Þá eru jólin að baki og hversdagsleikinn tekinn við, við erum að komast á rétt ról með vinnuna við hrossin og auðvitað er alltaf verið að spá í ungviðið. Við erum með 4 hryssur á fjórða vetur, núna í vetur og hér eru myndir af tveimur dætrum Sæs frá Bakkakoti þær eru fæddar 2002, báðar orðnar reiðfærar og fara á brokki og tölti og búa báðar yfir skeiði.

Fórn. M: Yngri- Hjálp Grafarkoti Huldumey. M: Vakning frá Gröf
Rakel Gígja á gæðingnum sínum sem hún fékk í jólagjöf frá ömmu og afa!
Eins og flestir landsmenn þá höfum við borðað og sofið vel, spilað og bara haft það rosalega gott yfir jólin sem eru reyndar allt of stutt þetta árið. Settum inn nokkrar myndir frá piparkökuhúsagerðinni í Gröf og aðfangadeginum. Sjá hér.
Platon frá Þorkelshóli allur

Stóðhesturinn Platon frá Þorkelshóli var felldur rétt fyrir jólin þar sem hann var kominn með krabbamein. Folinn var fæddur 2001 undan Roða frá Múla og Platínu frá Djúpadal. Folinn var í tamningu í fyrravetur hjá Kollu í Grundarfirði og var að hennar sögn efnilegasti hestur sem hún hefur tamið og einnig var hesturinn stórmyndarlegur eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Þetta er því mikið áfall fyrir eigendur hestsins sem voru Júlíus Guðni Þorkelshóli og Kolbrún Grétarsdóttir.
Dýralæknum finnst þetta orðið algengara að svona ungir hestar fái krabbamein svo spurningin er hvort betur sé fylgst með eða hvort krabbamein sé að aukast í hrossum?
- Tamningarnar hafnar af fullum krafti. (30.11.2005)
Hér eru Einar og Hedda við tamingar. Folinn heitir Hvinur og er á 5. vetur.
Einar Reynis hefur verið í Grafarkoti síðastu tvær vikur við tamningar. Frumtamningarnar hafa gengið vel og búið að fara á bak öllum trippunum, og flest þeirra að verða reiðfær í skemmunni.
- Folaldasýning á Blönduósi 19 nóv. 2005
Á myndunum má sjá Köru frá Grafarkoti svífa um höllina eins og nafna hennar, Kara danskennari, gerir á dansgólfinu. (En folaldið er skírt í höfuðið á henni)
Folaldasýning Húnvetninga var haldin í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi í gær 19 nóv. 28 folöld voru sýnd og mörg mjög glæsileg. Athygli okkar vöktu folöld undan Adam frá Ásmundarstöðum fyrir fimi og mýkt. Kynbótadómarar lýstu folöldunum og völdu álitlegasta ræktunargripinn, og áhorfendur völdu eigulegasta folaldið. Við fórum með 2 folöld á sýninguna. Annað var hryssan Týpa undan Tign frá Grafarkoti og Parker frá Sólheimum en hitt var hryssan Kara undan Klassík frá Grafarkoti og Gammi frá Steinnesi. Og KARA frá Grafarkoti varð í fyrsta sæti bæði hjá dómurunum og að mati áhorfenda.
Úrslit kynbótadómara:
1. Kara frá Grafarkoti u. Klassík frá Grafarkoti og Gammi frá Steinnesi. Eig. Herdís og Indriði Grafarkoti
2. Konráð frá Syðri-Völlum u. Venus frá Syðri Völlum og Adam frá Ásmundarstöðum. Eig. Ingunn Reynisdóttir
3. Þeyr frá Syðri-Völlum u. Prúð frá Sigmundarstöðum og Núma frá Þóroddsstöðum. Eig. Reynir Reynirsson
4. Stjörnufákur frá Blönduósi u. Kolbrúnu frá Blönduósi og Hrym frá Hofi. Eig. Sigríður Grímsdóttir
5. Heiðadís frá Blönduósi u. Iðju frá Blesastöðum og Adam frá Ásmundarstöðum. Eig. Hermann Freyr Jóhannsson
Úrslit áhorfenda:
1. Kara frá Grafarkoti u. Klassík frá Grafarkoti og Gammi frá Steinnesi. Eig. Herdís og Indriði Grafarkoti.
2. Álfamey frá Gröf u. Villimey frá Snartartungu og Hrym frá Hofi. Eig. Hestamiðstöðin Fengur
3. Þeyr frá Syðri-Völlum u. Prúð frá Sigmundarstöðum og Núma frá Þóroddsstöðum. Eig. Reynir Reynirsson
Glæsileg verðlaun voru veitt, fyrir fyrsta sæti í dómaravali var folatollur undir Gára frá Auðsholtshjáleigu, fyrir annað sæti folatollur undir Garp frá Hvoli, fyrir þriðja sæti folatollur undir Galsa frá Sauðárkróki, fyrir fjórða sæti folatollur undir ungfolan Klakk Óðsson frá Hofi og fimmta sæti folatollur undir Svartni frá Miðsitju.
Fyrir fyrsta sæti í áhorfendavali voru verðlaunin folatollur undir tveggja vetra glæsifola Arf frá Ásmundarstöðum.
- Uppskeruhátíð Þyts var haldin 12 nóv. 2005.
Grafarkot ræktunarbú ársins.
Þá er uppskeruhátíðin að baki, hún var mjög vel heppnuð, mikið fjör, góður matur, og skemmtinefndin stóð sig frábærlega. Rúmlega hundrað manns mættu og hátíðin stóð frá rúmlega átta til hálf fjögur um nóttina. Svo allavega Grafarkotsfólkið og ég býst við margir fleiri, voru ósköp eitthvað þreytt á sunnudeginum.
Klikkið á myndina til að sjá fleiri myndir frá uppskeruhátíðinni.
Jæja um næstu helgi 12 nóv verður uppskeru hátíð hestamanna á Brodway, og síðastliðinn Föstudag voru tilnefndir þeir knapar sem koma til greina sem knapi ársins í hverjum flokki. Og í flokknum efnilegasti knapi ársins er Fanney tilnefnd ásamt fjórum öðrum frábærum knöpum, við erum mjög stollt af stelpunni.

Svo má geta þess í leiðinni að uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtakanna verður líka um næstu helgi og þar verður sko fjör.Allir velkomnir.
Í gær 1. nóv gerðist það ótrúlega að folald sem talið var dautt kom fram á Syðri Völlum. Sagan er þannig að Sigrún og Sverrir bændur á Höfðabakka fóru í fyrra með eina af sínum bestu hryssum, Stiklu suður á land og héldu henni undir Rökkva frá Hárlaugsstöðum og í fyllingu tímans fæddist móbrún hryssa. Stikla var svo hjá hesti í sumar og þegar að hún kom heim var hún sett með fleiri hrossum upp í Vatnsnesfjall. Helgina 2-3 okt. gerði ansi mikið hret og þegar Sverrir fór að huga að hrossunum fann hann Stiklu folaldslausa. Gerð var mikil leit af folaldinu bæði í fjallinu og í girðingum, en ekkert fannst svo gert var ráð fyrir að það hefði drepist. En sem sagt í gær þegar Vallabændur fóru að huga að hrossum sínum eftir stórhríðina um síðustu helgi, veittu þau athygli litlu folaldi frekar illa útlítandi og þar var hún komin eftir mánaðarleit. Auðvitað var litlu prinsessunni strax komið í hús og er hún nú í góðu yfirlæti með kindunum í Grafarkoti. Þess má geta að hún var ekki komin í Vallargirðinguna fyrir 1/2 mánuði.

Þá er komið að því að byrja vetrastarfssemina enn á ný hérna í Grafarkoti, en um næstu helgi (29-30 okt) ætlum við að taka inn nokkur alveg ótamin tryppi. Það er alltaf spennandi að kynnast nýjum gripum á hverju hausti. Tryppin eru t.d undan Dyn frá Hvammi ,Roða frá Múla Sveini-Hervari, Sæ frá Bakkakoti, Eið frá Oddhóli, Hróð frá Refsstöðum og Gammi frá Steinnesi. Fanney ætlar svo að vera heima í vetur og vinna með Heddu í tamningunum.
- Stórafmæli Einars Jónssonar helgina 14-16 okt.

Einar pabbi/afi og langafi átti sjötugsafmæli síðastliðinn föstudag eða 14 október og hélt hann upp á það í Munaðarnesi með allri fjölskyldunni. Leigði 3 sumarbústaði og átti fjölskyldan mjög notalega stund saman.
Myndir.
- Stóðréttir 02.10.2005 í Víðidalstungurétt

Stóðréttirnar í Víðdal voru laugardaginn 02.10. Við tókum myndir bæði frá niðursmöluninni á föstudeginum og svo í réttinni á laugardeginum og hérna má sjá þær.
- Ungu folaldakrúttin í Grafarkoti 30.09.2005
Jæja nú eru allar folaldshryssurnar komnar heim, hérna er smá myndasería af fjórum 1. verðlauna hryssum sem allar eru með mjög ung folöld. Það eru þær Ótta, Aría, Æra og Ásjóna. Merarnar fá að valsa inn og út úr reiðskemmunni því það er svo kalt úti. En þessi fjögur folöld eru alveg einstaklega spök og skemmtileg í umgengi. Þessi brúnu þrjú eru undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og brúnskjótta hryssan er undan Órator. (Hægt að klikka á allar myndirnar til að gera þær stærri.)
Brúnblesótti hesturinn u. Óttu
Brúnskjótta hryssan u. Ásjónu
Brúnstjörnótta hryssan u. Æru
Brúnstjörnótta hryssan u. Aríu

Ærudóttir Gígjarsbörnin
- Göngur og réttir 10.09.2005

Göngurnar á Vatnsnesinu voru í gær, 10.09. Farið var seinna af stað en áætlað var vegna þoku. Og var féð því ekki komið niður í rétt fyrr en hálf fimm. Veðrið lagaðist þegar líða tók á daginn og var komin rjómablíða eftir hádegið. Gekk því hægt að reka féð niður síðasta spottann vegna hita. Við tókum fullt af myndum og settum þær hérna inn á síðuna.
Myndir
- Það er komið haust - 30.08.
Helstu fréttir úr Grafarkoti eru að heyskapurinn kláraðist í síðustu viku,þar að segja háin var hirt,heyfengur er góður 490 rúllur og svo eigum við milli 140-50 rúllur frá síðasta ári,svo við erum vel sett.
Síðustu tvö folöldin eru loksins fædd. Þau fæddust 18 ágúst. Þau eru undan Gígjari frá Auðholtshjáleigu og mæðgunum Æru og Óttu, þau fæddust sömu nóttina. Æra fór svo undir Krumma frá Blesastöðum og Ótta fór undir Tvinna frá Grafarkoti.
Í sumar erum við svo búin að fara í stuttar hestaferðir um sýsluna. Í eitt skipti var farið héðan og slegist í för með fólkinu á Syðri-Völlum, riðið yfir Vatnsnesfjall og að Stóru-Borg, Þingeyrarsandur riðinn daginn eftir og það er alltaf jafn gaman. Og svo var sullað í Hnausakvíslinni, sumir könnuðu hana meira en aðrir engin nöfn nefnd
Þá var riðið upp undir Hnausabrúna og til baka. Daginn eftir var riðið í Grafarkot. Eydís er búin að fara í tvær 4 daga ferðir og Fanney og Logi fóru í fimm daga ferð með tamningatrippin.
Svo má ekki gleyma að nefna Dalamenn (Erlu stóru systur Indriða og ferðafélaga) sem heimsóttu okkur í ágúst þau gistu hér í þrjá daga og fengu Lækjarhvammshúsið til afnota. Þau voru búin að vera á ferð í nokkra daga í A- Hún og Skagafirði. Hedda fylgdi þeim frá Þingeyrum yfir Þingeyrarsand og upp í Hvol og svo var riðið í Grafarkot. Þar var svo hvíldardagur, síðan riðu þau fram með Miðfjarðará og vestur yfir.
Einnig var sýnd ein 5.v hryssa núna í ágúst. Víf frá Grafarkoti, sú fór í 1.verðlaun bæði fyrir byggingu og hæfileika. bygg 8,03, hæfil 8,06, aðaleink 8,05. Móðir: Klassík frá Grafarkoti F. Galsi Sauðárkróki
Eins og það er nú alltaf leiðinlegt þegar sumarið er á enda þá er það þó þannig að við tekur alveg rosalega skemmtilegur tími að okkar mati. En það eru smalamennskurnar, göngurnar og bara allar réttirnar. Bæði kinda og stóðréttir.
Smá listi yfir réttir í Húnaþing vestra:
Fjárréttir:
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún. laugardag 3. sept.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún. laugardag 3. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. laugardag 10. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardag 10. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardag 10. sept.
Stóðréttir:
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardag 24. sept. um kl. 13:00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardag 1. okt. kl. 10:00
- Firmakeppni Hestamannfélagsins Þyts - 12.08.2005
Keppnin var haldin föstudaginn 12 ágúst. Keppt var í barna,unglinga kvenna og karlaflokki. Síðan voru veitingar að keppni lokinni ásamt hefðbundnu sprelli og gamanmáli!
Myndir!!!
Muna ekki allir eftir að kíkja á krúsídúllurnar sem fæðast hérna í Grafarkoti hvert á fætur öðru??? Sjá hér.
Mótið var haldið í Mánagrund í Keflavík, miklar skráningar voru eða u.m.þ.b. 40 keppendur í hverjum flokki. fjögur ungmenni úr hestamannafélaginu Þyt kepptu, það voru þau Fanney, Logi, Helga Una og Sonja. Sonja og Freyja frá Brekkum lentu í 3-4. sæti í fjórgangi með eink. 6,77 Fanney og Flauta frá Tannstaðabakka voru í 8. sæti með eink. 6,47. Og í töltinu voru Fanney og Dögg frá Múla efstar inn í b-úrslit og unnu sér sæti í a-úrslitum og enduðuð í 4. sæti með einkunnina 7,28. Helga Una og Glanni frá Svanavatni höfnuðu í 12. sæti í fjórgangi unglinga með eink. 6,33 (einu sæti frá b-úrslitum) og svo keppti hún á Lútu frá Stekkjardal í tölti og þær lentu í 15. sæti með eink. 6,37. Logi keppti á Flautu frá Tannstaðabakka í tölti og þau hlutu 6,07 eftir forkeppni og í fjórgangi keppti hann á Trausta frá Kimbastöðum þeir hlutu eink. 5,77. Þannig að unga Þytsfólkið stóð sig með stakri prýði á þessu ágæta Íslandsmóti.

Fanney Dögg Indriðadóttir og Dögg frá Múla
- Fjórðungsmót Vesturlands.
Við fórum þangað og áttum góða helgi þó veðrið hefði nú getað verið betra. Vorum með rónabílinn frá Hvammstanga þannig að vel fór um okkur þrátt fyrir rigninguna. Unga fólkið úr Þyt stóð sig með miklum sóma Helga Una og Orða sigruðu tölt unglinga og Fanney og Dögg héldu sigurgöngu sinni áfram og unnu tölt ungmenna, gott hjá þeim stöllum. Logi keppti líka í ungmennaflokki á Ögrun og þau stóðu sig líka vel og lentu í 7. sæti. Hedda fór með Flautu og Órator í töltið og árangur þeirra var vel viðunandi, Órator fékk 6,80 og Flauta 6,63.
MYNDIR!!!!
- Rakel Gígja 1. árs 29 júní
Rakel Gígja varð 1. árs núna 29 júní. Haldin voru tvö afmæli fyrir dömuna, eitt í Skagafirði, í sumarbústað í Varmahlíð, og eitt í Grafarkoti. Fullt af myndum úr afmælunum má sjá á heimasíðunni hennar á barnalandi.
- Gæðingamót Þyts 24. og 25 júní 2005
Órator og Hedda
Okkur gekk vel þetta mótið, áttum fjögur af fimm hrossunum í úrslitum B-flokks.Mæðgurnar Hedda og Fanney börðust um fyrsta sætið en enduðu með sömu einkunn upp á fjórða aukastaf svo þær ákváðu bara að deila sigrinum. Spönn frá Grafarkoti endaði önnur á A-flokki, efsta hryssan var Ballerína sem er líka frá Grafarkoti, Eydís var með tvo í úrslitum B-flokks áhugamanna þeir urðu númer tvö og fimm. Svo fór Hedda með systur Órators Urt 5v. í unghrossakeppnina og hún vann. Fanney var með hæst dæmdu hryssuna, glæsilegasta hrossið og hún sjálf fékk knapaverðlaunin.
En vænst þótti Heddu þó um blómin sem hún fékk frá Æskulýðsnefnd Þyts og krökkunum sem hún hjálpaði fyrir mótið takk kærlega (",)
- Íþróttamót Þyts 11. og 12. júní 2005
Íþróttamót Þyts var haldið dagana 11. og 12. júní. Úrslitin eru í skjalinu hér að neðan.
Við vitum að þetta er rosaleg montmynd en ákváðum að láta hana bara flakka. Þetta er afrakstur fjölskyldunnar um helgina(",)
Úrslit.doc og hér eru svo myndir frá mótinu.

Tvinni var sýndur á kynbótasýningunni á Hvammstanga 6 júní, hann fékk fyrir byggingu 8,5 8,0 8,5 8,0 8,0 7,5 8,0 8,0. 8,04. Hæfil 8,0 8,0 7,0 8,0 8,0 8,0 8,0 ;7,86 aðaleink 7,93.Tvinni verður til afnota að Syðri-Völlum í sumar.
- Tekið til kostanna 21. til 23. apríl 2005

Við áttum mjög skemmtilega helgi í Skagafirðinum. Hópur af Húnvetningum tóku sumarbústað á leigu, svo það var bara slakað á milli sýninga. Myndir má sjá hér.
Reisugildi að Aðalbóli - 26. mars 2005
Stoltir eigendur! (smella á myndina til að gera hana stærri)
Hrannar, Anna María, Kjartan, Oddný, Eiríkur, Már, Bogga, Elín og Steini
Laugardaginn 26. mars héldu eigendur "Aðalbóls" sem er í hesthúsahverfi Hvammstanga veislu mikla, með grilli og tilheyrandi drykkjarföngum fyrir alla þá sem komu að byggingu nýs og glæsilegs hesthúss þeirra. Þar var fjölmenni og mikil gleði, eins og sjá má hér.
- Blönduóssýning 19 mars 2005

Sex 6v frá Grafarkoti Senjorítur og heiðursmenn að vestan
Myndir af Grafarkotsbúinu og senjorítunum & heiðursmönnunum eru hér og hér. Því miður höfum við ekki myndir frá fleiri atriðum þar sem enginn myndatökumaður var ráðinn en Kjartan, Raggi, Kolla og Fanney redduðu okkur alveg með þessi tvö atriði en þau skiptust á að taka video og myndir.
Til að sjá fleiri myndir af Senjorítum og heiðursmönnum og Kvartettinum þá eru þær hér á Bessastaðasíðunni.
