott
og sumir þekkja betur
Þetta hefur gengið flott
Hvernig hefur þér gengið í vetur

2 good

Snobb punktur is er slóðin mín
Snjallt fyrir þig að kíkja
Þar finnurðu allt um fötin fín
Flotta hesta og eðalvín.
Hættu svo að reyna að sníkja!!!!!!
(t.d skagfirðinga hahaha)

Skagfirðingar skulu bjarga
Skinninu á Tryggva Bjöss
Hann dregur hingað drjúga varga
Dem jú segjum bara og höööössss

Síðan hefur bara ekkert til Tryggva spurst reikna með að hann sé að gúgla snobb.is

Gaman að þessu enda allt í góðu

Skrifað 01.03.2009

_______________________________________

Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur

Þá er mót 2 í liðakeppninni afstaðið, okkar liði gekk svona upp og ofan en stigin komu þó aðeins inn og er staðan þannig NÚNA að okkar lið er í 2. sæti með 47,5 stig en liði 3 gekk allt í haginn og eru þau í 1. sæti eins og ER. ; ) En þetta var mjög skemmtileg kvöldstund þar sem stuðningsliðin fóru á kostum og allir höfðu gaman af keppninni.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Fimmgangur

A. úrslit 1. flokkur

1. Tryggvi Björnsson og Hörður frá Reykjavík

2. Jóhanna Friðriksdóttir og Húni frá Stóru-Ásgeirsá

3. Elvar Logi Friðriksson og Samba frá Miðhópi

4. Ólafur Magnússon og Stjörnudís frá Sveinsstöðum

5. Jakob Víðir Kristjánsson og Röðull frá Reykjum

 

B-úrslit  1. flokkur

5. Jóhanna Friðriksdóttir og Húni frá Stóru-Ásgeirsá

6. Jóhann Magnússon og Lávarður frá Þóreyjarnúpi

7. Einar Reynisson og Gautur frá Sigmundarstöðum

8. Magnús Á Elíasson og Dís frá Stóru-Ásgeirsá

9. Herdís Einarsdóttir og Skinna frá Grafarkoti

 

A-úrslit 2. Flokkur

1. James Bóas Faulkner og Rán frá Lækjamóti

2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Óvissa frá Galtanesi

3. Gréta B Karlsdóttir og Gella frá Grafarkoti

4. Þorgeir Jóhannesson og Stínóla frá Áslandi

5. Sveinn Brynjar Friðriksson og Glaumur frá Varmalæk

 

B-úrslit 2. Flokkur

5. Þorgeir Jóhannesson og Stínóla frá Áslandi

6. Valur Valsson og Birta frá Krossi

7. Helgi Jónsson og Táta frá Glæsibæ

8. Leifur George Gunnarsson og Kofri frá Efri-Þverá

9. Elías Guðmundsson og Þruma frá Stóru-Ásgeirsá

 

Tölt - Unglingaflokkur

 1. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II

2. Albert Jóhannsson og Carmen frá Hrísum

3. Jóhannes Geir Gunnarsson og Þróttur frá Húsavík

4. Jónína Lilja Pálmadóttir ogSvipur frá Syðri-Völlum

5. Agnar Logi Eiríksson og Njörður frá Moldhaga

 

Tölt - Barnaflokkur

1. Kristófer Smári Gunnarsson og Djákni frá Höfðabakka

2.

3.

4.

5.

Fleiri myndir af mótinu má sjá hér.

Skrifað 28.02.2009

______________________________________

Vetrarmyndir.

Grettir og Fanney   Fanney og Grettir að leika sér í vetrarríkinu.

---------------------------------------------------------------

Kíktum í heimsókn á Hrísa.

Í gær fórum við að Hrísum til að kíkja aðeins á hrossin þar. Fanney var ein heima því Logi hafði skundað norður í Skagafjörð á þorrabót.

Fanney sýndi okkur 2 hryssur önnur er Flauta frá Bæ 1, hún er á 6. vetur undan Dyn frá Hvammi og Fiðlu frá Kirkjubæ og í okkar eigu efnileg klárhryssa, og svo fengum við að sjá hana Sjón frá Grafarkoti sem er undan Ásjónu frá Grafarkoti og Órator frá Grafarkoti sérstaklega álitlegt 4 vetra tryppi, sem er mjög ánægjulegt að sjá hvað hefur ræst úr. Því hún var svo lítil þegar að hún fæddist að hún gat m.a  labbað undir kviðinn á mömmu sinni.

Fanney og Flauta Flauta og Fanney

4 vetra ÓratorsdóttirSjón og Fanney

Flauta DyndsdóttirFlauta svifmikil á brokki

Skrifað 15. feb 2009

____________________________________________________________

 VIÐ ERUM LANGBEST

Þá er fyrsta mót liðakeppninnar afstaðið. Alls voru skráðir til leiks rúmlega 80 keppendur og hélt mótanefnd að mótið yrði langt fram yfir miðnætti en þetta gekk alveg ótrúlega vel og kláraðist mótið um hálf ellefu.

Úrslit urðu eftirfarandi: forkeppni/úrslit
Börn:

1. Lilja Karen Kjartansdóttir, eink. 4,5
2. Anna Herdís Sigurbjartsdóttir, eink. 3,0
3. Hákon Grímsson, eink. 2,0

Unglingar:


1. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II, eink. 6,0 / 7,0
2. Harpa Birgisdóttir og Kládíus frá Kollaleiru, eink. 4,5 / 6,2
3. Jónína Lilja Pálmadóttir og Oliver frá Syðri-Völlum, eink. 5,5 / 6,0
4. Karen Ósk Guðmundsdóttir og Kjarkur, eink. 4,5 / 6,0
5. Fríða Marý Halldórsdóttir og Gósi frá Miðhópi, eink. 4,66 / 5,8
6. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum, eink. 4,5 / 5,8

Varpað var hlutkesti um sætin sem voru jöfn.

2. flokkur


A-úrslit:
1. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Skinna frá Grafarkoti, lið 2, eink. 5,83 / 6,67
2. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík, lið 3, eink. 5,67 / 6,5
3. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjun, lið 1, eink. 5,67 / 6,3
4. Ninni Kulberg og Hörður frá Reykjavík, eink. lið 3, 6,17 / 6,3
5. Hörður Ríkharðsson og Knár frá Steinnesi, lið 4, eink. 6,0 / 6,2

B-úrslit: (það fóru 2 keppendur upp í a-úrslit)
4. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík, lið 3, eink. 5,67 / 6,67
5. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum, lið 1, eink. 5,67 / 6,33
6. Gunnar Þorgeirsson og Eldur frá Sauðadalsá, lið 3, eink. 5,67 / 6,2
7. Þórólfur Óli Andergaard og Þokki frá Blönduósi, lið 4, eink. 5,5 / 6,2
8. Halldór Sigfússon og Seiður frá Breið, lið 1, eink. 5,67 / 5,8
9. Steinbjörn Tryggvason og Kostur frá Breið, lið 1, eink. 5,33 / 5,3

1. flokkur
 

A-úrslit
Tryggvi Björnsson og Bragi frá Kópavogi, lið 3, eink. 7,5 / 8,33
Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum, lið 2, eink. 7,83 / 8,16
Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti, lið 2, eink. 7,33 / 7,83
Jóhann Albertsson og Mynt frá Gauksmýri, lið 2, eink. 7 / 7,33
Aðalsteinn Reynisson og Kveikur frá Sigmundarstöðum, lið 2, eink. 7 / 7,2
Jakob Víðir Kristjánsson og Ægir frá Móbergi, lið 4, eink. 6,5 / 7,2

B-úrslit 
6. Jakob Víðir Kristjánsson og Ægir frá Móbergi, lið 4 eink. 6,5 / 7,2
7. Jóhann Magnússon og Lávarður frá Þóreyjarnúpi, lið 1, eink. 6,5 / 6,8
8. Elvar Logi Friðriksson og Stimpill frá N-Vindheimum, lið 3, eink. 6,5 / 6,5
9. Magnús Ásgeir Elíasson og Bliki frá Stóru Ásgeirsá, lið 3, eink. 6,5 / 6,2

LIÐAKEPPNIN STENDUR ÞANNIG:

1. sæti LIÐ 2 með 34,5 stig sem erum við, Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur
2. sæti LIÐ 3 með 23,5 stig sem er Víðidalur og Fitjárdalur
3. - 4. sæti LIÐ 1 með 6,5 stig sem er Hvammstangi, Hrútafjörður og Miðfjörður
3. - 4. sæti LIР4 með 6,5 stig sem er A-Húnvetningar

Verið að varpa hlutkesti í a-úrslitunum í tölti.

 

Skrifað 14.02.2009

 

 ------------------------------------------------------------------------------

Húnvetnska liðakeppnin

 

 Grettir og Hedda                                                Bragi og Tryggvi

 

Bragi frá Kópavogi, Ægir frá Móbergi, Grettir frá Grafarkoti, Sikill frá Sigmundastöðum og fl og fl eru skráðir til leiks á fyrsta mótið í liðakeppninni. En alls eru skráðir 82 keppendur og koma þeir víðar að en bara úr Húnavatnssýslunum.

Mótið hefst klukkan 18.00 og er dagskráin eftirfarandi:

Barnaflokkur, Unglingaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur

Úrslit: B-úrslit í 2. flokki, B-úrslit í 1. flokki, Unglingafl, A-úrslit í 2. flokki og A-úrslit í 1. flokki.

Ráslista má sjá á heimasíðu Þyts www.123.is/thytur

Skrifað 11.02.2009

_________________________________________

 

 

Stóra Hrísamálið

Það hefur varla farið framhjá neinum í Húnaþingi vestra. Stóra Hrísamálið telst nú upplýst og er komin sér vefslóð sem fjallar um málið. Þar eru yfirlýsingar sakborninga og niðurstaða aganefndar Húnvetnsku liðakeppninnar.

Þetta er bara snilldin ein en lesa má allt um málið á heimasíðu Stóra Hrísamálsins www.storahrisamalid.bloggar.is

Skrifað 04.02.2009

______________________________________

 Vetrarmorgunn í Grafarkoti

______________________________________

Vetrarstarfið.

 Reksturinn að koma heim.

Eitt af því sem við gerum stundum um helgar yfir vetrartímann er að reka hrossin, alltaf eru þetta ákaflega fjörugar ferðir. Hrossin hlaupa svakalega í byrjun og hafa rosalega gaman af þessu. Í dag var einn svona rekstur í 8 stiga frosti og heiðskíru veðri æðislegt :)

skrifað 1.feb 2009

________________________________________

 

Viðtal við Tryggva Björns

 

  Myndin er af Hrímu frá Hofi en hún er geld og komin á járn og er spræk þótt hún sé búin að vera í folaldseign síðan 2002 og búin að eignast 7 folöld

Kolla er stundum að taka viðtöl sem hún setur á Þytssíðuna og síðasti viðmælandinn var Tryggvi Björnsson og ákvað hún að skella því hingað líka. 

Tryggvi býr á Blönduósi ásamt konu sinni Hörpu Hermannsdóttur. Fjölskyldan er orðin mjög stór en Tryggvi á fjóra syni, svo það stefnir í að hann hafi fullt af vinnumönnum eftir nokkur ár.

Tryggvi rekur hestamiðstöðina Hrímahesta ehf. Árið 2004 byggði Tryggvi stórt hesthús á Blönduósi þar sem starfssemin hefur farið vaxandi ár frá ári. Núna vinnur hjá honum Ninni Kullberg frá Finnlandi.  Í dag eru á húsi 25 hross og þarf af 12 stóðhestar, eða þeir Akkur frá Brautarholti  8,57, Bragi frá Kópavogi 8,16, Frontur frá Fremra-Hálsi 7,95, Gígur frá Hólabaki 7,90, Glampi frá Stóra Sandfelli, Hróður frá Blönduósi, Kafteinn frá Kommu, Penni frá Glæsibæ 8,00, Sólmundur frá Úlfsstöðum 7,97 svo einhverjir séu nefndir.

 

 Kafteinn frá Kommu

Af þínum hrossum, hvaða hrossum ertu spenntastur yfir að temja? Kafteinn frá Kommu fer mjög vel af stað í tamningu,  eins er hryssa sem ég á og heitir Hildur frá Blönduósi undan Adam frá Ásmundastöðum og Hlökk frá Hólum, Hlökk er móðir Hryms og Hrímu frá Hofi.  
Ertu ekki með einhver spennandi hross í tamningu?
  Saga frá Þóreyjarnúpi fer mjög vel af  stað og eins Penni frá Glæsibæ sem er Parkerssonur sem fór í fyrstu verðlaun í fyrra 4v. og margt fleira.
Undan hvaða stóðhestum eignuðust þið folöld síðastliðið vor?
  Álf frá Selfossi, Akk frá Brautarholti, Gára frá Auðsholtshjálegu og fleirum..
Undan hvaða stóðhestum eignist þið folöld á næsta ári?
  Álfi frá Selfossi, Hugin frá Haga, Kerúlf frá Kollaleiru, Hróð frá Refsstöðum, Gretti frá Grafarkoti, Akk frá Brautarholti og Hróð frá Blönduósi
Ertu búinn að selja mörg hross á þessu og síðasta ári?
   Á milli 20 og 30 hross á síðasta ári.
Eru allir fjölskyldumeðlimir jafn áhugasamir í hestamennskunni?
 Ég og Aron erum mest
í þessu en Kristófer er alltaf klár í hestaferðirnar.  Hermann sá yngsti heldur að hann sé hestur. Og Anton er að fá smá áhuga.
  
Á vef LHhesta.is er frétt um að þú og Magnús í Steinnesi hafið keypt stóðhestinn Braga frá Kópavogi og að þú verðir með hann í keppnisbrautinni á komandi tímabili. Stefnir þú með hann í úrtökuna fyrir KS-deildina þann 28. jan nk?
  Í KS deildina stefni ég ekki þetta árið. En með Braga er stefnan að mæta í tölt, fimmgang og A flokk þegar við erum klárir í slaginn og svo á einhver ísmót vonandi. 
Á heimasíðu Hrímahesta,
www.hrima.is, sést að komið er hlutafélag um stóðhest fæddan 2008, Kapal frá Kommu, sem er undan Álfi frá Selfossi og Kjarnorku frá Kommu. Um hann eru 60 hlutir. Hver er sagan á bakvið þennan stóðhest og hvers vegna telur þú að þessir aðilar hafi keypt hlut í honum?  Það voru nokkrir aðilar sem hvöttu mig í þetta og voru vibrögðin frábær en það komust færri að en vildu. Ég held að menn sjái þarna spennandi ætt eins og bræður hans sanna þeir Kappi og Kaspar frá Kommu.
Í vetur verður haldin skemmtileg liðakeppni hérna í Húnaþingi vestra, og heyrst hefur að þú munir keppa með liði 3 sem eru Víðdælingar og Fitjárdalur, er eitthvað til í því?
  Já ég verð í þessu liði  enda á ég ekki heima í neinu öðru liði og held ég að ég sé einn mesti Víðdælingurinn í hópnum,  það er ekkert annað en sigur sem kemur til greina hjá mínu liði, reyndar sé ég ekkert lið sem getur  unnið okkur.

 
Hildur frá Blönduósi                                        Kapall frá Kommu

 

Skrifað 20.01.2009

___________________________________________

Liðakeppnin

Mjög skemmtileg mót eru framundan í Hvammstangahöllinni en Fanney og Logi fengu hugmynd að halda liðakeppni, þar sem keppendur safna stigum fyrir sitt lið og í lok mótaraðarinnar stendur eitt uppi sem sigurvegari.

Á fyrsta mótinu sem verður 13. febrúar nk, verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri.

Liðin skiptast þannig ef það verður næg þátttaka:
Lið 1: Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður
Lið 2: Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur (Gamli Kirkjuhvammshr. og Þverárhreppur) Okkar lið semsagt:)
Lið 3: Víðidalur og Fitjárdalur
Lið 4: Austur-Húnavatnssýsla

Reglur fyrir mótaröðina/liðakeppni
1. flokkur,
ef keppendur eru 16 eða fleiri eru B-úrslit haldin. 4 efstu eru öruggir í A-úrslit, sá fimmti þarf að vinna sig upp í úrslitin.
Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 12 stig
2. sæti - 10 stig
3. sæti - 8 stig
4. sæti - 7 stig
5. sæti - 6 stig
Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

2. flokkur, sömu reglur í sambandi við A- og B-úrslit. Stigagjöf er þó öðruvísi.
Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 6 stig
2. sæti - 5 stig
3. sæti - 4 stig
4. sæti - 3 stig
5. sæti - 2 stig
Eins með B-úrslitin og í 1. flokki.

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili.
Barna- og unglingaflokkur (16 ára og yngri, fædd 1993 og seinna) eru ekki með í stigakeppni liðakeppninnar en þar verður stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn verður krýndur í lok mótaraðarinnar. Þ.e.a.s safnar stigum á hverju móti fyrir sig og síðan verður samanlagður árangur tekinn saman í lokin.
Engin takmörk eru á fjölda liðsmanna í hverju liði. Leyfilegt er að fá liðsmann utan héraðs til að keppa fyrir sitt lið, en hann verður þá að keppa með sama liðinu allt tímabilið.
Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig.


Skráning er á mail: kolbruni@simnet.is fyrir 10 febrúar nk.

Svo núna er bara málið að fara að safna saman öllum hestamönnum á Vatnsnesi, í Línakradal og Vesturhópi og VINNA MÓTIÐ:) Ef við verðum fá þá er bara að sækja í næstu héröð og kaupa liðsmenn!

Skrifað 13.01.2009

 ____________________________________________

 

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Indriði...

 

Skrifað 09.01.2009

_________________________________________________

Tvinnadætur.

Tvinni Tvinni frá Grafarkoti

Tvinnadætur f.2005 Selja Arey Spurning og Arey Jæja loksins eru síðustu tryppin á fjórða vetur komin inn. Það eru fjórar hryssur undan Tvinna frá Grafarkoti og hryssum frá Gröf. Tvinni er 1.v hestur fæddur okkur en er nú staddur i Sviss aðaleink 8,43 bygg 8,08 hæfil 8,66. Okkur líst vel á allar hryssurnar þær brokka fallega og bregða fyrir sig tölti. Svo nú verður spennandi að vita hvernig þær taka tamningu.

Skrifað 08.01.2009

_________________________________________

Þrettándagleði Þyts

 

Þrettándagleði Hestamannafélagsins Þyts sem haldin var á þriðjudag fór vel fram og fjölmennti fólk í blysförina sem var farin frá Pakkhúsinu og að Hvammstangahöllinni, þar sem gleðin fór fram. Björgunarsveitin Húnar voru með kyndla og sjörnuljós til sölu og kveiktu síðan í gosi upp við reiðhöll. 

Í blysförinni voru fullt af hressum álfum, þrír jólasveinar og auðvitað Grýla og Leppalúði. Þau fengu far á kerru sem fylgdi blysförinni alla leiðina frá Pakkhúsinu og upp að Hvammstangahöllinni. Á undan fóru hestamenn, álfadrottning, álfakóngur og hirðmeyjar.

Siggi prestur fór svo á kostum og hélt uppi fjöri með söng og glensi. Tóta í Æskulýðsnefndinni stjórnaði leikjum, teymt var undir krökkunum og hægt var að fá sér kaffi, kakó og vöfflur.

Guðmundur Haukur tilkynnti svo hver var Íþróttamaður ársins en það kom nú engum á óvart að þann titil hlaut Helga Margrét Þorsteinsdóttir. 

Myndirnar má sjá hér .

Skrifað 08.01.2009

__________________________________________

 Nemi frá Grafarkoti

Ef hakað er á myndina hér að ofan má sjá video af Nema.

 

Skrifað 20.12.2008

__________________________________________

Viðtal við Bessastaðahjónin



Kolla tók skemmtilegt viðtal við Bessastaðahjónin og setti inn á Þytssíðuna. Hún ákvað að skella því líka hingað á Grafarkotssíðuna. Á heimasíðu hjónanna á Bessastöðum kemur fram að búið er nú rekið af fjórða ættlið frá hjónunum Birni Jónssyni og Kristínu Bjarnadóttur, en það er Guðný sem tók við rekstri búsins árið 1995 ásamt manni sínum Jóhanni Birgi Magnússyni frá Kúskerpi í Skagafirði. Þannig að Bessastaðabúið er búið að vera lengi rekið af sömu fjölskyldunni eða frá árinu 1900. Í dag er þar rekið kúabú og stunduð hrossarækt og skógrækt. Kolla spurði Bessastaðabændur nokkurra spurninga um hrossaræktina.

 Hesthúsið á Bessastöðum

Hvað verða mörg hross á járnum í vetur hjá ykkur? Eru það allt hross sem þið eigið eða takið þið í tamningu? Það verða 18 hross á járnum í vetur og eigum við helminginn af þeim. Fastir kúnnar sem við erum með hross fyrir eiga hin hrossin, þau eru frá Þóreyjarnúpi, Syðsta-Ósi, Vatni og Seljabrekku. Við setjum upplýsingar um öll hrossin sem við erum með á heimasíðuna okkar, www.bessastadir.is.

Af ykkar hrossum, hvaða hrossum eru þið spenntust yfir að temja? Þau eru öll býsna spennandi, en mest spennt erum við yfir Byltingu á 4. v., undan Millu frá Árgerði og Trú frá Auðsholtshjáleigu.  Einnig er spennandi Fregn 5 v. undan Gyðju Otursdóttur og Huginn frá Haga. Svo eigum við bróður Byltingar undan Krafti frá Bringu, 5 v. sem er spennandi.

Eru allir fjölskyldumeðlimir jafn áhugasamir í hestamennskunni? Hestamennskan á sýnar hæðir og lægðir innan fjölskyldunnar, en að meðaltali er áhuginn mikill. Jói er eini karlpeningurinn sem er verulega áhugasamur í hestamennskunni, en áhuginn hjá kvenpeningnum er býsna jafn.

Undan hvaða stóðhestum eignuðust þið folöld síðastliðið vor? Hryssu undan Andvara frá Ey, hest undan Stimpli frá Vatni, hryssu undan Krafti frá Efri-Þverá, hryssu undan Gretti frá Grafarkoti.

Undan hvaða stóðhestum eignist þið folöld á næsta ári? Ómi frá Kvistum, Álfi frá Selfossi, Ágústínusi frá Melaleiti.

Eru þið búin að selja mörg hross á árinu? Allt sem var til sölu seldist og rúmlega það. Við höfum svo haft nokkra milligöngu með sölu á hrossum.

Teljið þið að það hafi áhrif á íslenska hrossarækt hvað það seljast margir stóðhestar til Danmerkur þessa dagana? Stærstu áhrifin er auðvitað þau að þetta skapar tekjur inn í greinina. Þessir hestar hefðu örugglega ekki verið til sölu ef eigendunum hefði fundist notkun þeirra viðunandi hér heima. Eigendurnir hafa þannig ekki séð nógu mikinn rekstrarhagnað í þeim til að eiga þá, m.v. verðið sem þeim bauðst fyrir þá. Þetta hafa því ekki verið nógu góðir hestar til að halda þeim í landinu. Að okkar mati eru þeir nógu góðir, en þeir voru ekki að njóta vinsælda. Um leið og svona góð hross koma á erlenda grund og fólk kynnist gæðunum, eykst eftirspurnin eftir góðum hrossum. Við höfum reynslu af því að erlendir hestamenn vilja hross fædd á Íslandi. Belgískur vinur okkar, sálfræðingur og hestamaður, segir að frelsið í augum íslensku hrossanna sé það sama og frelsið í augum íslensku stúlknanna, sem geri hvort tveggja eftirsóknarvert.  

Að lokum viljum við taka fram að það er mjög mikið hagsmunamál fyrir íslenska hrossarækt að unnt sé að koma í veg fyrir að hross fædd á Íslandi veikist af exemi þegar þau koma á erlenda grund.



Fleiri myndir frá Bessastöðum má sjá hér.

Skrifað 06.12.2008

 

 

______________________________

Stóðhestakönnun 2008

Árið 2006 gerðum við hérna á síðunni okkur til gamans, vinsældarkönnun á stóðhestum hjá nokkrum hrossaræktendum, könnunin  fólst í því að velja fimm stóðhesta til að halda undir. Hugsunin var sú að þú átt fimm hryssur og mátt velja einn stóðhest handa hverri hryssu og halda undir hann frítt, hvaða fimm stóðhesta myndir þú velja?

Við ákváðum að spyrja sama fólkið aftur og athuga hvort topp 5 listinn hafi breyst frá því 2006. Flestir af þeim sem tóku þátt 2006 tóku aftur þátt og mjög margir töluðu um að það hefði verið mun auðveldara að velja 10 hesta en aðeins 5. Það tóku núna 22 þátt í könnuninni. Þess má til gamans geta að árið 2006 voru Grafarkotshjónin 100% sammála en það eru þau ekki alveg núna árið 2008. Könnunina 2006 má sjá hér.

Hér má svo sjá niðurstöðurnar:

 Indriði

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hófur frá Varmalæk, Klettur frá Hvammi, Krákur frá Blesastöðum og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 Hedda

Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hófur frá Varmalæk og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 

Magnús Steinnesi

Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Klettur frá Hvammi og Ómur frá Kvistum

 

 Jói Alberts

Akkur frá Brautarholti, Álfur frá Selfossi, Klettur frá Hvammi, Sveinn-Hervar frá Þúfu og Sær frá Bakkakoti.

 

 Tryggvi Björns

Akkur frá Brautarholti, Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga og Kerúlf frá Kollaleiru.

 

 Fanney

Álfur frá Selfossi, Hófur frá Varmalæk, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Roði frá Múla

 

 Logi

Álfur frá Selfossi, Hnokki frá Fellskoti, Hófur frá Varmalæk, Ómur frá Kvistum og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 

Jón Kristófer

Álfur frá Selfossi, Glymur frá Innri-Skeljabrekku, Huginn frá Haga, Kerúlf frá Kollaleiru og Sveinn-Hervar frá Þúfu

 

 Hinni og Hulda

Aron frá Strandarhöfða, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hnokki frá Fellskoti, Huginn frá Haga og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 

 Maggi Ásgeirsá

Gári frá Auðsholtshjáleigu, Glotti frá Sveinatungu, Huginn frá Haga, Sær frá Bakkakoti og Töfri frá Kjartansstöðum

 Sverrir

Burkni frá Feti, Hófur frá Varmalæk, Kvistur frá Skagaströnd, Mídas frá Kaldbak og Tónn frá Ólafsbergi.

 

 Sigrún

Andvari frá Ey, Álfur frá Selfossi, Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi og Moli frá Skriðu

 Ragnar Smári

Álfur frá Selfossi, Hófur frá Varmalæk, Hnokki frá Fellskoti, Orri frá Þúfu og Roði frá Múla

 

 Guðrún Ósk

Álfur frá Selfossi, Dynur frá Hvammi, Hófur frá Varmalæk, Klettur frá Hvammi og Sær frá Bakkakoti

 

 Eydís Ósk

Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Sær frá Bakkakoti

 

 Gréta

Álfur frá Selfossi, Kjarni frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi, Kvistur frá Skagaströnd og Ómur frá Kvistum

 

 Gunnar Fitjum

Álfur frá Selfossi, Kjarni frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi, Krákur frá Blesastöðum og Ómur frá Kvistum

 

 Elli Ásgeirsá

Gári frá Auðsholtshjáleigu, Gustur frá Hóli, Huginn frá Haga, Hróður frá Refsstöðum og Orri frá Þúfu

 Jói Magg

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Kvistur frá Skagaströnd, Orri frá Þúfu og Ómur frá Kvistum.

 

 Daníel Jónsson

Ágústínus frá Melaleiti, Orri frá Þúfu, Ómur frá Kvistum, Stáli frá Kjarri og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 

Þórir

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Kraftur frá Þverá, Orri frá Þúfu og Ómur frá Kvistum

Tryggvi Rúnar

Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Orri frá Þúfu

Pálmi

Fróði frá Staðartungu, Glotti frá Sveinatungu, Hófur frá Varmalæk, Ómur frá Kvistum og Möller frá Blesastöðum.

  ÁLFUR frá Selfossi

Niðurstaðan varð sú að Álfur frá Selfossi fékk flest atkvæði eða 14, næstur kom Klettur frá Hvammi með 10 atkvæði, þá Gaumur frá Auðsholtshjáleigu með 9, í 4 til 5 sæti urðu Huginn frá Haga og Hófur frá Varmalæk með 8 atkvæði og í 6.-7. sæti voru jafnir með 7 atkvæði Ómur frá Kvistum og Orri frá Þúfu.

Skrifað 03.12.2008

_____________________________________________

 

Æskulýðsstarf Þyts.

 Jón Ingi tók þessa flottu mynd af krökkunum í Æskulýðsstarfi Þyts ásamt Æskulýðsnefndinni á Uppskeruhátíð starfsins í lok október. Rakel Gígja er þarna fyrir aftan bikarinn og horfir hugfanginn á hann en hún ætlar sko að fara að byrja á fullu í starfinu enda er afi hennar nú búinn að byggja heila reiðhöll fyrir dömuna eins og hún sagði sjálf ,,vá afi, ertu bara búinn að byggja reiðhöllina mína" Svo er bara spurning hvort hún ráði við Sölvann í svona stóru rými????

Á heimasíðu Húnaþings er síðasta fundargerð Byggðarráðs. Hestamannafélagið Þytur mun halda Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna í árið 2010 eins og flestir vita. Á fundinum var farið yfir hugmyndir um tengingu hesthúsahverfisins og vallarsvæðis félagsins með byggingu reiðleiða og ræsis yfir Ytri-Hvammsá. Fulltrúar félagsins leggja mikla áherslu á mikilvægi þessara breytinga að þeim verið unnið á árinu 2009. Það eru því mörg verkefni framundan hjá félaginu við að gera svæðið klárt fyrir mótið.

Skrifað 26.11.2008

__________________________________________

 

 

 

Hross undan Óttu frá Grafarkoti

Sál

Sál frá Grafarkoti f. 1992

Æra frá Grafarkoti

Æra frá Grafarkoti f. 1998

Órator frá Grafarkoti f. 1999

Urt

Urt frá Grafarkoti f. 2000

Grásíða

Grásíða frá Grafarkoti f. 2001

Grettir frá Grafarkoti f. 2002

 

Grafarkot hrossarćkt | 531 Hvammstangi | Sími 451 2923 | GSM 860 2056 / 848 8320 | grafarkot@grafarkot.is