Folöld 2009

1. Fyrsta folaldið sem fæðist í Grafarkoti þetta árið er svört hryssa u. Græsku frá Grafarkoti og Gretti frá Grafarkoti. Hún fæddist 18.05.

2. Annað folaldið sem fæddist 23 maí er brún hryssa undan Glósu frá Grafarkoti og Gretti frá Grafarkoti.

3.Þriðja folaldið fæddist 24 maí, það er bleikálóttur (jarpur) hestur undan Æru frá Grafarkoti og Hnokka frá Fellskoti.

4. Fjórða folaldið fæddist 5 júní og er rauðstjörnótt hryssa undan Trú frá Grafarkoti og Akk frá Brautarholti.

5. Fimmta folaldið sem fæddist er rauðblesóttur hestur undan Urtu frá Grafarkoti og Gretti frá Grafarkoti. Eig Ragnar Smári

6. Sjötta folaldið fædist 14. júní og er rauðskjóttur hestur undan Kæti frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi.

7. Sjöunda folaldið fæddist 15.júní og er jarpskjótt( v, gráskjótt) hryssa undan Grásíðu frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi.

8. Áttunda folaldið fæddist 16.júní og er brúnstjörnótt hryssa undan Urt frá Grafarkoti og Hóf frá Varmalæk.

9. Níunda folaldið fæddist á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17 júní og er rauðskjótt hryssa undan Glætu frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi. Eig eru Kolla og Raggi

10. Tíunda folaldið fæddist 19. júní það er rauðstjörnótt hryssa undan Gretti frá Grafarkoti og Kóreu frá Grafarkoti.

11. Ellefta folaldið fæddist 21 júní svört hryssa undan Klassík frá Grafarkoti og Gretti frá Grafarkoti.
12. Tólfta folaldið fæddist 24 júní og er rauðblesótt hryssa undan Kotru frá Grafarkoti og Gretti frá Grafarkoti.

13. Þrettánda folaldið sem fæddist 26 júní og er rauð hryssa undan Roða frá Múla og Gráðu frá Grafarkoti.

14. Fjórtánda folaldið sem fæddist 27 júní er rauð hryssa undan Roða frá Múla og Grafík frá Grafarkoti

!5, Fimmtánda folaldið sem fæddist 29. júní er brúnskjóttur hestur undan Sál frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi. Eig Fanney og Logi

16. Sextánda folaldið sem fæddist 2. júlí er jarpskjótt hryssa undan Tign frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi.

17. sautjánda folaldið sem fæddist 8. júlí er rauðskjótt hryssa unan Vin frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi

18. folaldið sem fæddist er rauðtvístj hryssa undan Vakningu frá Gröf og Álfi frá Selfossi eig Eydís Ósk

19. folaldið sem fæddist og það síðasta þetta árið er rauð hryssa undan Aríu frá Grafarkoti og Álfi frá Selfossi