Hafa samband | Prenta síđuna 
 

2008

 Nemi frá Grafarkoti

Ef hakað er á myndina hér að ofan má sjá video af Nema.

 

Skrifað 20.12.2008

__________________________________________

Viðtal við Bessastaðahjónin



Kolla tók skemmtilegt viðtal við Bessastaðahjónin og setti inn á Þytssíðuna. Hún ákvað að skella því líka hingað á Grafarkotssíðuna. Á heimasíðu hjónanna á Bessastöðum kemur fram að búið er nú rekið af fjórða ættlið frá hjónunum Birni Jónssyni og Kristínu Bjarnadóttur, en það er Guðný sem tók við rekstri búsins árið 1995 ásamt manni sínum Jóhanni Birgi Magnússyni frá Kúskerpi í Skagafirði. Þannig að Bessastaðabúið er búið að vera lengi rekið af sömu fjölskyldunni eða frá árinu 1900. Í dag er þar rekið kúabú og stunduð hrossarækt og skógrækt. Kolla spurði Bessastaðabændur nokkurra spurninga um hrossaræktina.

 Hesthúsið á Bessastöðum

Hvað verða mörg hross á járnum í vetur hjá ykkur? Eru það allt hross sem þið eigið eða takið þið í tamningu? Það verða 18 hross á járnum í vetur og eigum við helminginn af þeim. Fastir kúnnar sem við erum með hross fyrir eiga hin hrossin, þau eru frá Þóreyjarnúpi, Syðsta-Ósi, Vatni og Seljabrekku. Við setjum upplýsingar um öll hrossin sem við erum með á heimasíðuna okkar,
www.bessastadir.is.

Af ykkar hrossum, hvaða hrossum eru þið spenntust yfir að temja? Þau eru öll býsna spennandi, en mest spennt erum við yfir Byltingu á 4. v., undan Millu frá Árgerði og Trú frá Auðsholtshjáleigu.  Einnig er spennandi Fregn 5 v. undan Gyðju Otursdóttur og Huginn frá Haga. Svo eigum við bróður Byltingar undan Krafti frá Bringu, 5 v. sem er spennandi.

Eru allir fjölskyldumeðlimir jafn áhugasamir í hestamennskunni? Hestamennskan á sýnar hæðir og lægðir innan fjölskyldunnar, en að meðaltali er áhuginn mikill. Jói er eini karlpeningurinn sem er verulega áhugasamur í hestamennskunni, en áhuginn hjá kvenpeningnum er býsna jafn.

Undan hvaða stóðhestum eignuðust þið folöld síðastliðið vor? Hryssu undan Andvara frá Ey, hest undan Stimpli frá Vatni, hryssu undan Krafti frá Efri-Þverá, hryssu undan Gretti frá Grafarkoti.

Undan hvaða stóðhestum eignist þið folöld á næsta ári? Ómi frá Kvistum, Álfi frá Selfossi, Ágústínusi frá Melaleiti.

Eru þið búin að selja mörg hross á árinu? Allt sem var til sölu seldist og rúmlega það. Við höfum svo haft nokkra milligöngu með sölu á hrossum.

Teljið þið að það hafi áhrif á íslenska hrossarækt hvað það seljast margir stóðhestar til Danmerkur þessa dagana? Stærstu áhrifin er auðvitað þau að þetta skapar tekjur inn í greinina. Þessir hestar hefðu örugglega ekki verið til sölu ef eigendunum hefði fundist notkun þeirra viðunandi hér heima. Eigendurnir hafa þannig ekki séð nógu mikinn rekstrarhagnað í þeim til að eiga þá, m.v. verðið sem þeim bauðst fyrir þá. Þetta hafa því ekki verið nógu góðir hestar til að halda þeim í landinu. Að okkar mati eru þeir nógu góðir, en þeir voru ekki að njóta vinsælda. Um leið og svona góð hross koma á erlenda grund og fólk kynnist gæðunum, eykst eftirspurnin eftir góðum hrossum. Við höfum reynslu af því að erlendir hestamenn vilja hross fædd á Íslandi. Belgískur vinur okkar, sálfræðingur og hestamaður, segir að frelsið í augum íslensku hrossanna sé það sama og frelsið í augum íslensku stúlknanna, sem geri hvort tveggja eftirsóknarvert.  

Að lokum viljum við taka fram að það er mjög mikið hagsmunamál fyrir íslenska hrossarækt að unnt sé að koma í veg fyrir að hross fædd á Íslandi veikist af exemi þegar þau koma á erlenda grund.



Fleiri myndir frá Bessastöðum má sjá hér.

Skrifað 06.12.2008

 

 

______________________________

Stóðhestakönnun 2008

Árið 2006 gerðum við hérna á síðunni okkur til gamans, vinsældarkönnun á stóðhestum hjá nokkrum hrossaræktendum, könnunin  fólst í því að velja fimm stóðhesta til að halda undir. Hugsunin var sú að þú átt fimm hryssur og mátt velja einn stóðhest handa hverri hryssu og halda undir hann frítt, hvaða fimm stóðhesta myndir þú velja?

Við ákváðum að spyrja sama fólkið aftur og athuga hvort topp 5 listinn hafi breyst frá því 2006. Flestir af þeim sem tóku þátt 2006 tóku aftur þátt og mjög margir töluðu um að það hefði verið mun auðveldara að velja 10 hesta en aðeins 5. Það tóku núna 22 þátt í könnuninni. Þess má til gamans geta að árið 2006 voru Grafarkotshjónin 100% sammála en það eru þau ekki alveg núna árið 2008. Könnunina 2006 má sjá hér.

Hér má svo sjá niðurstöðurnar:

 Indriði

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hófur frá Varmalæk, Klettur frá Hvammi, Krákur frá Blesastöðum og Þóroddur frá Þóroddsstöðum

 Hedda
Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hófur frá Varmalæk og Þóroddur frá Þóroddsstöðum
 
Magnús Steinnesi
Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Klettur frá Hvammi og Ómur frá Kvistum
 
 Jói Alberts
Akkur frá Brautarholti, Álfur frá Selfossi, Klettur frá Hvammi, Sveinn-Hervar frá Þúfu og Sær frá Bakkakoti.
 
 Tryggvi Björns
Akkur frá Brautarholti, Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga og Kerúlf frá Kollaleiru.
 
 Fanney
Álfur frá Selfossi, Hófur frá Varmalæk, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Roði frá Múla
 
 Logi
Álfur frá Selfossi, Hnokki frá Fellskoti, Hófur frá Varmalæk, Ómur frá Kvistum og Þóroddur frá Þóroddsstöðum
 
Jón Kristófer
Álfur frá Selfossi, Glymur frá Innri-Skeljabrekku, Huginn frá Haga, Kerúlf frá Kollaleiru og Sveinn-Hervar frá Þúfu
 
 Hinni og Hulda
Aron frá Strandarhöfða, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hnokki frá Fellskoti, Huginn frá Haga og Þóroddur frá Þóroddsstöðum
 

 Maggi Ásgeirsá

Gári frá Auðsholtshjáleigu, Glotti frá Sveinatungu, Huginn frá Haga, Sær frá Bakkakoti og Töfri frá Kjartansstöðum

 Sverrir
Burkni frá Feti, Hófur frá Varmalæk, Kvistur frá Skagaströnd, Mídas frá Kaldbak og Tónn frá Ólafsbergi.
 
 Sigrún

Andvari frá Ey, Álfur frá Selfossi, Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi og Moli frá Skriðu

 Ragnar Smári
Álfur frá Selfossi, Hófur frá Varmalæk, Hnokki frá Fellskoti, Orri frá Þúfu og Roði frá Múla
 
 Guðrún Ósk
Álfur frá Selfossi, Dynur frá Hvammi, Hófur frá Varmalæk, Klettur frá Hvammi og Sær frá Bakkakoti
 
 Eydís Ósk
Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Sær frá Bakkakoti
 
 Gréta
Álfur frá Selfossi, Kjarni frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi, Kvistur frá Skagaströnd og Ómur frá Kvistum
 
 Gunnar Fitjum
Álfur frá Selfossi, Kjarni frá Auðsholtshjáleigu, Klettur frá Hvammi, Krákur frá Blesastöðum og Ómur frá Kvistum
 
 Elli Ásgeirsá

Gári frá Auðsholtshjáleigu, Gustur frá Hóli, Huginn frá Haga, Hróður frá Refsstöðum og Orri frá Þúfu

 Jói Magg
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Kvistur frá Skagaströnd, Orri frá Þúfu og Ómur frá Kvistum.
 
 Daníel Jónsson
Ágústínus frá Melaleiti, Orri frá Þúfu, Ómur frá Kvistum, Stáli frá Kjarri og Þóroddur frá Þóroddsstöðum
 
Þórir
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Huginn frá Haga, Kraftur frá Þverá, Orri frá Þúfu og Ómur frá Kvistum

Tryggvi Rúnar

Álfur frá Selfossi, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum, Klettur frá Hvammi og Orri frá Þúfu

Pálmi

Fróði frá Staðartungu, Glotti frá Sveinatungu, Hófur frá Varmalæk, Ómur frá Kvistum og Möller frá Blesastöðum.

  ÁLFUR frá Selfossi

Niðurstaðan varð sú að Álfur frá Selfossi fékk flest atkvæði eða 14, næstur kom Klettur frá Hvammi með 10 atkvæði, þá Gaumur frá Auðsholtshjáleigu með 9, í 4 til 5 sæti urðu Huginn frá Haga og Hófur frá Varmalæk með 8 atkvæði og í 6.-7. sæti voru jafnir með 7 atkvæði Ómur frá Kvistum og Orri frá Þúfu.

Skrifað 03.12.2008

_____________________________________________

 

Æskulýðsstarf Þyts.

 Jón Ingi tók þessa flottu mynd af krökkunum í Æskulýðsstarfi Þyts ásamt Æskulýðsnefndinni á Uppskeruhátíð starfsins í lok október. Rakel Gígja er þarna fyrir aftan bikarinn og horfir hugfanginn á hann en hún ætlar sko að fara að byrja á fullu í starfinu enda er afi hennar nú búinn að byggja heila reiðhöll fyrir dömuna eins og hún sagði sjálf ,,vá afi, ertu bara búinn að byggja reiðhöllina mína" Svo er bara spurning hvort hún ráði við Sölvann í svona stóru rými????

Á heimasíðu Húnaþings er síðasta fundargerð Byggðarráðs. Hestamannafélagið Þytur mun halda Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna í árið 2010 eins og flestir vita. Á fundinum var farið yfir hugmyndir um tengingu hesthúsahverfisins og vallarsvæðis félagsins með byggingu reiðleiða og ræsis yfir Ytri-Hvammsá. Fulltrúar félagsins leggja mikla áherslu á mikilvægi þessara breytinga að þeim verið unnið á árinu 2009. Það eru því mörg verkefni framundan hjá félaginu við að gera svæðið klárt fyrir mótið.

Skrifað 26.11.2008

__________________________________________

Allt á fullu...

Hér að ofan má sjá viðbygginguna í Lindarbergi hjá Kollu og Ragga, húsið er því orðið fokhellt. En þau byggðu 30 fm stofu við gamla íbúðarhúsið. Viðbyggingin er með stórum gluggum og það er hátt til lofts og kemur þetta mjög vel út og rosalega flott útsýni er úr stofunni. Myndir frá Lindarbergi eru svo á heimasíðu Kollu.

  Nýkominn inn Síðan eru Fanney og Logi búin að taka inn í nýja hesthúsið á Hrísum og eru tamningarnar  að hefjast hjá þeim.

Þannig að núna fer aðeins að róast hjá Indriða sem er búinn að vera með puttana á öllum þessum stöðum undanfarna mánuði, að panta efni, hjálpa til, sjá um að dætur og tengdasynirnir geri nú allt eftir settum reglum ;-), og líka þess á milli að klára reiðskemmuna í Grafarkoti,  fyrir svo utan það að reka fyrirtækið Tvo Smiði ásamt Kára Braga.

Hér er annars allt í góðum gír með tamningarnar, búið að setjast á flest tryppin og farið að ríða nokkrum lausum í nýju reiðskemmunni sem er MJÖG gaman.

 Séð inn í nýju reiðhöllina!

 

Skrifað 23.11.2008

__________________________________________-

Frumtamningar.

oktober 2008 Kara Gammsdóttir fædd 2005 Loki Óratorsson f. 2004

 

Jæja, núna er búið að taka inn flest af ungu hrossunum þ.e. hryssur á fjórða vetur og geldinga á fimmta vetur. Gréta er mætt til starfa og einnig er hér þýsk stúlka sem verður  aðstoðarmaður. Nýja reiðskemman er alveg að verða tilbúin og tengibyggingin komin svo allt er þetta að smella. Okkur lýst bara nokkuð vel á tryppin en þetta er fyrsti árgangurinn í þó nokkur ár sem hryssurnar eru fleiri en hestarnir eða 8 af 14 fæddum 2005. Hryssurnar eru undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Trú frá Kjartansstöðum, Órator frá Grafarkoti, Gammi frá Steinnesi og Parker frá Sólheimum, folarnir eru undan Kletti frá Hvammi og Órator frá Grafarkoti. Öll fara hrossin vel af stað svo það verður spennandi að sjá hvernig þau þróast.

 

Skrifað 08.11.2008

______________________________________________________

 

Uppskeruhátíð Þyts og hrossaræktarsamtaka V-Hún

 

Grafarkot kosið ræktunarbú ársins 2008

 

Jæja þá er uppskeruhátíðin afstaðin þetta árið. Það var mjög þétt og mikil dagskrá og var henni ekki lokið fyrr en um eitt og hófst þá dansleikur með GHG og Ingibjörgu. Hátíðin var auðvitað mjög skemmtileg, Þórhallur Sverrisson Sigrúnarsonar sá um matinn og var hann rosalega góður hjá honum. Veislustjórar voru Kjartan og Stebbi og þeir voru svo sannarlega flottir, skemmtiatriðin voru frábær, Haddý alveg stórkostleg í sínu hlutverki eða eins og hún segir sjálf þá fer hún alltaf yfir strikiðemoticon  Skemmtinefndin stóð sig því rosalega vel eins og vanalega!!!
Síðan voru viðurkenningar veittar fyrir knapa ársins í þrem flokkum og þá voru verðlaun veitt af Hrossaræktarsamtökunum. Við fengum 4 verðlaun, en það voru 4 vetra stóðhesturinn Kufl með aðaleink 7,85, Grettir með aðaleink. 8,07, Huldumey var efst í 6 vetra flokki hryssna með aðaleink 8,33 og Skinna var 3 í 5 vetra flokki hryssna með aðaleink. 7,95.

 Huldumey sem var hæst dæmda hryssan árið 2008.


Knapi ársins í unglingaflokki er Aðalheiður Einarsdóttir, knapi ársins í ungmennaflokki er Helga Una Björnsdóttir og knapi ársins í flokki fullorðinna er Ísólfur L Þórisson.
Æskulýðsnefndin fékk viðurkenningu fyrir störf sín og frábæran árangur á árinu en Æskulýðsnefnd Þyts hlaut Æskulýðsbikar LH eins og áður hefur komið fram. Tryggvi Rúnar fékk viðurkenningu fyrir frábært starf í þágu félagsins og Tryggvi Björnsson sem var í 2. sæti í vali á knapa ársins, fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á landsmótinu (skemmtinefndin kaus hann einnig best klædda Þytsfélagannemoticon )

Komnar inn myndir hér.

Skrifað 02.11.2008

_________________________________________________

 

Hesthúsið á Hrísum

 

Jæja, þá er hesthúsið hjá Fanney og Loga alveg að verða tilbúið en þau hafa verið að breyta hluta af  530 fermetra fjárhúsi í hesthús. Það verða 19 stíur í hesthúsinu, 13 einhesta og 6 tveggja hesta. Síðan ætla þau að nota 2/3 af 480 fermetra hlöðu sem reiðaðstöðu.

Hér að neðan má sjá myndir af hesthúsinu.

 

Þau verða með 25 hross inni í vetur, 10-12 sem þau eiga sjálf en restin verða hross frá öðrum. Af þeirra hrossum eru þau mjög spennt að temja undan heimahestunum Órator, Gretti og Tvinna frá Grafarkoti og Sædyn frá Múla. Það verður gaman að sjá hvernig þau koma út, undan þessum hestum sem við þekkjum mjög vel og líkar vel við. Spenntust eru þau samt fyrir og binda mestar vonir við brúnskjótta 4 vetra hryssu, fyrsta afkvæmið undan 1. verðlauna hryssunni Ásjónu hennar Fanneyjar og Órator. Eins líst þeim vel á bleika Hágangsdóttir sem fer á 4 vetur og Rauðskjótta Rauðskinnadóttir sem fer á 5 vetur. Þannig að veturinn verður mjög spennandi og telja þau sig verða bara ágætlega ríðandi.

Skrifað 29.10.2008

____________________________________________

Æskulýðsbikarinn 2008 til Þyts

Nú stendur yfir LH þing og á þinginu er æskulýðsbikarinn afhentur. Við val á handhafa æskulýðsbikars LH er horft til þess fjölbreytta starfs sem félögin hafa í boði fyrir börn, unglinga og ungmenni í sínu félagi.

Hestamannafélagið Þytur í Vestur-Húnavatnssýslu hlýtur æskulýðsbikar LH fyrir árið 2008. Er það einróma álit að æskulýðsstarfið í félaginu hafi verið til fyrirmyndar.

Sigrún Kristín Þórðardóttir, formaður Þyts, tók við bikarnum. Hún sagði að mikil alúð væri lögð í æskulýðsstarfið í félaginu. Hestakostur barnanna í Þyti væri ekki endilega alltaf sá besti yfir landið. En áhersla væri lögð á að finna hverjum knapa og hesti hlutverk og það væri aðalatriðið.

Innilega til hamingju með árangurinn ÆSKULÝÐSNEFND ÞYTS og allir hinir sem koma að starfinu. FRÁBÆR árangur!!!!

Skrifað 24.10.2008

_______________________________________________________

 

Nýju hrútarnir.

 

Indriði og Eydís fóru á fimmtudaginn sl. norður á strandir og sóttu tvo nýja hrúta á báða Heydalsárbæjina hjá þeim Guðjóni og Ragnari.

Skrifað 06.10.2008

___________________________________

Allt er í heiminum hverfult

Mæðgur fremstarLagt af stað frá Höfðabakka

 Í dag hefði Egill vinur okkar orðið 72. ára En örlögin höguðu því þannig að hann varð bráðkvaddur þann 31. ágúst síðastliðinn. Egill var okkar héraðsdýralæknir til margra ára, og mikill vinur okkar,  einstakur maður sem gott var að leita til. Hér fylgja nokkrar myndir af hestmönnum sem vottuðu Agli virðingu sína með því að fylgja honum til grafar.

skrifað 29 september 2008

________________________________________________________________

Stóðréttir í Víðidalstungurétt

Hófur frá Varmalæk

Í réttinni verður sölusýningin og uppboð. Á uppboðinu verður líklega verðmætasta folald sem boðið hefur verið upp á Íslandi. Þetta er merfolald undan Kilju frá Steinnesi sem er 1. verðlauna hryssa, undan henni voru sýnd tvö hross í kynbótadómi í sumar og hlutu þau bæði 1. verðlaun. Annað er  Kiljan frá Steinnesi sem var annar á LM í flokki 4 vetra stóðhesta og hitt er Katla frá Steinnesi sem hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og 9,5 fyrir stökk. Faðir folaldsins er Hófur frá Varmalæk sem er líka 1. verðlauna stóðhestur, með 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geð og fegurð í reið og 9,5 fyrir stökk.

Það verður því þess virði að mæta á uppboðið í réttinni laugardaginn 4. október, með fullar hendur fjár.

Myndin er af Hóf frá Varmalæk.

________________________________________________________________

Göngur og réttir.

Einhver skemmtilegasti tími ársins að okkar mati, er  þessi tími sem stendur yfir núna. Öll síðasta vika fór í smalamennskur og rollurag  og lokahnykkurinn var gangadagurinn á síðasta laugrdag 13 sept. Allt gekk þetta ljómandi vel þó að það hafi rignt all svakalega á okkur fyrri part laugardagsins en um miðjan dag var komið blíðu veður. Óvenjumargt fé kom til réttar miðað við undan farin ár og fengum við 54 stk í réttinni. Héðan fóru 6 gangnamenn.

Göngufélagið  

  Einn er sá hópur sem skemmtir sér þó betur en allir aðrir  en það er Göngufélagið Brynjólfur sem saman stendur af 12 vöskum sveinum, þeir byrja gleðina á fimmtudegi fyrir gangadag og stendur gleðin nánast stanslaust fram á laugardagsnótt. Þeir hafa smalað neðsta hluta Vatnsnesfjalls sem einn maður nú í 20 ár,  ótrúlegt en satt. Síðustu tvö árin hafa þeir farið fyrir Grafarkot  Á gangnadagsmorgunn eru þeir keyrðir syngjandi á traktorsvagni upp í fjall og þaðan labba þeir og smala eina 17 km og alltaf er jafn gaman að hitta þá út við Hamarsrétt. Þetta árið tjölduðu þeir við Hamarsbúð fengu harmonikku leikara og slógu upp dansiballi á flötinni. Myndirnar eru teknar á föstudag en þá hafa þeir heimsótt okkur og skemmt okkur með gleðisöngvum :)

Grafarkot 

Náðum þessari flottu myndum af Grafarkoti  nú fyrir stuttu, regnboginn er meira að segja tvöfaldur.                          

Skrifað 5 sept 2008

 

Tamningastöð á Hrísum

Logi og Nemi 4 vetra Fanney og Dögg íslandsmeistari

 

Tökum að okkur þjálfun söluhrossa fyrir sölusýninguna sem haldin verður 4. október nk. í stóðréttunum í Víðidalstungurétt. Tökum að okkur hross í þjálfun núna í haust.

Við munum einnig vera með virka starfsemi í vetur á Hrísum.

Fanney Dögg 865-8174 og Elvar Logi 848-3257.

__________________________________________________________________

 

Sölusýning í stóðréttunum

 Heiða 5 vetra Heiða frá Hólabaki 

Heiða frá Hólabaki 5 vetra mjög efnileg Parkesdóttir er á meðal þeirra hrossa sem eru til sölu

Svarti-Pétur 6 vetra 

Og Svarti-Pétur frá Gröf er 6 vetra undan Órator frá Grafarkoti (íslandsmeistara í tölti ungmenna) og Eldey frá Gröf.

Fyrirhugað er að halda sölusýningu 4. október nk. í tengslum við stóðréttirnar í Víðidal. Sölusýningin er haldin á vegum hrossaræktasamtakanna í Húnaþingi vestra. Áhugasamir hafi samband við Loga í síma: 848-3257

Skrifað 27.ágúst 2008

_____________________________________________________________________

Sumarið er tíminn..

Hedda og Kapall  Alla og Dalla  söngpíur

Aldeilis komin tími á smá fréttir úr kotinu, Sumarið er búið að vera indælt, ansi þurrt þó eins og í fyrra og nú er svo komið að bæjarlækurinn er nánast hættur að renna. Ýmislegt búið að bralla, við vorum t.d   viku á LM,  búin að fara í 4.daga hestaferð,  við Indriði tókum okkur til og fórum í bílferðalag með Sigrúnu og Sverri um veslunarmannahelgina mjög skemmtilegt. Hér eru svo tveir stóðhestar í hryssum þeir Álfur frá Selfossi og Grettir frá Grafarkoti, nóg að gera í kringum þá.

Svo er búið að vera að  heyja þess á milli. Heyfengur er góður eru komnar tæpar 700 rúllur og svo er búið að heyja líka fyrir nýju bændurna þau Fanney og Loga á Hrísum og Kollu og Ragga á Lindarbergi.

Svo var kvennareiðin núna 16. ágúst. Í þetta skiptið var hún mjög vel heppnuð mættu um 70 konur þemað þetta árið var suðrænt og seiðandi, svart og rautt. Riðið var frá Víðidalstungurétt upp með ánni að Valdarásrétt þar sem farið var í leiki,  mikið fjör,  svo endaði ferðin frammi í Áslandi þar sem biðu grilluð læri með meðlæti og Dóri Fúsa með gítarinn veðrið var yndislegt logn en sólarlaust enda var sungið alveg fram í myrkur.

Fleiri myndir úr kvennareiðinni má sjá hér.

_____________________________________________

Íþróttamót Þyts

Opið íþróttamót Þyts var haldið síðustu helgi. Frá Grafarkoti kepptu í þetta sinn bara Kolla og Fanney. Kolla keppti á Uglu sinni í fjórgangi og tölti og lentu þær í B-úrslitum í báðum flokkunum. Fanney keppti á Eld í fimmgangi og varð í 2.sæti og síðan á Kapli í gæðingaskeiði og 100 m skeiði.

Úrslit urðu eftirfarandi:

töltkeppni T2
a úrslit
1. Friðrik Már Sigurðsson og Dagur frá Hjaltastaðahvammi eink. 6,50
2. Ísólfur Líndal og Ögri frá Hólum eink. 6,08
3. Birna Ósk Ólafsdóttir og Kólfur frá Kaldbak eink. 5,79
4. Helga Rós Níelsdóttir og Skjóni frá Fremri-Fitjum eink. 5,71
5. Halldór P. Sigurðsson og Stígur frá Efri-Þverá eink. 4,50

Fjórgangur Barnaflokkur
1. Birna Ósk Ólafsdóttir og Vísir frá Efri-Hömrum eink. 7,03
2-3. Eydís Anna Kristófersdóttir og Frigg 4,77
2-3 Atli Steinar Ingason og Kremi frá Galtanesi 4,77

fjórgangur unglingaflokkur
1. Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum 6,47
2. Fríða Marý Halldórsdóttir og Valiant frá Miðhjáleigu 5,73
3. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergstöðum 5,57
4. Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir og Spyrna frá Syðri-Reykjum eink. 5,30
5. Jónína Lilja Pálmadóttir og Svipur frá Syðri völlum eink 0

fjórgangur Ungmennaflokkur
1. Gerður Rósa SIgurðardóttir og Róni frá Kolugili eink 6.43
2. Helga Rós Níelsdóttir og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum 5,83
3. Leifur George Gunnarsson og Djákni frá Höfðabakka eink. 5,37
4. Stella Guðrún Ellertsdóttir og Fjalar frá Sauðá eink. 5,00

fjórgangur 1 flokkur
A úrslit
1. ísólfur Líndal Þórisson og Skáti frá Skáney eink.7,83
2. Friðrik Már Sigurðsson og Dagur frá Hjaltastaðahvammi eink. 7,00
3. Halldór svansson og Brúða frá Bjalla eink 6,60 (vann B-úrslit)
4. Ragnar Stefánsson og Lotning frá Þúfum eink. 6,57
5.Sonja Líndal Þórisdóttir og Gígja frá Lækjamóti eink. 6,17
6. Guðmundur Þór Elíasson og Fáni frá Efri-Lækjardal eink. 6,10

B úrslit
6. Halldór Svansson og Brúða frá Bjalla eink.6,77
7. Halldór P. Sigurðsson og Sómi frá Bövarshólum eink.6,27
8. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Ugla frá Grafarkoti eink. 5,90
9. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Hrannar frá Galtanesi eink.5,67
10. Sigurður Halldórsson og Lindi frá Kópavogi eink. 5,60

Fimmgangur 1. flokkur
A-úrslit
1. Jóhanna Friðriksdóttir og Húni frá Stóru-Ásgeirsá eink.6,79
2. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá eink. 6,50
3. Gunnar Reynisson og Kveikur frá Sigmundarstöðum eink. 6,33
4. Ragnar Stefánsson og Skjór frá Blesastöðum eink. 5,71
5 Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Sólheimum eink. 5,64
6. Guðmundur Þór Elíasson og Pjakkur frá Stóru-Ásgeirsá eink. 5,43 ( vann B-úrslit)

B úrslit
6. Guðmundur Þór Elíasson og Pjakkur frá Stóru-Ásgeirsá eink. 5,81
7. Magnús Ásgeir Elíasson og Fiðringur frá Stóru-Ásgeirsá eink. 5,76
8. Line Nörgaard og Mön frá Minni-Borg eink. 5,38
9. Sigurður Halldórsson og Stakur frá Efri-Þverá eink. 5,07
10. Halldór P sigurðsson og Stígur frá Efri Þverá eink. 4,45

Töltkeppni Barnaflokkur
1. Lilja Karen Kjartansdóttir og Fía frá Hólabaki eink. 5,72
2. Eydís Anna Kristófersdóttir og Frigg eink. 5,44
3. Atli Steinar Ingason og Kremi frá Galtanesi eink. 5,11
4. Karítas Aradóttir og Röst frá Skarði eink. 4,33
4. Birna Ósk Ólafsdóttir og Viður frá Litlu-Tungu eink. 0,00 (kom efst inn í úrslit, fór skeifa)

töltkeppni unglingaflokkur
1. Fríða Marý Halldórsdóttir og Valiant frá Miðhjáleigu eink. 6,78
2. Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum eink. 6,56
3. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum eink. 5,33
4. Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir og Spyrna frá Syðri-Reykjum eink. 5,17
5. Jónína Lilja Pálmadóttir og Svipur frá Syðri-Völlum eink. 5,00

Töltkeppni Ungmennaflokkur
1. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili eink. 5,56 (vann eftir Bráðabana)
2. Helga Rós Níelsdóttir og Mísla frá Fremri-Fitjum eink 5,56

Tölt 1.flokkur
a-úrslit
1. Ísólfur Líndal Þórisson og Skáti frá Skáney eink. 7,72
2. Gunnar Reynisson og Sikill frá Sigmundarstöðum eink. 7,06
3. Jóhanna Friðriksdóttir og Kvika frá Kvíarbekk eink. 6,66
4. Ragnar Stefánsson og Lotning frá Þúfum eink. 6,56
5. Sigurður Halldórsson og Sproti frá Kópavogi eink. 6,33
6. Halldór Svansson og Krummi frá Smáratúni eink. 6,22 (vann b-úrslit)

b-úrslit
6. Halldór Svansson og Krummi frá Smáratúni eink. 6,33
7. Einar Reynisson og Sókrates frá Stangarholti eink. 6,00
8. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Ugla frá Grafarkoti eink. 5,89
9. Guðmundur Þór Elíasson og Tildra frá Skarði eink. 5,83
10. Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Sól frá Sólheimum eink. 5,22 

100 m. skeið
1. Svavar Örn Hreiðarsson og Johnny frá Hala tími: 8,41
3. Einar Reynisson og Gautur frá Sigmundarstöðum tími: 8,43
4. Magnús Ásgeir Elíasson og Hera frá Stóru-Ásgeirssá tími: 8,66

Gæðingaskeið
1. Svavar Örn Hreiðarsson og Johnny  frá Hala eink. 7,60
2. Einar Reynisson og Gautur frá Sigmundarstöðum eink. 7,10
3. Ísólfur Líndal Þórisson og Melkorka frá Lækjamóti eink.

 

Skrifað 11.08.2008

_______________________________________

Heyskapur

 Rakel Gígja með fréttirnar í botni og steinsofandi þegar hún var sótt í traktorinn til afa síns í gær. En hún er búin að vera mjög dugleg í heyskapnum og hefur skipst á að sitja í traktorunum. Oftast er hún samt með ömmu sinni að pakka og er alveg ótrúlegt hvað barnið getur setið marga klukkutíma í traktor.

Skrifað 25.07.2008

________________________________________________

Landsmót...

  Huldumey

Landsmótið búið, vorum viku fyrir sunnan, með skemmtilegu fólki, sáum frábær hross, allavega veður,  svo hvasst á þriðjudag og miðvikudag að það varð að taka saman alla tjaldvagna og fellihýsi á okkar svæði svo þeir fykju ekki. Eyðilagðist einn tjaldvagn.  Hryssurnar frá okkur stóðu sig vel Víf hélt sínu hækkaði aðaleink um 1 kommu upp í 8,25 en Huldumey gerði betur hækkaði stökk upp í 8,5 og vilja og geð upp í 9,0 hæfileika einkunn er þá orðin 8,42 og aðaleink 8,33. Allir keppendur frá Þyt stóðu sig með sóma. Tryggvi Björns náði lengst af okkar keppendum eða alla leið í 3.ja sæti í B flokk á honum Akk frá Brautarholti frábært .Grettir kom fram í afkvæmahópi Dyns frá Hvammi og stóð sig með prýði þar.

 

Svo 10 júlí var Álfur frá Selfossi mættur í Grafarkot en hann verður hér í hryssum fram á haust.

 

Verða þeir gráir ?

Brönusonur Grásíðusonur

Það fæðast reglulega ný folöld, þetta nýjasta eiga Logi og Fanney og það er undan Hóf frá Varmalæk og grárri hryssu sem Brana heitir. Hann er alveg svartur og móðirin er steingrá eins og sést á fyrri myndinni. Við eigum líka einn sem er undan Grásíðu og hún er líka grá (eins og nafnið gefur til kynna) og hann er alveg svartur eins og hinn. (Seinni myndin) Ælti þeir verði ekki báðir gráir, það er spurning !!

Hér má sjá öll folöldin sem hafa fæðst 2008

__________________________________________________________________

 

Eldur fallegur

Jæja þá er gæðingamótið afstaðið og hér koma úrslitin:
4 börn tóku þátt í pollaflokki, tvö 8 ára og tvö 9 ára. Rosalega gaman að sjá þau og fengu þau viðurkenningu að keppni lokinni.

Unghrossakeppni:
Unghrossakeppnin var með aðeins öðru sniði en í fyrra. Hún var hugsuð þannig að hrossið njóti sín sem best. Dæmt var eftir þjálni og ganghæfileikum.
Óheimilt var að sýna skeið, en annars hafði knapinn frjálsar hendur á sýningu sinni. Riðnir voru 2 hringir/ ca. 3 mínútur. Heimilt var að sýna fimiæfingar, kúnstir eða bara hvað sem er.

Unghrossakeppni:
1. Heron frá Seljabrekku 5 vetra og Jóhann Magnússon
2. Tjáning frá Grafarkoti 4 vetra og Fanney Dögg Indriðadóttir
3. Viska frá Höfðabakka 5 vetra og Þórhallur Magnús Sverrisson

Barnaflokkur:
1. Róbert Arnar og Kjarnorka, eink. 8,20
2. Eva Dögg Pálsdóttir og Bronco frá Hvoli, eink. 7,97
3. Fanndís Ósk Pálsdóttir og Djarfur frá Sigmundarstöðum, eink. 7,96
4. Eydís Anna og Dropi frá Hvoli, eink. 7,93
5. Jónína Ósk Sigsteinsdóttir og Setning frá Lækjarmóti, eink. 7,67
6. Lilja Karen Kjartansdóttir og Fía frá Hólabaki, eink. 4,12

Unglingaflokkur:
1. Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum, eink. 8,29
2. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum, eink. 8,24
3. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi, eink. 8,07
4. Fríða Marý Halldórsdóttir og Krapi frá Efri-Þverá, eink. 8,05
5. Jónína Lilja Pálmadóttir og Svipur frá Syðri-Völlum, eink. 8,02

Ungmennaflokkur:
1. Helga Rós Níelsdóttir og Glaðværð frá Fremri-Fitjum, eink. 8,39
2. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Orka frá Höfðabakka, eink.

B-flokkur:
1. Dama frá Höfðabakka og Þórhallur Magnús Sverrisson, eink. 8,29
2. Hrannar frá Galtanesi og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, eink. 8,23
3. Ugla frá Grafarkoti og Kolbrún Stella Indriðadóttir, eink. 8,22
4. Svarti-Pétur frá Gröf og Herdís Einarsdóttir, eink. 8,16
5. Spes frá Grafarkoti og Fanney Dögg Indriðadóttir, eink. 8,13
6. Taktur frá Höfðabakka og Sverrir Sigurðsson, eink. 7,87

A-flokkur:
1. Eldur frá Sauðadalsá og Fanney Dögg Indriðadóttir, eink. 8,382
2. Lávarður frá Þóreyjarnúpi og Jóhann B Magnússon, eink. 8,381
3. Hending frá Sigmundarstöðum og Pálmi Geir Ríharðsson, eink. 8,32
4. Venus frá Tunguhálsi II og Helga Una Björnsdóttir, eink. 8,31
5. Stakur frá Sólheimum I og Reynir Aðalsteinsson, eink. 8,29

100. Skeið:
1. Reynir Aðalsteinsson og Viðar frá Kvistum
2. Halldór P. Sigurðsson og Frostrós frá Efri-Þverá
3. Herdís Einarsdóttir og Kapall frá Grafarkoti

150. skeið:
1. Reynir Aðalsteinsson og Stakur frá Sólheimum
2. Reynir Aðalsteinsson og Viðar frá Kvistum
3. Helga Una Björnsdóttir og Þokki frá Blönduósi

250m stökk:
1. Helga Una Björnsdóttir og Kormákur
2. Helga Rós Níelsdóttir og Natan
3. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Siggi Lögga

Glæsilegasti hestur mótsins er valinn af dómurum og var að þessu sinni hryssan Glaðværð frá Fremri-Fitjum. Hæst dæmda hryssa mótsins var síðan Venus frá Tunguhálsi II með 8,26 í einkunn. En sú einkunn kemur úr forkeppni.

Myndin er af Fanney og Eld, síðan í fyrra!
_____________________________________________________________

 

Grettir..

   Grettir

Stóðhesturinn Grettir frá Grafarkoti hefur ekki gengið heill til skógar seinni partinn í vetur, hann er með sprungu í hæl sem virðist há honum ef mikið er lagt að honum.  Hesturinn er samt ekki haltur en er aumur í hælnum ef þrýst er á hann. Grettir fór í dóm síðast nú í byrjun júní hann lækkaði aðeins,  hækkaði í byggingu upp í 8,18 náði ekki 9 fyrir tölt en fékk 9,0 í staðin fyrir vilja og geð. Grettir verður til afnota í Grafarkoti í sumar gjald 45.000 m /vsk og girðingagjaldi. þess má geta að við erum mjög hrifin af afkvæmum Grettis hann er að gefa geðgóð, hálsgrönn , og faxprúð afkvæmi.

Hæsti dómur.

 Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
F: IS1994184184 Dynur frá Hvammi
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1978257277 Djásn frá Heiði
M: IS1987255411 Ótta frá Grafarkoti
Mf: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Mm: IS1972237267 Hjálp frá Stykkishólmi
Mál: 140 - 128 - 135 - 62 - 142 - 34 - 46 - 41 - 6,4 - 30,5 - 19,0
Hófamál: Vfr: 8,8 - Va: 8,1
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 8,14
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,10
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5     
Sýnandi: Herdís Einarsdóttir

Kufl frá Grafarkoti

Kufl  Kufl er undan Kóreu frá Grafarkoti og Kletti frá Hvammi. Tryggvi Björnsson sýndi hann á Blönduósi fyrir nokkrum dögum. Hann fór í ágætis dóm, 7,85 í aðaleinkunn. Kufl er efnilegur alhliða hestur og líklegur til þess að fara í 1.verðlaun að ári. Kufl verður til afnota í Grafarkoti í sumar verð; 30.000 með vsk.

__________________________________________________________________

Eldur og Fanney á æfingu Eldur og Fanney

Úrtaka fyrir landsmót var haldin sunnudaginn 8. júní síðastliðinn.

Fulltrúar Þyts á landsmóti í ár eru:

A-flokkur:

1. Johhny frá Hala og Svavar Örn Hreiðarsson eink.8,52

2. Eldur frá Sauðadalsá og Fanney Dögg Indriðadóttir eink. 8,41

3. Venus frá Tunguhálsi og Helga Una Björnsdóttir eink. 8,31 (varahestur)

B-flokkur:

1. Skáti frá Skáney og ísólfur Líndal Þórisson eink. 8,49

2. Akkur frá Brautarholti og Tryggvi Björnsson eink. 8,46

3. Grettir frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir 8,30 (varahestur)

Ungmennaflokkur:

1. Helga Una Björnsdóttir og Gammur frá Steinnesi eink. 8,19

2. Helga Rós Níelsdóttir og Villimey frá Snjallsteinshöfða 1 eink. 7,88

Unglingaflokkur:

1. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergstöðum eink. 8,13

2. Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum eink. 7,97

3. Fríða Marý Halldórsdóttir og Sómi frá Böðvarshólum eink. 7,96 (varahestur)

Barnaflokkur:

1. Róbert Arnar Sigurðsson og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum eink. 7,44

2. Eydís Anna Kristófersdóttir og Dropi frá Hvoli eink. gerði ógilt.

________________________________________________________________________

Víf frá Grafarkoti hækkaði sig á yfirlitssýningunni í Hafnarfirði í dag og fékk fararleyfi á LM.

IS2000255410 Víf frá Grafarkoti
Litur: 1500 Rauður/milli- einlitt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Hilmar Sæmundsson
F: IS1990157003 Galsi frá Sauðárkróki
Ff: IS1974158602 Ófeigur frá Flugumýri
Fm: IS1980257000 Gnótt frá Sauðárkróki
M: IS1987255412 Klassík frá Grafarkoti
Mf: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Mm: IS1974225180 Röst frá Mosfellsbæ
Mál: 140 - 139 - 65 - 140 - 28,0 - 18,0
Hófamál: Vfr: 8,7 - Va: 7,6
Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 7,0 - 8,5 - 7,0 = 8,07
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 8,0 = 8,36
Aðaleinkunn: 8,24
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5     
Sýnandi: Daníel Jónsson                  

 skrifað 7.júní 2008

 __________________________________________________________________

Huldumey var í dómi í dag

Huldumey frá Grafarkoti er komin inn á landsmót. Fékk 8,19 fyrir sköpulag og 8,28 fyrir kosti og því 8,24 í aðaleinkunn. Síðan er yfirlitssýningin eftir.

Sköpulag
Höfuð9
Háls/herðar/bógar9
Bak og lend8.5
Samræmi8
Fótagerð7.5
Réttleiki7
Hófar8
Prúðleiki7.5
Sköpulag8.19
Kostir
Tölt8.5
Brokk8
Skeið8
Stökk8
Vilji og geðslag8.5
Fegurð í reið8.5
Fet6.5
Hæfileikar8.28
Hægt tölt8
Hægt stökk8
 Aðaleinkunn; 8,24 

Skrifað 03.06.2008

________________________________________________________________

Fullt af nýjum folöldum.. kíkja inn í uppeldi

 Þessi svarti foli (verður vonandi grár),  er undan Hóf frá Varmalæk og Grásíðu frá Grafarkoti

Gaumssonur Þessi ungi hestur er undan Gaum frá Auðsholtshjáleigu og Æru. (Safírsdóttir og Óttu)  Þetta er sá almesti prakkari sem hefur fæðst hér í mörg ár,  hann þarf að skoða og kanna allt hér í kring og honum er sko alveg sama hvar mamma hans er á meðan, mjög skemmtilegur ;) En svo á auðvitað að gefa honum nafn og þar sem þetta á að verða virðulegur stóðhestur finnst okkur ekki passa að gefa honum nöfn eins og Prakkari eða Grallari en þetta eru einu nöfnin sem okkur dettur í hug á hann ennþá svo nú er að leggja höfuðið í bleyti...    

skrifað 2. júní 2008

___________________________________________________________ 

Kynbótasýning á Sauðárkróki

Fanney fór með Kænsku frá Grafarkoti í dóm á Sauðárkróki. Kænska er fimm vetra undan Víkingi frá Voðmúlastöðum og Klassík frá Grafarkoti. Kænska er flugrúm hryssa með mjög gott tölt og við höldum að skeiðið sé innan seilingar. Efnilegt tryppi sem á eflaust eftir að bæta sig mikið í framtíðinni.

IS2003255410 Kænska frá Grafarkoti
Litur: 1550 Rauður/milli- blesótt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
F: IS1990184419 Víkingur frá Voðmúlastöðum
Ff: IS1986161001 Sögublesi frá Húsavík
Fm: IS1987284417 Dúkka frá Voðmúlastöðum
M: IS1987255412 Klassík frá Grafarkoti
Mf: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Mm: IS1974225180 Röst frá Mosfellsbæ
Mál: 143 - 139 - 66 - 143 - 29,0 - 18,0
Hófamál: Vfr: 8,5 - Va: 7,7
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 7,5 - 7,5 - 7,5 - 7,0 = 7,78
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 5,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 7,0 = 7,65
Aðaleinkunn: 7,70
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5     
Sýnandi: Fanney Dögg Indriðadóttir

Skrifað 31.05.2008

________________________________________________________________

Hróðursdóttir

 Vin kastaði hryssu 25 maí, sú er  rauðblesótt leistótt að aftan 

Fórn frá Grafarkoti.

Hryssan Fórn frá Grafarkoti fór í mjög góðan dóm í Danmörk nú um helgina. Það má segja að ferðin hafi borgað sig suður á land fyrir 7 árum,  en þá héldum við tveimur hryssum undir Sæ frá Bakkakoti og árið eftir fæddust tvær hryssur sem fengu nöfnin Huldumey og Fórn. Huldumey fór í góð fyrstu verðlaun í fyrra 5v.  8,18 bygg og 8,26 hæfil 8,23 aðaleink, á eftir að fara í dóm á þessu ári. Báðar hafa þessar hryssur hlotið 9,0 fyrir höfuð og háls.  Fórn var svo seld 4v til Danmerkur haustið 2006

IS2002255410 Fórn frá Grafarkoti
Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Saga Heste ApS v. Aage Ramsing
F: IS1997186183 Sær frá Bakkakoti
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1983286036 Sæla frá Gerðum
M: IS1992255410 Hjálp frá Grafarkoti
Mf: IS1984151101 Stígandi frá Sauðárkróki
Mm: IS1972237267 Hjálp frá Stykkishólmi
Mál: 139 - 136 - 66 - 146 - 6,0 - 27,0 - 17,0
Hófamál: Vfr.: 7,8 - Va: 6,7
Sköpulag: 9,0 - 9,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 - 7,5 - 7,5 - 7,0 = 8,23
Hæfileikar: 9,0 - 6,5 - 8,0 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 8,0 = 8,39
Aðaleinkunn: 8,33
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 5,0     
Sýnandi: Gunnar Hafdal

Fleiri folöld

Græskuson Græska kastaði brúntvístjörnóttum hesti undan Gretti frá Grafarkoti þann 16. maí.

___________________________________________________________________

Spáð og spekulerað......

Júlía   Sætur koss

Það er sko alltaf nóg að gera í sveitinni, tala nú ekki um á þessum tíma.  Júlía Jara er svona að kynnast kindunum, finnst þær nú mis skemmtilegar en hafði mikinn áhuga á þessu lambi sérstaklega af því að það fékk að drekka úr pela. Gári taldi nú betra að fylgjast með líka.

Skrifað 13.05.2008

____________________________________________________________ 

Fleiri folöld..

Komin tvö folöld í viðbót brúnskjóttur hestur undan Kímni og Gammi frá Steinnesi, og svo kastaði Trú sínu öðru folaldi brúnskjóttri hryssu undan Þrísti frá Feti. Sú er með flottan kross eða plús á snoppunni ; )

Gamms sonur Þristsdóttir

Það er svo komin síða fyrir folöld 2008 inn í uppeldi.

Skrifað 12.05.2008

___________________________________________

 ,,Nýji" traktorinn

 

Jæja Indriði sótti ,,nýja" traktorinn í dag. Og hér að ofan eru tvær myndir frá því þegar hann sýndi Indriða litla og Rakel hann. Það verður orðið þröngt í traktornum þegar Indriði Rökkvi bætist í hópinn ásamt Júlíu og Rakel að slóðadraga með afanum eða sækja rúllur. En þessi traktor er víst handa Heddu til að pakka :-)

Skrifað 08.05.2008

_____________________________________________

Vorfílingur í lofti...

   

Það er sko nóg að gera hjá þröstunum núna og hefur verið undanfarinn mánuð. En það eru allavega 8 hreiður inn í reiðskemmu og þrestirnir hafa verið út um allt að sækja efni í hreiðrin og þeim finnst við mannfólkið og hestarnir vera fyrir þeim þegar þeir eru að verkum. Hér að ofan má sjá þá á milljón að redda síðustu hlutunum áður en ungarnir koma í heiminn :-)

 

 Síðan eru hérna að ofan mynd af Gára okkar og svo af flotta traktornum hans Indriða. Rakel Gígja er þarna með afa sínum og fékk að taka smá rúnt með honum og fannst þetta ekkert smá flottur traktor.

Æra og Gaumssonur

Fyrsta folaldið er fætt, það er jarpur hestur u. Æru frá Grafarkoti og Gaum frá Auðsholtshjáleigu. Við áttum reyndar ekki von á honum svo snemma,  þó að Æra færi til Gaums í byrjun júní því samkvæmt fyrsta sónar var hún ekki fengin þá.

Skrifað 07.05.2008

________________________________________

Stórsýning Fáks

  Dívurnar í Reykjavík

Helgin fór í stórsýningu Fáks, fórum suður á föstudaginn með 8 hross á sýninguna. En við ákváðum að vera með ræktunarbú og fórum með 5 ung og efnileg hross. En það eru Grettir, Nemi, Skinna, Huldumey og Kóði. Síðan vorum við fjórar mæðgurnar í Dívuatriðinu í þetta skiptið þar sem Gréta komst ekki með okkur suður. 

Sýningin var í heildina fín þar sem mörg góð hross komu fram, en það sást á henni að ekki er generalprufa eða knapafundur fyrir aðalsýningu. Dyraverðirnir vissu ekki alltaf hvaða hurðir átti að opna og var næstum því búið að loka einu sinni á einn knapann sem kom á fljúgandi skeiði í gegnum höllina. Einnig voru þulir ekki alltaf með hlutina á hreinu og sást greinilega hvað þeir skipta miklu máli á svona sýningum. Auðveldar þeim örugglega líka mikið að hafa generalprufu eins og var gert á Sauðárkróki.

Myndir af dívunum 2008 má sjá hér.

Skrifað 04.05.2008

_____________________________________

Er vorið komið ?

Sólarlag  Sólarlag í Grafarkoti 18 april

Hér hefur verið rjómablíða undanfarna daga,  ég heyrði í lóunni fyrir nokkrum dögum fæ alltaf visst kikk þegar ég heyri dirr in dí í fyrsta skipti, þá er vorið komið hjá mér. Þrösturinn er líka komin í hesthúsið og byrjaður á hreiðurgerð neðst í skemmunni eins og undanfarin ár. Engin folöld komin ennþá en eigum von á þremur snemma í maí.Gengur vel með hrossin en það hefur fækkað um 1 starfsmann Greta farin heim að gera klárt fyrir sauðburðin svo við Stella sjáum um hrossin núna.

Hvammstangahöllin  HvammstangahöllinFyrstu áhorfendurnir Rakel Gígja, Júlía Jara og Nína Guðbjörg fylgjast með.

 

 Og stór stund var í gær 19. apríl þegar fyrsta hestaæfingin var haldinn í nýju reiðhöllinni á Hvammstanga eftir að hún varð fokheld,  en harðduglegir félagsmenn Þyts kláruðu að klæða með krossvið á útveggina og þeir voru rétt búnir þegar Dívurnar mættu á svæðið og tóku létta æfingu.                  

skr.  20 apríl 2008

 

__________________________________________

Suðurferð..

Kostur group  Hópurinn i höllinni í Auðsholtshjáleigu

 

Kostur group fór alla leið á suðurlandið, til að skoða eignina sína hann Kost sem hefur verið staðsettur á Árbakka en Fanney og Logi hafa verið ráðsmenn þar í vetur. Og auðvitað voru heimsóttir nokkrir hestamenn í leiðinni. Þetta var hin skemmtilegasta helgi vel tekið á móti okkur alls staðar og gaman að sjá frábæra aðstöðu hjá sunnlenskum hestamönnum.

_______________________________________

 

Stórsýning Húnvetnskra hestamanna

 

Kóði og Fanney Dívur Mynd 1 er af Kóða frá Grafarkoti og Fanney á æfingu og Mynd 2 er af Dívunum á æfingu.

Stórsýning húnvetnskra hestamanna var haldin föstudagskvöldið 28. mars í reiðhöllinni á Blönduósi. Þar sýndu heimamenn, bæði börn og fullorðnir hrossin sín. Fram komu ung og efnileg kynbótahross, 6 ræktunarbú, og töluvert af vel æfðum atriðum hjá börnum og unglingum úr bæði vestur og austur sýslunni auk Húnvetnsku Dívanna sem standa að sjálfsögðu alltaf fyrir sínu. Einnig komu fram fjórir íslandsmeistarar frá hestamannafélaginu Þyt og þeim var veitt viðurkenning. Jói Magg kom með skemmtilegt atriði, þar sem hann sýndi gæðingafimi sem smali á hesti sínum Lávarði frá Þóreyjarnúpi.  Þá var einnig kynntur ungur og efnilegur stóðhestur undan Hnokka frá Fellskoti og Papey frá Feti, sem heitir Meyvant frá Feti,  feikna flottur foli.

Fram komu 9 hross frá Grafarkoti á sýningunni . Við vorum með ræktunarbú og þar komu fram þau Grettir. Nemi , Huldumey og Skinna , 4 hross komu fram með Dívunum þau Kotra, Kardináli, Auður og Eldur frá Sauðadalsá sem er 1/2 ættaður frá Grafarkoti. Og svo reið Fanney Kóða ungum og efnilegum töltara  í atriðinu íslandsmeistarar.

 Dívurnar á sýningunni...

Hér má svo sjá myndir sem Guðný á Bessastöðum tók á sýningunni.

Skrifað 30. Mars

_______________________________________________________

Úrslit ís-landsmótsins 2008 á Svínavatni

 mynd af vef Hestafrétta.is

 

Í gær var ís-landsmótið á Svínavatni. Metþáttaka var og mjög margir áhorfendur voru mættir til að sjá gæðingana. Frá Grafarkoti keppti bara Hedda að þessu sinni en hún fór með Gretti í B-flokk og Huldumey í tölt.

Hér koma úrslit mótsins.

Úrslit tölt
1  Jón Páll Sveinsson  Losti frá Strandarhjáleigu
2  Skapti Steinbjörnsson  Gloppa frá Hafsteinsstöðum
3  Jakob Svavar Sigurðsson  Fróði frá Litlalandi
4  Gunnar Arnarsson  Ösp frá Enni
5  Grettir Jónasson  Kjarni frá Varmadal
6  Nikólína Ósk Rúnarsdóttir  Snoppa frá Kollaleiru
7  Hans Kjerúlf  Júpiter frá Egilsstaðabæ
8  Eyvindur Mandal Hreggviðsson  Gneisti frá Auðsholtshjáleigu
9  Mette Mannseth  Baugur frá Víðinesi

Úrslit A-flokkur
1  Jakob Svavar Sigurðsson  Vörður frá Árbæ
2  Páll Bjarki Pálsson  Ófeig frá Flugumýri
3  Þorbjörn Hreinn Matthíasson  Óskahrafn frá Brún
4  Agnar Þór Magnússon  Ágústínus frá Melaleiti
5  Birna Tryggvadóttir  Frægur frá Flekkudal
6  Sölvi Sigurðsson  Sólon frá Keldudal
7  Baldvin Ari Guðlaugsson  Hængur frá Hellu
8  Sigurður Ragnarsson  Músi frá Miðdal
 
Úrslit B-flokkur

1  Jakob Svavar Sigurðsson  Kaspar frá Kommu
2  Þórður Þorgeirsson  Tígull frá Gígjarhóli
3  Þorbjörn Hreinn Matthíasson  Nanna frá Halldórsstöðum
4  Tryggvi Björnsson  Oratoría frá Syðri Sandhólum
5  Artemisia Bertus  Rósant frá Votmúla
6  Svavar Örn Hreiðarson  Johnny frá Hala
7  Fjölnir Þorgeirsson  Kokteill frá Geirmundarstöðum
8  Gunnar Arnarsson  Örk frá Auðsholtshjáleigu
9  Grettir Jónasson  Kjarni frá Varmadal

 

Skrifað 09.03.2008

_____________________________________

Tamning.

Tókum hryssu í tamningu nú nýlega frá Kjörseyri henni fylgdu þessar skemmtilegu vísur, ortar af honum Onna á Kjörseyri.

 

Hryssan er kvik og tiplar á tám
teygir sig eins og sproti
Nú er hún farin í framhaldsnám
hjá frúnni í Grafarkoti.
 
Herdís kann að höndla slíkt
hæfnina fram að lokka
Tryppinu kennir af kurteisi og mýkt
og kvenlegum yndisþokka    
          höf :  Gerorg Jón Jónsson  Kjörseyri 

Skrifað 06.03.'08                                                                                                       

 

___________________________________

3 gullmolinn

 Júlía Jara, Rakel Gígja ,,stóra systir" og nýji prinsinn:-

Já hann er fæddur... það er kominn strákur í Grafarkotsfjölskylduna en Kolla og Raggi eignuðust strák miðvikudaginn 27. febrúar sl. Hann var tæpar 14 merkur og 52 cm. Þannig að núna er Rakel Gígja orðin ,,stóra systir". Fleiri myndir af honum má sjá hér.

 

________________________________________

Þar kom að því..

   

Jæja loksins hafðist það. Búið að loka húsinu,  var byrjað í gær í æðislegu veðri og klárað í dag, þetta er mjög ánægjulegur áfangi. Þá er bara tengibyggingin eftir  :- ) 

skrifað 4 .mars 2008

________________________________________________

Fjórgangur á Blönduósi

Þann 29 febrúar var haldið fjórgangsmót á Blönduósi þátttaka var ágæt í öllum flokkum. Við fórum héðan Eydís Hedda og Gréta og svo ætluðu Fanney og Logi að koma með hesta með sér að sunnan, en vegna veðurs og ófærðar þar hættu þau við það en þess í stað tókum við með tvo unga fola með handa þeim til að keppa á, svona svo þau gætu verið með. Engin dómari fekst svo Tryggvi Björns og Valur Vals urðu að taka að sér dómarastörf sem þeir unnu ágætlega. Við Fanney lentum báðar í B úrslitum í 1, flokki á þeim Gljáa og Nema en Eydís stóð sig best af okkur og lenti í 5. sæti í 2. flokki á henni Spes sinni.

A-Úrslit, opinn flokkur:

1. Helga Una Björnsdóttir á Samba frá Miðhópi, 6.3

2. Sigríður Lárusdóttir á Erla frá Gauksmýri, 6.0

3. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir á Spóa frá Þorkelshóli, 5.9

4. Víðir Kristjánsson á Djákna frá Stekkjardal, 5.7

5. Jóhann Albertsson á Nótt frá Gauksmýri, 5.6

 

A-Úrslit, áhugamannaflokkur:

1. Anna Jonasson á Tvinna frá Sveinsstöðum, 5.3

2. Helga Rós Níelsdóttir á Glaðværð frá Fitjum, 5.2

3. Íris Eysteinsdóttir á Hljómi, 5.2

4. Þorgeir Jóhannsson á Apríl frá Ytri-Skjaldarvík, 5.1

5. Eydís Indriðadóttir á Spes frá Grafarkoti, 4.7

 

A-Úrslit, unglingaflokkur:

1. Harpa Birgisdóttir á Þrótti frá Húsavík, 6.0

2. Rakel Rún Garðarsdóttir á Lander frá Bergstöðum, 5.3

3. Elín Harðardóttir á Móheiður frá Helguhvammi, 5.2

4. Karen Guðmundsdóttir á Burkna, 5.0

5. Jónína Lilja Pálmadóttir á Viður frá Sigmundarstöðum, 4.7

________________________________________________ 

Það mjakast..

  

 Smá fréttir af byggingarmálum nú er búið að klæða allar hliðar á reiðskemmunni svo þetta er að verða að húsi, bara spennandi, : ) en nú er bara að bíða eftir þíðu veðri svo hægt sé að setja einingarnar með góðu móti á þakið og loka húsinu.

 

_________________________________________

Dívuæfing.

  Æfing 24 feb   

Í dag héldu dívurnar sína  fyrstu æfingu þetta árið með hesta  í Grafarkoti. við tókum nokkrar myndir að gamni svona til að sína æfingaaðstöðuna okkar, en Dívurnar eru að koma saman  fimmta sinn.  Alltaf er þetta jafn gaman þó æfingaaðstaðan sé nú svona upp og ofan, eins og sést á þessum myndum. Núna urðum við t.d  að æfa út á túni, því gerðið er hálfullt af snjó þannig að þar var bara hægt að ríða fet, en svo þegar fer að nálgast sýningar keyrum við á Blönduós um 50 mín akstur svona 3-4 sinnum.  Enda höfum við áhyggjur af því þegar reiðhöllin á Hvammstanga verður komin í gagnið að æfingarnar verði allt of auðveldar :-)

skrifað 23.02 2008

 

_____________________________________

Búvísindaferð..

Hvanneyringar

 

Fengum skemmtilega heimsókn á föstudaginn en þá komu nemendur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri við á leið sinni norður í land.  Þau skoðuðu hesthúsið og hrossin og fengu smá fræðslu um megin makmið okkar í hrossabúskapnum. Skemmtilegur og léttur hópur með brennandi áhuga á öllum hliðum búskapar.

Skrifað 16.02.2008

____________________________________

 

Töltmót

Fyrsta töltmótið á Blönduósi var haldið föstudagskvöldið 15 febrúar. Þátttaka var góð., 20 í 1. flokki 14 unglingar og 9 i áhugamannaflokki. Búið er að endurbæta höllina, laga gólfið sem var reyndar í það mýksta að mínu mati Talsvert var af áhorfendum sem létu fara vel um sig á nýjum áhorfendabekkjum. Hedda og Greta fóru með 3 hross héðan, þau Gretti, Huldumey og Gljáa, Huldumey stóð sig best af þeim,  lét þungt gólf ekkert á sig fá.

Úrslit.

1. flokkur

1. flokkur.

  1. Helga Una Björnsdóttir og Samba frá Miðhópi 6,33
  2. Herdís Einarsdóttir og Huldumey frá Grafarkoti 6,17
  3. Tryggvi Björnsson og Óratoría frá Syðri- Sandhólum 6,17
  4. Ólafur Magnússon og Eðall frá Orrastöðum 5,83
  5. Víðir Krístjásson og Djákni frá Stekkjardal 5,67 vann B-úrslit

2. flokkur

  1. Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi 5,67
  2. Steinbjörn Tryggvason og Spói frá Þorkelshóli 5,33
  3. Hörður Ríkarðsson og Knár frá Steinnesi 5,17 
  4. Geir  Ólafsson og Kall frá Dalvík 5,0
  5. Ósvald Indriðason Valur frá Höskulsstöðum 4,17

Unglingar

Unglingaflokkur

  1. Harpa Birgisdóttir og Þróttur frá Húsavík 5,67
  2. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum 5,50
  3. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi 5,0
  4. Jónína Lilja Pálmadóttir og Hending frá Sigmundarstöðum 4,67
  5. Stefán Logi Grímsson og Galdur frá Gilá 4,33
  6. Fríða Mary Halldórsdóttir og Krapi 4,17

Skrifað 16.02.2008

_________________________________________

Íslenskur vetur..

vetrarmynd

Þar kom að því. Alvöru íslenskur vetur, aldrei friður, öll veður í gangi,  oftast vindur, og það af af öllum áttum. Ekki mjög skemmtilegt,  eða auðvelt að stunda tamningar utandyra,  allavega gengur illa hér í Grafarkoti að koma lengra komnu hrossunum í einhvert form, kannski hægt að fara í smá útreiðartúr 2svar í viku,  og núna er komin mikill snjór yfir allt þannig að  það er bara brokk og stökk í gangi. Yngri hrossin fá ósvikna innivinnu eru öll orðin vel reiðfær mjúk og fín. En svo er bara að bíða, eftir betri tíð,  við búum jú á Íslandi og höfum fengið svona vetur áður,  var bara búin að gleyma því  :-)

 __________________________________________

Dívurnar

 Í action á Króknum 2007

Jæja þá erum við dívurnar byrjaðar að hittast á ný. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt hjá okkur að hittast og reyna að velja lög, labba prógrammið, breyta og bæta. Síðan förum við á hestbak um miðjan febrúar og æfum þá atriðið á hestum, hittumst etv. 3svar og löbbum prógrammið fyrst áður en við förum að æfa á hestunum.

Skrifað 28.01.2008

____________________________________

Tjarnartölt..

     Grettir frá Grafarkoti         

myndir teknar á Tjarnartöltinu .

Þá er fyrsta vetrarmótið afstaðið.  Í gær 26. jan var haldin  töltkeppni á ís á Gauksmýrartjörninni , veðrið var svona og svona ansi kalt og gekk á með dimmum eljum fyrir hádegið en birti upp þegar leið á daginn.  Þátttaka var bara nokkuð góð þrátt fyrir veðrið eða um 30 skráningar. Við fórum tvær héðan og kepptum báðar í 1. flokki Eydís ákvað að keppa á síðustu stundu og fékk Gljáa Hróðsson og gekk þeim prýðilega þrátt fyrir litla samhæfingu, Hedda fór með stóðhestinn Gretti í sína fyrstu keppni og stóð hann sig framar vonum var efstur eftir forkeppnina en var settur í annað sætið í úrslitunum. Mörg góð hross mættu til leiks þó janúar sé ekki liðinn.

Úrslit;

1. flokkur.

  1. Ingunn Reynisdóttir og Rakel frá Sigmundarstöðum
  2. Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti
  3. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri
  4. Helga Una Björnsdóttir og Ugla frá Kollaleiru
  5. Pálmi Ríkharðsson og Hildur frá Sigmundarstöðum

2. flokkur.

  1. Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir og Spói frá Þorkelshóli
  2. Guðný Helga Björnsdóttir og  Heron frá Seljabrekku
  3. Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Ásgarði
  4. Kjartan Sveinsson og Fía frá Hólabaki
  5. Þorgeir Jóhannson og Apríl frá Ytri-Skjaldarvík 

Barna og unglingaflokkur       

  1. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi
  2. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum
  3. Fríða Mary Halldórsdóttir og Regla frá Efri - Þverá
  4. Lilja Karen Kjartansdóttir og Pamela frá Galtanesi
  5. Helga Rún Jóhannsdóttir og Rúrí frá Lækjamóti

 skrifað 27. jan 2008

           ________________________________________

Reiðhöllin..

Reiðhöllin

Reiðhallarbyggingin gengur hægt en örugglega, nú er allt að verða tilbúið til að klæða húsið með yleiningum, og verður gengið í það um leið og aðeins hlýnar í veðri. En hér er búið að vera hörkufrost undanfarna daga sem gerir okkur erfitt fyrir að nota kítti sem er notað við klæðninguna, en óneitanlega er okkur farið að hlakka til að geta farið að loka húsinu. 

Nú er hesthúsið í Grafarkoti orðin kvennavinnustaður, nú erum við þrjár sem vinnum þar allan daginn, Greta á Efri-Fitjum og Stella frá Sauðá er komnar hér til starfa svo tamningarnar ganga glatt þessa daganna,  okkur vantar bara betra veður ;)

  skrifað 14 jan  ´08                                                                         

Þrettándinn

 Álfadrottningin og álfakóngurinn....

Í dag var þrettándagleði Þyts, álfareið var frá söluskálanum sem endaði upp í Kirkjuhvammi á keppnisvelli Þyts. Þar var brenna og veitingar til sölu. Myndir frá deginum má sjá hér.

Skrifað 05.01

__________________________________

 

 

 

Hross undan Óttu frá Grafarkoti

Sál

Sál frá Grafarkoti f. 1992

Æra frá Grafarkoti

Æra frá Grafarkoti f. 1998

Órator frá Grafarkoti f. 1999

Urt

Urt frá Grafarkoti f. 2000

Grásíða

Grásíða frá Grafarkoti f. 2001

Grettir frá Grafarkoti f. 2002

 

Grafarkot hrossarćkt | 531 Hvammstangi | Sími 451 2923 | GSM 860 2056 / 848 8320 | grafarkot@grafarkot.is