Röst frá Mosfellsbæ
Röst frá Mosfellsbæ er hin stofnhryssan okkar. Hún var u. Blesa frá Kjartansstaðakoti og Rauðku frá Mosfellsbæ. Röst gaf mörg mjög hæfileikarík hross, öll alhliða. Hún varð 26 v, hún var felld árið 2000.
Dómur:
Sköpulag: 8 - 8 - 8 - 7,5 - 8,5 - 7,5 - 8 = 7,89
Hæfileikar: 8 - 7,5 - 8,5 - 8 - 8 - 8- 8 = 8,02
Aðaleinkunn: 7,95
Afkvæmi Rastar:
- Nátthrafn frá Grafarkoti, brúnn f. 1985 u. Viðari frá Viðvík. Nátthrafn hlaut 7,83 fyrir sköpulag og 8,37 fyrir hæfileikar. Aðaleinkunn því 8,10.
- Óregla frá Grafarkoti, rauðblesótt glófext f. 1986 u. Seif frá Sauðárkróki. Óregla slasaði sig á afturfæti ung og var aldrei tamin. Er ein af ræktunarhryssunum okkar.
- Klassík frá Grafarkoti, rauð f. 1987 u. Otri frá Sauðárkróki. Klassík hlaut 7,55 fyrir sköpulag og 8,34 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 7,95. Klassík er ein af ræktunarhryssum Grafarkots.
- Hraundal frá Grafarkoti, rauður f. 1989 u. Hervari frá Sauðárkróki.
- Sátt frá Grafarkoti, brún f. 1990 u. Glað frá Sauðárkróki.
- Hvati frá Grafarkoti, rauðblesóttur f. 1991 u. Goða frá Sauðárkróki.
- Útlagi frá Grafarkoti, rauðblesóttur f. 1992 u. Stíganda frá Sauðárkróki.
- Orða frá Grafarkoti, rauðstjörnótt, f. 1993 u. Topp frá Eyjólfsstöðum.
- Spönn frá Grafarkoti, rauðblesótt glófext, f. 1995 u. Gassa frá Vorsabæ II. Spönn hlaut 7,76 fyrir sköpulag og 7,89 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 7,84.
- Gráða frá Grafarkoti, rauð fædd 1996 u. Andvara frá Ey I. Gráða er ein af ræktunarhryssum Grafarkots
- Rauðskinni frá Grafarkoti, rauður f. 1998 u. Roða frá Múla. 1. verðlauna stóðhestur. Hann var sýndur 2003 og hlaut fyrir byggingu 7,80 og hæfileika 8,20 aðaleink 8,05. Þar af hlaut hann 8,5 fyrir tölt, vilja og geð og fegurð í reið 5 vetra gamall. Rauðskinni er nú í eigu Sharon Johnsson Crow River Farm í Minneasota USA.
- Náð frá Grafarkoti, rauðstjörnótt f. 1999 u. Roða frá Múla.