
Hjálp frá Stykkishólmi u. Sörla frá Sauðárkróki og Sótu frá Innra-Leiti, fyrsta ræktunarhryssan okkar, hún fékk 1.v. fyrir afkvæmi 1994. Hún var felld árið 2000, 28 vetra gömul.
Afkvæmi Hjálpar:
- Nestor frá Grafarkoti, fæddur 1982 u. Frey frá Flugumýri.
- Eldvör frá Grafarkoti, fædd 1983 u. Eldi frá Stóra-Hofi. Ræktunarhryssa í Grafarkoti
- Njála frá Grafarkoti, fædd 1985 u. Eldi frá Stóra-Hofi. Seld til Danmerkur.
- Kímni frá Grafarkoti, fædd 1986 u. Kjarval frá Sauðárkróki. Ræktunarhryssa í Grafarkoti.
- Ótta frá Grafarkoti, fædd 1987 u. Otri frá Sauðárkróki. 1. verðlauna hryssa og er núna ræktunarhryssa í Grafarkoti.
- Kilja frá Grafarkoti, fædd 1989 u. Stjarna frá Melum II. Seld til Þýskalands
- Tign frá Grafarkoti, fædd 1990 u. Stíganda frá Sauðárkróki. Ræktunarhryssa í Grafarkoti.
- Kraftur frá Grafarkoti, fæddur 1991 u. Reyk frá Hoftúni. Seldur til Bandaríkjanna.
- Yngri-Hjálp frá Grafarkoti, fædd 1992 u. Stíganda frá Sauðárkróki. Seld til Þýskalands.
- Glæta frá Grafarkoti, fædd 1994 u. Hrannari frá Kýrholti. Ræktunarhryssa í Grafarkoti.
- Arfur frá Grafarkoti, fæddur 1995 u. Stíganda frá Sauðárkróki. Eigendur Kolla og Raggi.
- Græska frá Grafarkoti, fædd 1997 u. Safír frá Viðvík. Ræktunarhryssa í Grafarkoti.
- Gifta frá Grafarkoti, fædd 1998 u. Skinfaxa frá Þóreyjarnúpi. Nú í eigu Kolbrúnar Kristjánsdóttur eða mömmu/ömmu/langömmu...