Hafa samband | Prenta síđuna 
 

2007

 

 

 

Uppskeruhátíð barna og unglinga

Fríða Marý og Jónína Lilja

Var haldin í félagsheimilinu á Hvammstanga í gær. Þáttaka var mjög góð, farið var yfir starf æskulýðsnefndar á árinu og veitt viðurkenningaskjöl. Knapi ársins í barnaflokki var Fríða Marý Halldórsdóttir og knapi ársins í unglingaflokki var Jónína Lilja Pálmadóttir. Myndir frá deginum. Uppskeruhátíð fullorðinna verður haldin í kvöld laugardaginn 3.nóvember og þar verður sko fjör!!

skrifaði 03.nóvember 2007

_______________________________________________

Að skella á...

Flauta DynsdóttirKasper og Kufl Klettssynir Kasper og Kufl Klettssynir

 

Jæja nú er allt orðið tilbúið í hesthúsinu og hægt að far að fylla það af hrossum, það mun reyndar ske í rólegheitum því sum trippin eru ekki einu sinni komin af fjalli, en þeir bæir sem eftir eiga að smala hljóta að fara í það næstu daga. Þetta eru alltaf spennandi tímar þegar farið er að eiga við trippin og finna  hvernig þau bregðast við. Fyrir ræktunarmanninn er þetta annar hápunkturinn í ræktuninni, mest spennandi er þó þegar merarnar eru að kasta, þegar stormað er út í hólf til að vita hvað hefur komið í heiminn. Þennan veturinn verða flest trippin 4, 5, 6  vetra undan Dyn frá Hvammi eða 7 svo eru 3 undan Klett frá Hvammi, 6 undan Rauðskinna frá Grafarkoti (1v Roðasonur), 3 undan Gammi Steinnesi og svo eru 2 undan Víkingi Vomúlastöðum. Svo verða líka inni hross undan Parker frá Sólheimum, Hróðri frá Refsstöðum, Roða frá Múla, Sæ frá Bakkakoti og Eið frá Oddhóli. 15 af þessun hrossum eru alveg ótaminn það eru hryssur á 4 vetur og geldingar á 5 vetur. Svo það verður nóg í að líta næstu vikurnar fyrir Heddu og Loga en þau verða við frumtamningarnar fram í desember.

 skrifað 27 oktober

_____________________________________________________

Efnilegasti knapinn

 Fanney og Dögg

 Nú er búið að gefa út tilnefningar um knapa ársins í öllum flokkum hestaíþrótta.  Við erum mjög stolt af því að Fanney Dögg er tilnefnd í flokknum "Efnilegasti knapinn". Fimm ungmenni eru tilnefnd. Þetta er í annað sinn sem Fanney hlýtur þessa viðurkenningu hjá fulltrúum fréttamanna í hestaíþróttum og hestamennsku.

 Skrifað 23. október 2007

___________________________________________

Gári haust 2007 Gári Þetta er hann Gári minn, hann er 1og hálf ars gamall collie hundur frá fjölskyldunni á Tunguhálsi. Ákaflega  fallegur hundur að mínu mati og fékk nafnið af því tilefni, fyrir tveimur dögum fórum við saman í smágöngutúr og tók ég þá þessar myndir af honum, flott litasamsetning ; ) (Smellið á myndinar til að stækka þær )

Skrifað 15. október 2007

_______________________________________________

Haust

 

Jæja það fer ekkert á milli mála að veturinn nálgast, það snjóaði í fjöll í fyrradag, og dagurinn farin að styttast ansi mikið. Það er búið að setja í "kaupstaðinn" þau lömb sem fara þangað, fjárbændurnir misstu sig aðeins í ásetningnum eins og í fyrra ;)  Fallþunginn var mjög góður 20,36 og flokkunin góð. þyngsta lambið var hvorki meira né minna en 29,7 (fallþungi) við höfum aldrei lagt inn svona stórt lamb enda var hann 70 kg á fæti.                                                                  

Við erum búin að klára að steypa grunninn fyrir skemmuna þá er öll steypuvinna að mestu búin, eigum þó eftir að steypa tvo 4m veggi fyrir tengibygginguna.  Þessi viðbót við hesthúsið er um 500 fermetrar svo það verður bara góður göngutúr ef maður labbar út í öll horn sem eru undir þaki þarna niður frá ; ) Annars er lítið að ske í hrossunum á meðan byggingarvinnan stendur yfir enda ágætt að taka smáfrí, við erum líka að fara að taka skítinn úr kjallaranum og þrífa hesthúsið svo allt verði nú hreint og fínt áður en frumtamningarnar hefjast. Það er fullt af spennandi tryppum sem koma inn í vetur svo manni er bara farið að hlakka til að eiga við ungdóminn.  

 Nemi 4v                                                                            

 Þessi bráðefnilegi foli verður t.d tekinn inn núna í nóvember hann er fæddur 2003 og heitir Nemi frá Grafarkoti undan Dyn frá Hvammi og Kæti frá Grafarkoti.

 skrifað 10 okt . 07

____________________________________

Óvænt fjölgun

Það fæddist lamb í Grafarkoti 22. september. Kom mjög óvænt. En annars var verið að vigta í dag.

Myndir frá deginum!

_______________________________________

Skrifað 29.09.´07

Alltaf sér maður eitthvað nýtt.

Undanfarnar tvær vikur hefur veðrið verið með eindæmum leiðinlegt, alltaf úrkoma og hvasst. Nágrannar okkar hafa verið að reyna að ná heyi hér fyrir neðan í sirka 10 daga og ekkert gengið. Í fyrradag fauk megnið af heyinu og í gær (nágrannarnir greinilega búnir að fá nóg) í snjókomu tóku þeir sig til og rökuðu afganginum af heyinu saman. Og hinu megin við okkur var verið að slá, hef aldrei séð fólk í heyskap í snjókomu fyrr ;)

Annars gengur allt eins og það á að gera hér í Grafarkoti, við erum löngu búin að heyja og erum í staðinn búin að vera að steypa fyrstu steypu í reiðskemmunni. Svo það er allt að gerast, ætlum að reyna að klára aðra steypu í þessari viku. Taka semsagt rúmlega helminginn af veggjunum, þá fer að koma dálítil mynd á þetta.     

Skrifað 25 sept

______________________________________________________

Smalamennskur

Þessa vikuna höfum við verið að smala í Vatnsnesfjallinu. Þannig hagar til hér að við getum bara sleppt kindunum okkar upp um túnhliðið og þær koma sér sjálfar upp í fjall, svo á haustin fer hver bóndi og smalar fyrir ofan hjá sér kannski einu sinni eða tvisvar. Við fórum á þriðjudag og smöluðum hér fyrir ofan Grafarkot í fínu veðri, fengum meirihlutan af okkar kindum en þær eru svo sem ekki mjög margar eða 80 fullorðnar + á annað hundrað lömb. Smöluðum svo fyrir ofan Hvammstanga á miðvikudag og þá fengum við að finna til tevatnsins því það var bæði mjög hvasst og þvílíkt úrfelli enda gekk smölunin upp og ofan. Á morgun laugardag eru svo hinar eiginlegu göngur í Vatnsnesfjalli þá er réttað í Hamarsrétt og Þverárrétt vonandi verður veðrið skaplegt , en þetta er alltaf mjög skemmtilegur dagur að okkar mati héðan fara 6 gangnamenn + aukamenn eða hundar eins og þeir eru kallaðir.

Framkvæmdir..

 

Þann 28 ágúst var byrjað að taka grunnin að nýrri reiðskemmu hér í Grafarkoti, Húsið er límtrés hús. 30*15 að innanmáli, tengibygging verður milli hesthúss og reiðaðstöðu, þetta verður frábær viðbót við aðstöðuna sem fyrir er.

Skrifað 30.08.´07

_______________________________________

 

Það óumflýjanlega

 

 

 

Það er víst gangur lífsins, að ef við lifum eldumst við, og svo er víst um hestana okkar líka. En síðastliðinn þriðjudag felldum við 3 höfðingja sem hafa verið með fjölskyldunni í um 20 ár. Þá Móses Páfa og Nátthrafn, allir voru þeir komnir vel yfir tvítugt Móses var 28 vetra, Páfi 25 vetra og Nátthrafn 22 vetra. Allir höfðu þeir verið á eftirlaunum í nokkur ár og fengið að ráða lögum og lofum í hrossastóðinu. Þessir þrír hestar voru okkur mjög nátengdir. Móses og Páfi voru aðalreiðhestar stelpnanna á yngri árum og kenndu þeim ótal margt. Nátthrafn var stólpagæðingur með 8,37 fyrir hæfileika í kynbótadómi, einstakur ljúflingur sem Fanney reið frá 10 ára aldri. Saman náðu þau góðum árangri í keppnum, s.s. þriðja sæti í barnaflokki á LM 1998. En Nátthrafn slasaðist á fæti 14 vetra og varð eiginlega aldrei góður eftir það. Í vor sem leið tókum við eftir því að þeir voru að verða ansi stirðir og gamlir og þá tókum við þessa erfiðu ákvörðun að þetta yrði síðasta sumarið þeirra. Ekki kom til greina annað en að þeir færu allir saman svo nátengdir voru þeir. En því er ekki að neita að þriðjudagurinn var okkur öllum frekar erfiður. 

Skrifað 30.08.´07

 _______________________________________

Tunglið tunglið taktu mig....

Þessi mynd var tekin í gærkvöldi en tunglið var fullt og mjög fallegt.

Skrifað 28.08.´07

______________________________________

Fyrsta skóflustungan tekin á nýrri reiðhöll á Hvammstanga

 

Föstudaginn 24. ágúst var fyrsta skóflustungan tekin á Hvammstangahöllinni. Formaðurinn Sigrún Þórðardóttir tók skóflustunguna. Indriði var mættur með myndavélina og hér að ofan eru tvær myndir frá athöfninni. Seinni myndin er af stjórn hestamannafélagsins og stjórn Hvammstangahallarinnar. Á myndina vantar Steinbjörn Tryggvason og Kjartan Sveinsson

 

Skrifað 28.08.´07

__________________________________________

Reiðtúr á Gauksmýri

Kolla og Rakel 

Í síðustu viku fórum við ríðandi út á Gauksmýri og út að borða. Rakel Gígja fór í fyrsta langa reiðtúrinn sinn, var fyrir framan hjá mömmu sinni á honum Sölva gamla. Svo þegar við vorum búin að borða á okkur gat á veitingastaðnum riðum við til baka. Rakel Gígja harðneitaði að fara í bílinn til Eydísar og fór því aftur ríðandi heim. Myndir frá ferðinni.

 

Skrifað 21.08 2007

_______________________________________________________________________

Síðsumar...

Einhvern veginn er það þannig að eftir verslunarmannahelgina fer maður að finna að haustið nálgast, kannski er það dimman og kaldari kvöld, sum hrossin byrja að loðnast aðeins og svo byrjar oft undirbúningur fyrir skóla,  við drögum undan yngri hrossunum og gefum þeim frí fram á haustið, einhvern veginn finnst mér hrossin eiga skilið frjálsræði, dálítinn tíma á ári hverju. En í staðinn eru það eldri og reyndari hestarnir sem taka við aðalhlutverkinu. Í dag eru c.a 3 vikur þangað til að smalamennskur byrja hér í Vatnsnesfjalli Hamarsrétt er 15 sept, og upp úr mánaðarmótum fara Víðdælingar fram á heiði og Miðfjarðarrétt og Hrútafjarðarrétt er líka sömu helgi þ.e. 8 sept.

Kvennareiðin var í gær og eins og venjulega mikið fjör og gaman,  þemað þetta árið var kúrekar og Indiánar um 90 konur tóku þátt. Riðið var frá Reykjum í Miðfirði og út á Hvammstanga

MYNDIR

Skrifað 19.08.2007

 _____________________________________

Fuerteventura

Erum nýkomin heim úr vikuferð til Fuerteventura sem er ein af Kanaríeyjunum. Ferðin var mjög fín og gerðum við helling.

Eydís er búin að vera dugleg að blogga um ferðina, endilega kíkið á það.

Myndir má sjá hér.

Skrifað 09.08.2007

_______________________________________________________

Loksins......

 

 Sál og Tvinnadóttir

Jæja loksins kom síðasta folaldið í nótt og okkur varð af ósk okkar fengum brúna hryssu undan Sál Óttudóttur og Tvinna mjög fallegt folald. skrifað 26 júlí 2007

Erum búin að setja inn myndir af 2006 árg inn í "ungar hryssur" klikka á hrossarækt.

Dagur 4

 Var síðasti dagurinn í þessari hestaferð þá riðum við frá Fitjum og yfir hálsinn ofan í Miðfjörð , riðum meðfram Miðfjarðaránni að Ósi og þaðan heim. Hrossin voru ansi heimfús svo það var frekar hratt riðið síðasta áfangan. Niður við Norðurbraut  var ákveðið að telja hópinn vandlega svo við vissum nákvæmlega hvað við vorum með mörg hross í ferðinni og þau reyndust vera 44 : ) En semsagt velheppnaðri hestaferð lokið.

Dagur 3

 Dóri, Raggi og Logi

Í gær riðum við frá Hvoli að Efri-Fitjum til Grétu og Gunnars.

Myndir komnar inn á myndasíðuna.

Skrifað 19.07.2007

_________________________________________

Dagur 2 í hestaferðinni

 mynd tekin í Mjóadalsskarðinu

Eins og áður hefur komið fram að þá fórum við í gær frá Sauðá, upp Hlíðardal, þaðan upp í Mjóadal, yfir Mjóadalsskarðið, meðfram Þrælsfellinu (riðum framhjá Grákollutjörn) og upp á Þröskuldinn og niður Ormsdalinn og enduðum á Hvoli í vöfflum umm,, takk takk fyrir okkur Halldóra. Hafdís og Hjördís bættust við í dag þannig að við vorum 10 sem riðum.

Veðrið var æðislegt logn og sól, útsýnið ægifagurt gaman að eiga svona dag í fjallinu. Ferðin gekk ljómandi vel erum með um 40 hross, enduðum reyndar í smá eltingaleik þar sem Logi öðru nafni SORRO fór mikinn ásamt fleirum. Dóri komst líka að því í gær hversu mikilvægt starf það getur verið að vera hornstaur:-)

MYNDIR frá því í gær!!!

Skrifað 18.07.2007

________________________________________

Hestaferð...

 

Lögðum af stað í hestaferð í gær, fórum frá Grafarkoti og út að Sauðá í rosalega góðu veðri. Út á Sauðá var smá gola en eins og Ellert segir, maður þarf ekki að fara alla leið til Kanarí. Veðrið er alveg eins og út á Vatnsnesi ,,alltaf gola":-) Ferðafélagarnir eru Kolla, Raggi, Hedda, Eydís, Fanney, Logi, Stella á Sauðá og Dóri Fúsa. Bætast etv. fleiri við í dag:-) Ekki fengu samt allir boðskort en þeir óboðnu komu nú samt með og var þetta rosa stuð... Indriði og Fanney komu með bestu samlokur sem við höfum smakkað til okkar við Hamarsréttina, þá var klukkan orðin ansi margt og ekkert okkar hafði borðað síðan í hádeginu.

Í dag verður svo farið upp Hlíðardal, þaðan upp í Mjóadal, yfir Mjóadalsskarðið, meðfram Þrælsfellinu (ríðum framhjá Grákollutjörn) og upp á Þröskuldinn og niður Ormsdalinn og endum á Hvoli.

Skrifað 17.07.´07

________________________________________

 

Bróðir Tvinna

Hrossaræktin er spennandi, þótt reynt sé að velja saman stóðhest og hryssu út frá eiginleikum þeirra veit maður samt aldrei hver útkoman verður. Í tilfelli Tvinna heppnaðist þetta mjög vel fengum frábæran einstakling undan heimaræktuðum hesti og hryssu frá þeim Sauðárkróksfeðgum, í fyrra var Sameign svo aftur haldið undir heimaræktaðan hest og fengum við rauðblesóttan hest nú í vor, fallegasta folald en svo er bara að bíða og sjá,, hvernig verður útkoman þegar allur pakkinn verður komin í ljós bygging + hæfil  :)

Hér eru tvær myndir af bróðir Tvinna undan Sameign frá Sauðárkróki og Gretti frá Grafarkoti.

 

 

Rauðblesótta hryssan á myndinni er undan Tvinna og Óreglu frá Grafarkoti

Skrifað 15.07.2007

 

___________________________________

Tvinni seldur til Sviss

Þetta var erfið ákvörðun og mikil eftirsjá í góðum hesti en hann fer á toppstað og heldur heldur vonandi áfram að gera okkur stolt af sér. Nýjir eigendur Tvinna eru Ladina og Diddi Sigurbjörnsson. Þau búa á stóru sveitasetri í Sviss með íslenska hesta og heitir það Plarenga. Slóðin á heimasíðu þeirra er http://www.plarenga.ch/ 

 

Skrifað 11.07.2007

 ______________________________________

Íþróttamót Þyts 2007

 Rakel Gígja, Kristófer og fl. voru í miklu stuði á mótinu.

Íþróttamót Þyts var haldið 7. og 8. júlí. Þátttaka var ágæt. Frá Grafarkoti kepptu, Hedda, Kolla, Eydís, Fanney og Logi. Gekk bara öllum frekar vel. 

Úrslit urðu eftirfarandi:

Fjórgangur 1. flokkur
1. Ísólfur Líndal Þórisson og Skáti frá Skáney 7,14/ 7,20
2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Spói frá Þorkelshóli 5,87/
3. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri 5,87/ 6,13
4. Herdís Einarsdóttir og Gljái frá Grafarkoti 5,73/ 5,97
5. Sverrir Sigurðsson og Taktur frá Höfðabakka 5,43/ 4,60

Fjórgangur ungmenna
1. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá 6,07/6,60
2. Helga Rós Níelsdóttir og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum 4,77/6,13
3. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili 5,43/5,80
4. Stella Guðrún Ellertsdóttir og Fákur frá Sauðá 4,13/ 4,87

Fjórgangur unglinga
1. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum 5,50/6,10
2. Björt Jónsdóttir og Dropi frá Hvoli 5,27/5,93
3. Ásta Björnsdóttir og Ísak frá Ytri-Bægisá /5,87
4. Karen Ósk Guðmundsdóttir og Þrymur frá Holti II /5,83
5. Jónína Lilja Pálmadóttir og Rakel frá Sigmundarstöðum 5,47/4,87

Fjórgangur barna
1. Fríða Marý Halldórsdóttir og Krapi frá Efri-Þverá 4,53/5,67
2. Eydís Anna Kristófersdóttir og Mökkur frá Syðri-Reykjum 3,33/5,27
3. Lilja Karen Kjartansdóttir og Pamela frá Galtanesi 2,63/3,73
4. Róbert Arnar Sigurðsson og Skjóni frá Fremri-Fitjum 3,90/3,63

Tölt T2
1. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá 6,47/6,77
2. Eydís Ósk Indriðadóttir og Gautur frá Gröf 5,77/
3. Jónína Lilja Pálmadóttir og Djarfur frá Sigmundsstöðum 3,97/3,98
4. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Funi frá Fremri-Fitjum 5,77 (datt undan í úrslitum)

Tölt 1. flokkur
1. Tryggvi Björnsson og Óratoría frá Syðri-Sandhólum  /7,39
2. Gunnar Reynisson og Sikill frá Sigmundarstöððum  /6,94
3. Einar Reynisson og Ormur frá Simundarstöðum  /6,91
4. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri  /6,56 (6,61 í B-úrslitum)
5. Pálmi Geir Ríkharðsson og Hildur frá Sigmundarstöðum  /6,22
6. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi  /6,06
B-úrslit:
7. Herdís Einarsdóttir og Gljái frá Grafarkoti /6,22
8. Eydís Ósk Indriðadóttir og Kardináli frá Grafarkoti /6,16
9. Sverrir Sigurðsson og Taktur frá Höfðabakka 6,06
10. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Hrannar frá Galtanesi 5,33/5,61

Tölt ungmenna
1. Helga Rós Níelsdóttir og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum 5,43/6,17
2. Fanney Dögg Indriðadóttir og Ári frá Grafarkoti 5,93/5,78
3. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili  /5,44
4. Stella Guðrún Ellertsdóttir og Fákur frá Sauðá 3,90/5,00

Tölt unglinga
1. Jónína Lilja Pálmadóttir og Rakel frá Sigmundsstöðum 5,90/6,28
2. Ásta Björnsdóttir og Ísak frá Ytri-Bægisá 5,77/5,44
3. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi 5,00/5,33
4. Leifur George Gunnarsson og Frami frá Efra-Þverá 4,53/4,72
5. Sylvía Rún Rúnarsdóttir og Hrókur frá Neðra-Vatnshorni 4,47/4,39

Tölt barna
1. Fríða Marý Halldórsdóttir og Stígur frá Efri-Þverá 5,00/5,50
2. Róbert Arnar Sigurðsson og Skjóni frá Fremri-Fitjum 4,27/5,50
3. Aron Orri Tryggvason og Fengur /5,44
4. Lilja Karen Kjartansdóttir og Pamela frá Galtanesi 4,07/4,72
5. Eydís Anna Kristófersdóttir og Náttdögg frá Húsatóftum 4,27/4,67

Fimmgangur
1. Svavar Örn Hreiðarsson og Johnny frá Hala /6,62
2. Reynir Aðalsteinsson og Svalur frá Sigmundarstöðum /6,26
3. Tryggvi Björnsson og Snilld frá Bjarnanesi /5,00
4. Elvar Logi Friðriksson og Skuggsjá frá Grafarkoti /4,83
5. Sverrir Sigurðsson og Halldóra frá Bergstöðum /4,64

Gæðingaskeið
1. Svavar Örn Hreiðarsson og Johnny frá Hala
2.
3.

100 m skeið
1. Einar Reynisson og Gautur frá Sigmundarstöðum tími 8,75
2. Herdís Einarsdóttir og Kapall frá Grafarkoti tími 9,00
3. Jóhann Albertsson og Tvistur tími 9,15

Myndir sem við tókum á mótinu má sjá hér.

 

Skrifað 09.07.2007

__________________________________________

 

 

Folöld 2007.

 Sameign að elta villtu folana

Það eru alltaf að koma folöld öðru hverju, og nú eiga aðeins tvær hryssur eftir að kasta, þær Aría og Sál

þið getið séð myndir af öllum folöldunum inn í uppeldi og folöld 2007.

skrifað 4 .júlí

___________________________________________

Roði frá Múla

Dögg frá Múla

Gæðingafaðirinn Roði frá Múla, verður til afnota á Litlu Pulu í seinna gangmáli. Nú í vor hafa komið hátt dæmd hross undan Roða, s.s. Freymóður frá Feti með 8,33 í aðaleinkunn, Jónína frá Feti með 8,36 í aðaleinkunn og Finna frá Feti með 8,52 í aðaleinkunn. Sædynur frá Múla bróðir Roða hlaut 8,27 í aðaleinkunn. Einnig er Dögg frá Múla undan Roða, en hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt í kynbótadómi núna í vor og varð íslandsmeistari í tölti ungmenna nú á dögunum.

skrifað 29. júní 2007

__________________________________________________________

Kostur frá Breið

Kostur frá Breið

Við fórum og skoðuðum hlutafélagshestinn Kost í gær og hann er í flottu standi hjá þjálfara sínum, Einari Reynissyni. Kostur verður til afnota á Hvalshöfða í Hrútafirði í sumar. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim köppum í gærkvöldi.

Skrifað 29. júní 2007

______________________________________________________________

Rakel Gígja 3 ára

Í dag er Rakel Gígja 3 ára, í gær var haldin afmælisveisla í Lækjarhvammi. Hér koma nokkrar myndir úr veislunni sem Indriði tók á nýju vélina:

 

Skrifað 29.06.2007

________________________________________

 Grettir frá Grafarkoti

Verður til afnota í Grafarkoti frá 17. júní og út

sumarið.

 

Grettir Grettir

 Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
F: IS1994184184 Dynur frá Hvammi
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1978257277 Djásn frá Heiði
M: IS1987255411 Ótta frá Grafarkoti
Mf: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Mm: IS1972237267 Hjálp frá Stykkishólmi
Mál: 140 - 128 - 135 - 62 - 142 - 34 - 46 - 41 - 6,4 - 30,5 - 19,0
Hófamál: Vfr: 8,8 - Va: 8,1
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 8,14
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,10
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5     
Sýnandi: Herdís Einarsdóttir

Grettir er einstaklega geðgóður og viljugur foli.                                           

 Folatollur, 40.000, m/vsk og girðingagjaldi                                                       

Nánari upplýsingar hjá Indriða í síma 860-2056

eða Heddu í síma 848-8320

 _____________________________________________

Fanney Dögg og Dögg frá Múla íslandsmeistarar

Fanney fór með 3 hross á íslandsmót barna, unglinga og ungmenna, þau Dögg, Eld og Flautu. Það gekk mjög vel, hún endaði í 9. sæti á Flautu í 4. gangi, 3. sæti á Eld í slaktaumatölti og þær stöllur Fanney og Dögg gerðu sér lítið fyrir og urðu íslandsmeistarar í tölti ungmenna á sunnudaginn.Í öðru sæti varð svo hann Órator frá Grafarkoti þannig að okkur finnst við eiga aðeins í því sæti líka  Hérna eru myndir af þeim :) "Sæti" strákurinn sem heldur í Órator er kærastinn hennar Kötlu :)

Dögg og Órator í baráttuÍslandsmeistararDögg og Fanney, Órator g Eyjó

Töltkeppni      
A úrslit Ungmennaflokkur -       
  Sæti     Keppandi    
1     Fanney Dögg Indriðadóttir / Dögg frá Múla  7,28  
2     Katla Gísladóttir / Órator frá Grafarkoti  7,11  
3     Þórir Hannesson / Viður frá Litlu-Tungu 2  6,89  
4     Elka Halldórsdóttir / Krummi frá Kollaleiru  6,83  
5     Ragnhildur Haraldsdóttir / Ösp frá Kollaleiru  4,39  (lauk ekki keppni í úrsl.)
6     Rósa Birna Þorvaldsdóttir / Bylur frá Kleifum  0,00  (reið ekki úrslit)    

Töltkeppni T2      
A úrslit Ungmennaflokkur 
  Sæti     Keppandi    
1     Valdimar Bergstað / Sólon frá Sauðárkróki  7,29  
2     Margrét Ríkharðsdóttir / Sál frá Múlakoti  6,83  
3     Fanney Dögg Indriðadóttir / Eldur frá Sauðadalsá  6,54  
4     Hekla Katharína Kristinsdóttir / Gídeon frá Lækjarbotnum  6,33  
5     Erla Katrín Jónsdóttir / Barón frá Blönduósi  6,00  

Skrifað 25. júní 2007

_______________________________________________________________

Sædynur frá Múla

Sædynur frá Múla

IS2002155490 Sædynur frá Múla
Litur: 1500 Rauður/milli- einlitt 
Ræktandi: Sæþór Fannberg
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson, Sæþór Fannberg
F: IS1994184184 Dynur frá Hvammi
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1978257277 Djásn frá Heiði
M: IS1984255490 Litla-Þruma frá Múla
Mf: IS1973157005 Gustur frá Sauðárkróki
Mm: IS1978255485 Píla frá Múla
Mál: 145 - 135 - 138 - 65 - 142 - 38 - 48 - 43 - 6,8 - 30,0 - 19,0
Hófamál: Vfr: 8,9 - Va: 8,0
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 7,0 = 8,18
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 9,0 - 9,0 - 9,0 - 8,5 = 8,33
Aðaleinkunn: 8,27
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,5     
Sýnandi: Jóhann K. Ragnarsson

Skrifað 24. júní 2007

_________________________________________________________

Hófur frá Varmalæk

Hófur var sýndur á Dalvík og hér fyrir neðan er dómur og myndir af kappanum :)

Hófur frá VarmalækHófur frá Varmalæk

IS2003157800 Hófur frá Varmalæk
Litur: 2560 Brúnn/milli- leistar(eingöngu) 
Ræktandi: Björn Sveinsson
Eigandi: Elvar Logi Friðriksson & Sveinn Brynjar Friðriksson
F: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum
Ff: IS1992135930 Léttir frá Stóra-Ási
Fm: IS1989235990 Rán frá Refsstöðum
M: IS1990257801 Kengála frá Varmalæk
Mf: IS1985157400 Mökkur frá Varmalæk
Mm: IS1978266245 Þruma frá Rangá
Mál: 144 - 133 - 138 - 64 - 139 - 36 - 44 - 42 - 6,7 - 30,0 - 18,5
Hófamál: Vfr: 9,5 - Va: 9,5
Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 7,5 = 8,02
Hæfileikar: 8,5 - 9,0 - 5,0 - 9,0 - 8,5 - 9,0 - 8,0 = 8,15
Aðaleinkunn: 8,10
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 9,0     
Sýnandi: Mette Mannseth
 

Skrifað 15. júní 2007

______________________________________________________

Tvinni frá Grafarkoti var sýndur í dag á Sörlastöðum

 

 

 


Litur: 1550 Rauður/milli- blesótt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
F: IS1996155418 Kvittur frá Grafarkoti
Ff: IS1991188120 Sproti frá Hæli
Fm: IS1986255101 Kímni frá Grafarkoti
M: IS1985257124 Sameign frá Sauðárkróki
Mf: IS1976157003 Hervar frá Sauðárkróki
Mm: IS1972257008 Drottning frá Sauðárkróki
Mál: 140 - 131 - 136 - 65 - 141 - 38 - 47 - 42 - 6,6 - 29,0 - 19,0
Hófamál: Vfr: 9,1 - Va: 8,5
Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 8,08
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 9,5 = 8,66
Aðaleinkunn: 8,43
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
  

Skrifað 13.06.2007

__________________________________          

 Úrslit á Gæðingamótinu

 Rakel Gígja, Hrafn Viggó og Vala Björk í rosa stuði á föstudagskvöldinu.
Annars eru myndir af mótinu væntanlegar á næstu dögum.

En úrslit urðu eftirfarandi:

Unghrossakeppni:

1. Huldumey frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir
2. Nemi frá Grafarkoti og Elvar Logi Friðriksson
3. Sara Sif frá Syðri Völlum og Reynir Aðalsteinsson

Barnaflokkur:

1. Fríða Marý Halldórsdóttir og Krapi frá Efri Þverá 8,39/8,43

2. Eydís Anna Kristófersdóttir og Moli frá Reykjum 8,40/8,40
3. Rakel Sunna Pétursdóttir og Vinur frá Þórukoti 7,70/7,78
4. Berglind Bjarnadóttir og Hefð frá Þorkelshóli 2 7,67/7,70
5. Lilja Karen Kjartansdóttir og Pamela frá Galtanesi 7,77/7,58

Unglingaflokkur:

1. Jónína Lilja Pálmadóttir og Rakel frá Sigmundarstöðum 8,17/8,37
2. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum 8,43/8,35
3. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi 8,01/7,99
4. Leifur George Gunnarsson og Frami frá Efri-Þverá 8,05/7,93
5. Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir og Snerting frá Reykjum 7,88/7,75

Ungmennaflokkur:

1. Helga Rós Níelsdóttir og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum 8,14/8,13
2. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili 7,82/8,06
3. Stella Guðrún Ellertsdóttir og Katla frá Fremri-Fitjum 7,55/7,50

B-flokkur

A-úrslit:
1. Akkur frá Brautarholti og Tryggvi Björnsson 8,48/8,62
2. Ormur frá Sigmundarstöðum og Reynir Aðalsteinsson 8,46/8,51
3. Dögg frá Múla og Elvar Logi Friðriksson 8,36/8,43
4. Flauta frá Tannstaðarbakka og Fanney Dögg Indriðadóttir 8,33/8,28
5. Eldur frá Sauðadalsá og Fanney Dögg Indriðadóttir (Herdís Einarsd. knapi í úrslitum) 8,21/8,24/8,27

B-úrslit:

1. Eldur frá Sauðadalsá og Fanney Dögg Indriðadóttir 8,21/8,24
2. Gljái frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir 8,21/8,20
3. Gáta frá Miðhópi og Hjördís Ósk Óskarsdóttir 8,15/8,17
4. Hrannar frá Galtanesi og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir 8,13/8,13
5. Ári frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir/Elvar Logi Friðriksson 8,10/8,09
6. Hreyfing frá Stóru Ásgeirsá og Elías Guðmundsson 8,10/8,00

A-flokkur

A-úrslit
1. Jhonny frá Hala og Svavar Hreiðarsson 8,40/8,52
2. Erla frá Gauksmýri og Tryggvi Björnsson 8,30/8,40
3. Kveikur frá Sigmundarstöðum og Gunnar Reynisson 8,28/8,31
4. Stígur frá Efri Þverá og Halldór P. Sigurðsson7,81/8,22/8,17
5.  Hvirfill frá Bessastöðum og Jóhann Magnússon 8,12/8,15


B-úrslit:
1. Stígur frá Efri-Þverá og Halldór P. Sigurðsson 7,81/8,22
2. Áki frá Hala og Svavar Örn Hreiðarsson 8,06/8,17
3. Gletta frá Stóru Ásgeirsá og Elías Guðmundsson 8,01/8,10
4. Spóla frá Stóru Ásgeirsá og Elías Guðmundsson/Guðmundur Þór Elíasson 794/7,90
5. Frostrós frá Efri Þverá og Halldór P. Sigurðsson/Leifur George 7,95/7,84


100 m skeið

1. Jhonny frá Hala og Svavar Hreiðarsson, tími: 8,28
2. Gautur frá Sigmundarstöðum og Einar Reynisson, tími: 8,61
3. Fína frá Þóreyjarnúpi og Jóhann Magnússon, tími: 8,91


150 m skeið

1. Jhonny frá Hala og Svavar Hreiðarsson, tími: 14,40
2. Fiðringur frá Stóru Ásgeirsá og Elías Guðmundsson, tími: 15,98
3. Máttur frá Áskoti og Svavar Hreiðarsson, tími: 16,18

Stökkkappreiðar

1. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Vera frá Grafarkoti
2. Jennifer Voss og Dagur frá Fremri-Fitjum
3. Fanney Dögg Indriðadóttir og Kotra frá Grafarkoti

G
læsilegasti hestur mótsins var Ormur frá Sigmundarstöðum, knapi mótsins var Fríða Marý Halldórsdóttir og hæst dæmda hryssa var Dögg frá Múla.

 

 

Skrifað 09.06.2007

____________________________________

IS2002155416 Grettir frá Grafarkoti var sýndur í dag!!!

Grettir 


Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt 
Ræktandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
Eigandi: Herdís Einarsdóttir, Indriði Karlsson
F: IS1994184184 Dynur frá Hvammi
Ff: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm: IS1978257277 Djásn frá Heiði
M: IS1987255411 Ótta frá Grafarkoti
Mf: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Mm: IS1972237267 Hjálp frá Stykkishólmi
Mál: 140 - 128 - 135 - 62 - 142 - 34 - 46 - 41 - 6,4 - 30,5 - 19,0
Hófamál: Vfr: 8,8 - Va: 8,1
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 8,14
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,10
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5     
Sýnandi: Herdís Einarsdóttir

Skrifað 05.06.2007

________________________________________

Sitt lítið af hverju !

Jæja þá eru kynbótasýningarnar í algleymingi, við erum búin að fá tvo graðhesta í fyrstu verðlaun þá Sædyn og Gretti sem báðir eru fimm vetra og þeir eru báðir undan Dyn frá Hvammi. Sædynur er sýndur á Hellu og er komin með 8,18 fyrir byggingu og 8,34 fyrir hæfil 8,27 út flott það :-) Hann fer í yfirlit eftir helgi.

Grettir var sýndur á Miðfossum og fékk 8,07 fyrir byggingu og 7,97 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 8,01. Við teljum að hann hafi verið ansi hart dæmdur fyrir tölt og fegurð í reið fékk 8,5 fyrir hvoru tveggja við teljum að hann eigi 9,0 þar, svo við ætlum að reyna aftur með hann á Blönduósi. Þá er bara að krossleggja fingur og vona að allt gangi upp aftur. Dögg fór líka í góðar tölur, 9 tölt og 8,5 fyrir allt annað fyrir utan skeið. Hlaut 8,06 fyrir hæfileika, en byggingin er ekki há eða 7,68 aðaleink 7,91. Tvinni verður sýndur í Hafnafirðinum um miðjan mánuðinn, vonandi bætir hann sig eitthvað.

Annars erum við bara á fullu í vorverkunum, verið að gera við girðingar, bera á, reyna að þrífa til í útihúsum eftir veturinn, milli þess að við bjóðum velkomin ný folöld öðru hverju, í nótt fæddist jarpur hestur undan Gretti og Urtu (M. Vakning F. Sproti frá Hæli)  eigandi að því er Eydís.  

Skrifað 2. júní 2007

________________________________________________________________

Komin tvö folöld

  

Fyrsta folaldið sem fæddist er rauðblesótt hryssa undan Græsku frá Grafarkoti og Sveini-Hervari frá Þúfu. Annað folaldið er undan Tign frá Grafarkoti og Gammi frá Steinnesi, það er rauðblesóttur hestur. 

Komin folaldasíða inn í UPPELDI.

Skrifað 26.05.2007

_______________________________________________________

Huldumey frá Grafarkoti

 

F: Sær frá Bakkakoti
M: Vakning frá Gröf

Var að koma í hús dómur á Huldumey. Siggi Matt sýndi hana á Sörlastöðum. Og erum við mjög ánægð með dóminn hennar enda mjög góð hryssa þarna á ferð!!!


Sköpulag: 9,0 - 9,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 7,0 = 8,18
Hæfileikar: 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,0 = 8,26


Aðaleinkunn: 8,23
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 5,0     
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson

Skrifað 25.maí 2007

____________________________________________

Þetta helst...

Nemi Dynssonur Nemi frá Grafarkoti

Nóg er um að vera þessa dagana. Logi er búinn að vera allan maí hjá okkur við þjálfun. Hanna fór frá okkur 16. maí og ætlar hún að vera í sumar á Sveinsstöðum. Stefnir á að fara á Hóla í haust. Sauðburðurinn er nánast búinn, gemlingurinn hennar Júlíu Jöru á þó eftir að bera og gerir það eflaust ekki strax. Rakel Gígja eignaðist tvo hrúta undan Emmu sinni, skírði þá Emma og Króna alveg sjálf. Svo hefur hún verið mjög dugleg að hjálpa Eydísi og afa sínum í sauðburðinum. Einu sinni var hún spurð hvort lömbin væru komin úr maganum á kindinni, þá hló sú stutta og sagði ,,lömbin koma úr rassinum en ekki úr maganum" hahaha.... Svo er líka erfitt að skilja þetta að dánu lömbin fari til GUÐS, leitar oft vel og lengi að þeim á himninum.

Fyrsta kynbótasýningin er í Borgarnesi á mánudaginn og er stefnan tekin á hana með fjögur hross.  

Skrifað 22.05.2007

_______________________________________

 

Lokasýningin

Dívurnar stormuðu á ,,Stórsýningu hestamanna" í Reykjavík um helgina. Atriðinu var mjög vel tekið og fengu Dívurnar mikið hrós fyrir hraða og tæknileg atriði. Dívunum fannst frábært að sýna atriðið fyrir þennan áhorfendahóp þar sem hann hafði ekki séð hópinn og atriðið áður. Oft heyrði hópurinn djúp andköf þegar rent var í sum atriðin og mikil fagnaðarlæti þegar allt tókst sem skildi.

Þetta var síðasta sýningin með Dívunum þetta árið og auðvitað er stefnan að mæta aftur að ári;-)

Og muna svo stelpur að ef eitthvað á móti blæs: ,,síðasti sjens að kyssa dívu"!!!! ...þetta kemur okkur öllum í gott skap!!!!

VIDEO AF SÝNINGUNNI.

__________________________________

 

Allt getur nú gerst....

 

Allt getur nú gerst. Á sunnudaginn komu nokkrir Hvammstangabúar ríðandi í Grafarkot og endaði það nú ekki vel þar sem Gúndi og merin sem hann var á duttu ofan í afleggjarann heim að Grafarkoti. Já, ég veit furðulegt, en lækurinn hefur verið að renna við hliðina á rörinu og gert svona líka hol í veginn sem brotnaði akkúrat undan hestahópnum. 

Skrifað 24.04.2007

                                                                           

Tekið til Kostanna !!!

Jæja þá er þessi törn afstaðin. Við erum búin að vera eins og jójó milli Grafarkots og Sauðárkróks síðan á fimmtudag í síðustu viku því 20. og 21. apríl var sýningin Tekið til kostanna. Við vorum þar með fimm Óttuafkvæmi og svo voru Huldumey og Dögg í atriði sem kallaðist Brot af því besta úr Húnaþingi. Hedda, Kolla og Eydís voru í Dívunum með þrjú hross. Þau Kardinála, Vikar og Kotru. Fanney var líka með Flautu í flottu atriði frá Hólum. Þannig að frá okkur hafa verið 10 hross í sýningunni. Þessi sýning var dálítið öðruvísi en undanfarin ár, meira um æfð atriði og bryddað upp á nýjungum s.s farið yfir hvað það er margt líkt með aðferðum Hesta-Bjarna og því hvernig er unnið með hestana í dag. Þetta var skemmilegt atriði og Toni kom á óvart, hvað hann er góður leikari :-) Einnig voru sýnd gömul reiðföt, reiðtygi ofl. Við sáum sýninguna ekki í heild sinni, en t.d fannst okkur eitt atriði mjög flott, en það voru þeir Tóti og Kraftur sem sýndu alveg frábærar æfingar. Erfiðar æfingar á tölti, brokki og stökki - frábært atriði, en samt var einn ljóður á, Tóti var hjálmlaus :-(  en semsagt góð sýning. 

MYNDIR

skrifað 23. apríl 2007       

                                                                                                    

 Svona er lífið.......

Setning sem er ekki í svo miklu uppáhaldi hjá sumum í fjölskyldunni. En á fimmtudagskvöld urðum við fyrir því óhappi að það sluppu sjö hross úr girðingunni á Völlum og niður á veg. Við vorum strax látin vita og þegar við vorum að koma hrossunum á sinn stað með hjálp Syðri- Valla hjóna tek fram að við vorum á þremur bílum tveir voru fyrir norðan hrossin annar  með hasard ljósin á og hinn stefnuljós og einn fyrir aftan lika með hasard ljós og þrír gangandi, kom bíll með bílstjóra sem var greinilega ekki með athyglina í lagi, hann keyrði fram hjá báðum norðari bílunum án þess að hægja á og þrátt fyrir að hann  væri  blikkaður á fullu af bílnum sem var fyrir aftan keyrði þessi bílstjóri beint á hrossin,,, sem betur fer slapp fólkið í bílnum og fólkið sem var gangandi án þess að slasast, en þarna misstum við tvö hross tamin reiðhest og ungan fola sem bundnar voru góðar vonir við. Þetta var hræðileg sjón og hefði ekki átt að ske, hefðu allir verið með athyglina í lagi.......

                                                                                             

Páskareiðtúr.

Páskareiðtúr Logi og Raggi

 Fórum í góðan reiðtúr á föstudaginn langa, en þá skelltum við okkur með rekstur út á Höfðabakka. Veðrið var frábært logn og 5 stiga hiti, settum allt út úr húsinu nema graðhestana milli 20 og 30 hross, vorum 5 sem riðum, Hedda, Fanney, Logi, Raggi og Hjördís, svo voru þrír á bílum Kolla og Rakel, Indriði, og svo Eydís og Júlía, ferðin gekk nú hálf brösulega í byrjun enda mikið fjör í hrossunum, en svo hafðist nú að beina þeim á rétta braut, og allt gekk vel eftir það.

                                                                        

Óttuafkvæmin í gærkvöldi á Dymbilvikusýningunni

Grásíða, Órator, Æra, Urt og Grettir

Dymbilvikusýningin var haldin í gærkvöldi og við mættum með Óttuafkvæmin sem sjást á myndinni hér að ofan og það eru þau: Grásíða, Órator, Æra, Urt og Grettir. Einnig var Fanney með Dögg í atriði með Roða og systkinum hans, Söru og Sædyn. Sýningin var góð og skemmtilega frjálsleg, en þó fannst okkur vanta þann þátt sem er nauðsynlegur á svona sýningum og það er sýningaskrá, þar sem ættir hrossanna koma fram ásamt fleirum upplýsingum. Það voru mörg góð hross á sýningunni og gaman að koma á sýningu sunnan heiða.

Skrifað 05.apríl 2007

________________________________________________________________________________

Allt að ske!!

Jæja núna er svo mikið um að vera að við höfum varla tíma til að setjast niður og skrá það. Verið að undirbúa ferð suður á Dymbilvikusýningu  hjá Gusti í Kópavogi ætlum að mæta þar með Óttuafkvæmi og Dögg á að fylgja Roða pabba sínum. Svo voru Fanney og Gerður Rósa að gera það gott í keppni sem kallast Grímugæðingafimi á Hólum. Þær tóku sig til og unnu hana, til hamingju stelpur :-)

Dívurnar létu tilleiðast að mæta á sýningu sem verður haldinn að Miðfossum þann 13 apríl svo við verðum að gera allt klárt fyrir það. Og svo helgina eftir er Tekið til Kostanna, nóg að gera..... Um síðustu helgi var síðasta mótið í Húnvetnsku mótaröðinni. Þá var keppt í tölti og fimmgangi í 1. og 2 flokki og í tölti unglinga góð þátttaka var eða um 60 skráningar. Myndavéin gleymdist heima svo endilega sendið okkur myndir ;-)

Úrslit urðu eftirfarandi.

Fimmgangur 1. flokkur

  1. Ólafur Magnússon og Njörður frá Útnyrðingsstöðum
  2. Herdís Einarsdóttir og Tvinni frá Grafarkoti
  3. Vignir Sigurðsson og Jaðar
  4. Gunnar Reynisson og Kveikur frá Sigmundastöðum
  5. Viðar Bragason og Sorro

Fimmgangur 2. flokkur

  1. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri
  2. Jóhann Albertsson og Safír
  3. Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Sólheimum
  4. Þorgeir Jóhannsson og Sammynd frá
  5. Kjartan Sveinsson og Fía frá Hólabaki

Tölt 1. flokkur

  1. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum 
  2. Einar Reynisson og Ormur frá Sigmundastöðum
  3. Gunnar Reynisson og Sykill       frá Sigmundastöðum
  4. Tryggvi Björnsson og  Gerpla
  5. Pétur Vopni Sigurðsson og Dreyri
  6. Pálmi Geir Ríkhardsson Biskup frá Sigmundastöðum

Tölt 2. flokkur

  1. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri
  2. Geir Eyjólfsson og Kall
  3. Þorgeir Jóhannsson Frá frá Rauðuskriðu
  4. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi
  5. Jóhann Albertsson og Tvistur 

 

Tölt unglingaflokkur

  1. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum
  2. Helga Una Björnsdóttir og Óratoría
  3. Karen Guðmundsdóttir og Spaði
  4. Jónína Pálmadóttir og Marey frá Sigmundastöðum
  5. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi

Að lokum, það er komin heimasíða fyrir hestamannafélagið Þyt, www.123.is/thytur

Skrifað 03.04.2007

 __________________________________________

Stórsýning á Blönduósi.

 

Í gærkvöldi var stórsýning Húnvetnskra hestamanna, fullt var út úr dyrum og góð stemning. Héðan frá Grafarkoti fóru 10 hross á sýninguna. Tveir stóðhestar þeir Tvinni og Grettir, tvær hryssur í klárhryssur þær Huldumey og Grásíða, svo fór Ári í Klárhesta og Skuggsjá í A-flokkshryssur. Allt eru þetta hross á 5. og 6. vetur og gekk bara nokkuð vel með þau flest, en áreitið er mikið af áhorfendum í þessari höll. Því fólkið situr meðfram annari langhliðinni svo það er rent dálítið blint í sjóinn með þau. Þetta hefur mismunandi áhrif á hrossin, sem dæmi varð Tvinni allt í einu alveg óskaplega hræddur við glampana frá myndavélunum og vildi ekki koma nálægt stúkunni. Síðan voru þrjú hross í atriðinu Dívurnar, þau Kotra, Félagi og Kardináli. Dívurnar gerðu mikla lukku, mikill hraði ásamt vel útfærðum atriðum í prógramminu. Raggi var svo með Djákna sinn í karlaatriðinu héðan að vestan sem var líka mjög gott :) Þau  heiðurshjón Hjálmar og Gulla hjálpuðu okkur við flutninginn á hrossunum norður og munaði mikið um það að komast með öll hross í einni ferð. Sýningin var fjölbreytt og skemmtileg með 29 atriðum nánast öll héðan úr sýslunni. Mikið var um ung hross og gaman að sjá rjómann af ræktun heimamanna. Það voru þrjú barna og unglingaatriði og sem dæmi um flott atriði var "Djákninn á Myrká" sem var Óli á Sveinsstöðum á Gáska sínum í "spotlight", mikill hraði og mjúkur hestur. Góð sýning í heildina og áhorfendur voru ekki sviknir!

MYNDIR (teknar af videovélinni, ekki góð gæði)

Skrifað 18.mars 2007

_____________________________________________________

 

  • Svínavatn 2007

 

 Kolla og Urt

Vorum á frábæru ísmóti á Svínavatni í gær sem haldið var af hestamannafélögunum Þyt og Neista. Skráðir keppendur voru 170 og komu alls staðar að af landinu keppt var í tölti í þremur flokkum áhugamannaflokki, unglingaflokki og 1. flokki og svo A og B.flokki. Þarna mættu t.d til leiks Kraftur frá Bringu, Tígull frá Gígjarhóli, Ás frá Ármóti, Freyðir frá Hafssteinsstöðum, Skugga-Baldur frá L-Dal og margir fleiri rosa góðir hestar. Veðrið var æðislegt, logn, og hiti um frostmark. Aðstæður eru góðar við vatnið hægt að sitja í bílum og horfa á hrossin. Veitingatjald var á staðnum með úrvals veitingum og WC svo vel fór um áhorfendur. Sem sagt þarna gekk allt upp frábærir hestar, veðrið gott og skemmilegt fólk. Kolla, Fanney og Hedda kepptu héðan frá Grafarkoti. Kolla fór með Urt í áhugamannaflokkinn og þær tóku sig til og unnu hann eftir bráðabana við Sirrý og Stak, Hedda fór með Tvinna í B-flokkinn og fengu þau 8,44 þar, bara býsna gott, (þurftu að fá 8,49 til að komast í úrslit) og svo var Gljái í tölti, hann tók sig til og greip á sig og stífnaði allur upp, svo það gekk ekki sem skyldi, gengur bara betur næst ;-) Fanney fór með Dögg í tölt, og gekk það svona sæmilega, ísinn virtist ekki vera í uppáhaldi hjá Dögginni þennan daginn svo hún sýndi alls ekki sitt besta, en dagurinn var góður ;-)

skrifað. 11 mars 2007

____________________________________

  • Fjórgangur Blönduósi

 

Föstudaginn 16.febrúar var haldið fjórgangsmót á Blönduósi. Keppt var í þrem flokkum unglingaflokki.öðrum flokki og fyrsta flokki. Þátttaka var ágæt,og sérstaklega gaman að sjá hvað keppendum er að fjölga í unglingaflokknum. Héðan fóru tveir keppendur Hedda fór með tvo hesta, þá Gljáa og Tvinna báða á sjötta vetur, báðir voru að fara í sýna fyrstu fjórgangskeppni, og stóðu sig prýði.  Tvinni var efstur eftir forkeppnina og Gljái var í fjórða sæti. Kolla fór með Vikar sinn hann var líka í sinni frumraun og enduðu þau í sjötta sæti í öðrum flokki.

Á þessum mótum er oftast mjög skemmtilegir áhorfendur sem láta vel í sér heyra, styðja sitt fólk. Á þessu móti held ég að á engan sé hallað þó ég fullyrði að líflegasti áhorfandin hafi verið hún Rakel Gígja sem studdi ömmu sína með með öllum ráðum.

Rakel Gíga  Rakel Gígja á fjórgangsmóti. (mynd Magnús Ólafsson)

Úrslit:

1. Flokkur ;

Fjórg 1. flokkur

  1. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum 8v brúnstj
  2. Herdís Einarsdóttir og Tvinni frá Grafarkoti 6v rauðbles
  3. Gunnar Reynisson og Sikill frá Sigmundastöðum 5v jarpur
  4. Guðrun Ósk Steinbjörnsdóttir og Spói frá Þorkelshóli 12v jarpur
  5. Einar Reynisson og Knarri frá Kópavogi 7v rauður

2. flokkur:

fjórg 2. flokkur

  1. Jóhann Albertsson og Erla frá Gauksmýri 8v brúnskjótt
  2. Hörður Ríkharðsson og Skíma frá Þingeyrum 6v brúnbl
  3. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta 12v jörp
  4. Steinbjörn Tryggvason og Össur frá Síðu 6v rauðstj
  5. Maud                         Viðar frá Reykjavík 10v brúnn

Unglingaflokkur :

Unglingafl fjórg

 

  1. Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum 10v jörp
  2. Helga Una Björnsdóttir og Bassi frá Skarðshömrum 5v bleikbl
  3. Karen Ósk Guðmundsdóttir og Þrymur frá Efra- Holti 8v brúnn
  4. Stefán Logi Grímsson Galdur frá Gilá 16v bleikál
  5. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi 6v leirljós.

Skrifað 17.febrúar 2007

__________________________________________________________

  • Tjarnartölt Gauksmýri.

Tjarnartölt  Huldumey Oddi Urt og Gljái

 

Fyrsta Tjarnartöltið var haldið síðasta laugardag í bíðu veðri logni og 6 stiga frosti, góð þáttaka var í öllum flokkum. Keppt var á beinni braut. Einnig var keppt í svokallaðri hesthúsakeppni, en sú keppni fellst í því að í liðinu mega vera 4 hross eða fleiri, og svo er dæmd besta útfærða sýningin.

 Úrslit urðu eftirfarandi:

1. flokkur:

  1. Jóhann Magnússon og Iða frá Vatnshömrum
  2. Pálmi Geir Ríkharðsson og Rakel frá Sigmundastöðum
  3. Herdís Einarsdóttir og Urt frá Grafarkoti
  4. Sverrir Sigurðsson og Þóra frá L-Dal 
  5. Halldór Svansson og Knarri frá Kópavogi

2. flokkur.

  1. Þorgeir Jóhannsson og Apríl frá Ytri-Skjaldarvík
  2. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri
  3. Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Sólheimum
  4. Guðný Björnsdóttir og Pegasus frá Bessastöðum
  5. Tómas Örn Daníelsson og Spói frá Þorkelshóli.

Unglingaflokkur

  1. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Kremi frá Galtanesi
  2. Fríða Mary Halldórsdóttir og Frostrós frá Efri-Þverá
  3. Leifur George Gunnarsson og Krapi frá Efri-Þverá
  4. Jónína Lilja Pálmadóttir og Hildur frá Sigmundastöðum
  5. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum

Skrifað 2007 11.febrúar 2007

__________________________________________________________

  • Töltmót á Blönduósi

Fyrsta töltmótið á Blönduósi var haldið síðastliðið föstudagskvöld 3.feb. Þátttakan var mjög góð, og komu keppendur víðar að en úr Húnavatnssýslunum alls voru 60 skráningar í þeim 3 flokkum sem keppt var í, en þeir voru unglingaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur. B. úrslit voru bæði í 1. og 2 flokki. Efstu 4 hrossin fara beint í A úrslit en hestar 5-9 keppa um 5, sætið.

Úrslit:

1. flokkur 

  1. Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum 8v brúnstj                              
  2. Pálmi Geir Ríkardsson og Rakel frá Sigmundsstöðum 5v brún
  3. Pétur Vopni  og Dreyri frá Akureyri 10v rauður 
  4. Hjörtur Einarsson og Kyndill frá Auðsholtshjáleigu 7v jarpur (kom úr B úrslitum)
  5. Ísólfur L Þórisson og Gormur frá Brávöllum 9v  rauðbl 
  6. Herdís Einarsdóttir og Urt frá Grafarkoti 7v brúntvístj 
  7. Jóhann Magnússon og Lávarður 5v grár
  8. Gunnar Reynissson  og Kveikur frá Sigmundsstöðum 5v jarpur
  9. Elías Guðmundsson og Gletta frá S- Ásgeirsá 7v bleikál       

2. Flokkur.

  1. Geir Eyjólfsson og Kall frá Dalvík 7v brúnn
  2. Þorgeir Jóhannsson og Frá frá Rauðuskriðu 10v jörp
  3. Steinbjörn Tryggvason og Össur frá Síðu 6v rauðstj 
  4. Jóhann Albertsson og Tvistur frá Hraunbæ 6v rauðstj ( kom úr B-úrslitum)
  5. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi 15v jörp
  6. Sigríður Lárusdóttir og Erla frá Gauksmýri 8v brúnskj
  7. Tóbías Sigurðsson og Spes frá Sólheimum 6v grá
  8. Óli Adnegard Þokki frá Blönduósi 8v rauður
  9. Pétur Grétarsson og Frúarblesa frá Nautabúi 8v rauðbl.

Unglingaflokkur.

  1. Helga Una Björnsdóttir og Gammur frá Steinnesi 11v brúnskj
  2. Harpa Birgisdóttir og Goði frá Kornsá 14v grár
  3. Elín Hulda Harðardóttir Gnótt frá Steinnesi 12v brún
  4. Stefán Logi Grímsson Galdur frá Gilá 16v bleikál
  5. Karen Ósk Guðmundsdóttir þrymur frá Holti 8v brúnn

Skrifað 4 febrúar 2007

______________________________________________________________________________

Búið að uppfæra sölusíðuna..

Skrifað 26 janúar 2007

_________________________________________________________________________

  • Dívurnar

Rauðu dívurnarTekið til kostanna

Jæja þá er allt að fara í gang, innanhúsmótin byrja 2. febrúar og svo verður eitthvað að ske allar helgar eftir það. Rauðu dívurnar eru líka farnar að hittast og æfa nýja sýningu fyrir þetta ár. Fyrir þá sem ekki vita eru dívurnar hópur kvenna úr hestamannafélaginu Þyt sem hefur komið saman í nokkur ár yfir vetrartímann og æft atriði á hestum sem þær hafa svo sýnt á stórsýningu hestamanna á Blönduósi og á Tekið til kostanna á Sauðárkróki. Allt er þetta til gamans gert og fundirnir oft mjög fjörugir, þar sem er verið að ákveða búning og lag ársins og svo er prógrammið gengið nokkrum sinnum áður en hestarnir bætast í hópinn.

Skrifað 25. janúar 2007

___________________________________________________________

Kostur Group
Horft inn í salinn á Gauksmýri
Annar hlutafélagsfundurinn og skemmtikvöld hjá Kosti Group var haldinn í gærkvöldi á Gauksmýri.  Fundurinn var vel sóttur og flest allir félagarnir ásamt mökum sáu sér fært um að mæta. 
Ungir stóðhestar voru kynntir, Magnús á Ásgeirsá var með uppistand, Skarphéðinn, Hjalti og Bjössi léku fyrir dansi. 
Kvöldið heppnaðist vel og stóð fram á nótt ;o) 
Myndir 

Skrifað 13. janúar 2007
_______________________________________

Ormalyf og fleira
Indriði að gefa ungri Hágangsdóttur
Um síðustu helgi var öllu stóðinu smalað inn í hesthús og gefið ormalyf og svo er planið að fara með tryppin aftur út að Völlum, því núna eru allar flugeldasýningar afstaðnar. Það gekk vel að gefa hrossunum ormalyf og Indriði alveg í essinu sínu ;o) 
Fanney fór í skólann um helgina og tók með sér 3 hross og Eydís flutti nokkur hross út í Gröf, þannig að núna voru keppnishryssurnar loksins teknar inn, ásamt hrossum sem að Kolla og Raggi eiga. Þannig að það eru ekki eintómir unglingar í hesthúsinu núna.

Skrifað 11. janúar 2007
______________________________________________________________________________


 Íþróttamaður ársins 2006
stelpurnar í hópreið á LM
Að þessu sinni voru tveir félagar úr hestamannafélaginu Þyt tilnefndir til íþróttamanns ársins í Húnaþingi vestra. Það voru þær Helga Una Björnsdóttir sem er íþróttamaður ársins og Fanney Dögg Indriðadóttir sem var í 2. sæti í valinu. Þær stóðu sig frábærlega á árinu, náðu m.a. mjög góðum árangri á landsmótinu í sumar ásamt fleiri mótum.

Skrifað 3. jan.´06
________________________________________________________________________

Staðarskálamótið 

Hið árlega jólamót í körfubolta var haldið dagana 28-29. desember. Það voru 4 kvennalið og 6 karlalið sem tóku þátt að þessu sinni. Mótið var skemmtilegt og mikil barátta að vanda, þó þetta mót sé einungis haldið til skemmtunar er ekkert gefið eftir og leikirnir oft mjög fjörugir.
 
Kvennaliðin voru: Dagsbrún, Eyðibýlaklúbburinn, Kormákur og Bomburnar.
Karlaliðin voru: Grettir, Kormákur A, Kormákur B, Kostur Group, Young guns 2 og Dagsbrún. 

Úrslit urðu eftirfarandi:
Karlar:
1. Grettir
2. Kormákur B (Dóri Fúsa)
3. Kostur Group

Konur:
1. Dagsbrún
2. Eyðibýlaklúbburinn
3. Kormákur


skrifað 3. jan.´06
_____________________________________________________


Trypparekstur

Í dag rákum við tryppin heim frá Ytri-Völlum og ætlum við að hafa þau hér heima fram yfir áramót.
Ytri-Vellir eru staðsettir rétt hjá Hvammstanga og við höfum lent í því  undan farin tvö ár að hrossin þar hafa nánast tryllst á gamlárskvöld, enda mikið skotið upp og bomburnar ekki orðnar neitt eðlilega háværar. Okkar áramót hafa því undanfarin ár farið í að passa að hrossin fari sér ekki að voða og lítið farið fyrir því að gleðjast yfir nýju ári með vinum og vandamönnum.
En nú var ekki tekinn neinn séns og hrossin rekin heim í tíma og vonandi verða áramótin afslöppuð og skemmtileg. :-)

Skrifað 27.desember
__________________________________________



Hófur frá Varmalæk
Eins og áður hefur verið minnst á, fórum við sunnudagsrúnt á Flögu til Hönnu og Gumma um helgina að skoða ungan stóðhest sem heitir Hófur. Hann er í eigu bræðranna Loga og Svenna. Stóðhesturinn er á fjórða vetur, undan Hróðri frá Refsstöðum og 1. verðlauna klárhryssunni Kengálu frá Varmalæk, sem hlaut m.a. 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, 8,5 fyrir tölt, 9,5 fyrir stökk og 9,0 fyrir fegurð í reið. Hann er búinn að vera í tamningu hjá þeim u.þ.b. 2 mánuði og lítur mjög vel út. Spennandi hestur þar á ferð. Meðfylgjandi mynd er af Hóf. 
Hófur



Skrifað 11. des
___________________________________________________


Styttist í jólin!

Gunnar að taka sýni

 
Þessa helgina var bara nokkuð gott veður þó það hafi hvesst ansi mikið aðfaranótt sunnudags. Á laugardaginn var lagt á margan gæðinginn í logni (sem hefur ekki komið lengi) farið í reiðtúr með nokkur tryppi í fyrsta skipti, og allt gekk þetta vel.
 Á sunnudag var lagt upp í smáferð austur í sýslu að Flögu að skoða ungan stóðhest, Hóf frá Varmalæk undan Hróðri frá Refsstöðum og Kengálu frá Varmalæk, leist okkur vel á gripinn.
Eftir hádegið voru folaldsmerarnar reknar heim. Gunnar á Þingeyrum mætti á svæðið og tók DNA sýni úr öllum folöldum og örmerkti þau í leiðinni svo var allt skráð skilmerkilega í bækur svo ekki fari nú á milli mála með ætternið :-) 
Alltaf gaman að skoða folöldin, en þau fá að vera með mæðrum sínum eitthvað fram á veturinn, fer eftir tíðarfari hve lengi.

skrifað 10 des.

_______________________________________________________

  Hversdagsleikinn.
.

Þessa dagana er svo sem ekki mikið í fréttum. Hedda og Hanna eru á fullu að gera ungu tryppin reiðfær og það gengur vel. Þær eru farnar að sitja á þeim öllum inni og búnar að ríða á nokkrum úti. Þessi árgangur er mjög góður, ekkert ómögulegt hross og mörg mjög efnileg svo frumtamningavinnan er búin að vera skemmtileg þetta árið.
Við erum svo búin að vera tína inn meira tamin hross undanfarna viku, þannig að bráðlega fer vinnan að verða fjölbreytilegri og Það er rosalega gaman :-) 

skrifað 28. nóv 2006

_________________________________________

Árið 2007

Aldeilis komin tími á fréttir héðan...

Gleðileg jól öll sömul. Jæja allt gengur sinn vanagang með unghrossin, flest að verða reiðfær. Hefur reyndar gengið frekar rólega með tamningarnar síðustu tvær vikurnar en það er allt í lagi, það verður bara allt sett á fullt á nýju ári. Reiðhöllin færist alltaf aðeins nær því að verða klár fyrir klæðningu, hefur bara verið gripið í að vinna við hana svona öðru hvoru, mikið að gera á öðrum vígstöðum hjá Indriða, en hann á og rekur fyrirtækið Tveir smiðir ehf  ásamt Kára Bragasyni, ( fyrir þá sem ekki vita).

Árið sem er að líða hefur verið okkur nokkuð gott í hestaheiminum, við eignuðumst til dæmis 3 stóðhesta með góð 1. verðlaun, þá Tvinna 6v. (8,43), Sædyn 5v. (8,27)  og Gretti 5v. (8,10)  og svo fór hryssan Huldumey  í góð 1.v (8,23) 5v. Við höfum nú selt þá Tvinna og Sædyn og vonum við að þeir reynist farsælir gripir hjá nýjum eigendum.

Þetta árið fæddust 15 folöld í okkar eigu hér í Grafarkoti, 7 hryssur og 8 hestar nokkuð góð skipti það, en síðustu þrjú ár hafa verið ágæt hvað hryssufjöldan varðar en árgangar ´02, ´03 og ´04 voru ansi lélegir eða þetta 3-5 hryssur í árgangi sem er einfaldlega of fátt. Í sumar voru notaðir stóðhestarnir Grettir frá Grafarkoti Hróður frá Refsstöðum, Hófur frá Varmalæk, Gammur frá Steinnesi, Roði frá Múla, Gaumur og Gári frá Auðsholtshjáleigu, Kraftur frá Efri-Þverá og Þristur frá Feti. Svo nú er bara að krossleggja fingur og vonast eftir folöldum úr öllum hryssunum og þá fleiri hryssum en hestum :-)

Hrossasalan hefur gengið vel þetta árið eins og undanfarin ár, og nú erum við að gera klár nokkur hross í sölu sem voru frumtamin í fyrra, góð hross sem verða tilbúin í slaginn í janúar.

Jæja læt þetta gott heita í bili, en að lokum langar okkur heimilisfólkinu í Grafarkoti að óska öllum sem þetta lesa velfarnaðar á nýju ári, bæði í hestaheiminum sem og á öðrum vettfangi í lífinu.

Gleðilegt ár 2008

 28. des. 2007

____________________________________________

 1. Desember

Fyrstu sperrurnar komnar á sinn stað Alveg að verða komið Síðasta sperran að koma upp

Reisugilli í dag :-) Þá er búið að reisa límtréssperrurnar  í reiðskemmunni var byrjað eftir hádegið og náðist að klára fyrir myrkur. Gekk allt vel,  gaman að sjá húsið eins og það verður. Ansi mikið hærra undir loft heldur enn í gömlu skemmunni.

|

Skrifað 01.12.2007

______________________________________________

Þjónusta í lagi

Rakel og Kostur verið að koma sér fyrir Rakel og Oddi    

Þessar myndir eru af henni Rakel Gígju hún kemur oft í hesthúsið til að hjálpa okkur. En skemmtilegast finnst henni  þó að syngja fyrir hestanna eða segja þeim sögur,  hún ferðast um hesthúsið með stólinn sinn, sest fyrir framan einhvern hestinn og syngur eða segir sögu með mikilli innlifun. Og það er oft mjög gaman að fylgjst með hestunum,  jafnvel þó þeir séu lítið tamdir og jafnvel styggir koma þeir allir og skoða þessa litlu manneskju og virðast óhræddir við hana, sem sagt,  þeim virðist líka þjónustan :-)

Skrifað 28.11.2007

________________________________________

Tamningarnar..

Jæja komin tími á að segja frá tamningartrippunum, allt gengur þetta sinn vanagang. Trippin eru öll farin að bera hnakkinn og aðeins farið að setjast á bak. Virðast allt vera efnileg trippi, ekkert ómögulegt, erum reyndar mjög hrifin af afkvæmum Gamms frá Steinnesi erum með fjögur þau eru öll stór og skrefamikil. 

Skrifað 27.11.2007

_______________________________________

Kostur Group.

keppendur Tapliðið fékk að hefna sín á sigurliðinu

Árshátíð Kosts félagsins var haldinn föstudagskvöldið 23 nóv rúmlega 40 félasmenn mættu og áttu skemmtilegt kvöld, með góðum mat skemmtiatriðum spurningarkeppni og svo spilaði hljómsveit félagsins fram á nótt.

Comment (1)Skrifað 26.11.2007

 ____________________________________

Uppskeruhátíð Þyts 2007

 Andinn hennar Heddu komin með draumaprinsinn eins og hún óskaði sér hann:-)

Tvinni 2007 Hæst dæmda kynbótahross í V- Hún Tvinni frá Grafarkoti 8,08, 8,66, aðaleink 8,43

Uppskeruhátíðin fullorðinna var haldin í gær og tókst afar vel. 136 manns keyptu sig inn á borðhaldið, sem saman stóð af mjög góðum mat og frábærum skemmtiatriðum. Þar sem gert var grín af öllu og engu :) Veitt voru verðlaun fyrir efstu kynbótahross ársins 2007, sem eru; í flokki 4v. hryssna Skinna frá Grafarkoti eink. 7,75, í flokki 5v. hryssna Huldumey frá Grafarkoti eink 8,23, í flokki 6v. hryssna Fína frá Þóreyjarnúpi 8,12 og í flokki 7v hryssna var efst Erla frá Gauksmýri 8,16. Efstur í flokki 4v. stóðhesta er Hófur frá Varmalæk eink. 8,10, í flokki  5v. stóðhesta Sædynur frá Múla eink. 8,27, í flokki 6v. stóðhesta Tvinni frá Grafarkoti eink. 8,43 og í flokki 7v. stóðhesta Þrymur frá Þóreyjarnúpi eink. 8,04. Svo veitti hestamannafélagið knapa ársins í hverjum flokki viðurkenningu. Í ár var Fanney Dögg Indriðadóttir knapi ársins í ungmennaflokki, Sigríður Lárusdóttir knapi ársins í 2. flokki og Svavar Örn Hreiðarsson knapi ársins í 1. flokki. Einnig var valið ræktunarbú ársins í Húnaþingi vestra og að þessu sinni var ræktunarbú ársins Grafarkot. Syðri-Vellir voru í öðru sæti og Múli í því þriðja. Þytur átti 4 íslandsmeistara á þessu ári sem hlýtur að teljast mjög gott í svona litlu félagi! Síðan var ball á eftir með stuðhljómsveitinni Dalton sem mættu í kúrekabúningum :)  

MYNDIR sem Kolla tók.

Skrifað 4. nóvember 2007

 

Hross undan Óttu frá Grafarkoti

Sál

Sál frá Grafarkoti f. 1992

Æra frá Grafarkoti

Æra frá Grafarkoti f. 1998

Órator frá Grafarkoti f. 1999

Urt

Urt frá Grafarkoti f. 2000

Grásíða

Grásíða frá Grafarkoti f. 2001

Grettir frá Grafarkoti f. 2002

 

Grafarkot hrossarćkt | 531 Hvammstangi | Sími 451 2923 | GSM 860 2056 / 848 8320 | grafarkot@grafarkot.is