Stóðhestar
Grettir frá Grafarkoti Fæddur 2002 undan Dyn frá Hvammi og Óttu frá Grafarkoti. Grettir er einstaklega geðgóður foli með mikinn vilja, og mjög mjúkt og gott tölt. Hágengur og rúmur, Þess má geta að Grettir er sammæðra Órator sem varð íslandsmeistari í tölti ungmenna 2006

Bygging: 8,0-8,5-8,5-8,0-8,0-8,0-8,0-8,5 = 8,18..
Kostir: 9,0, 8,5 5,0 8,5 9,0 9,0 7,5 = 8,26
hægt tölt 9,0 hægt stökk 8,0
Aðaleinkunn: 8,23
Tvinni frá Grafarkoti. Fæddur 2001 undan Kvitt frá Grafarkoti og Sameign frá Sauðárkrók. Hann er alhliða með mjög góðar gangtengundir. Hágengur og rúmur.


Bygging: 8,5-8,0-8,5-8,0- 8,0- 8,0 -8,0- 8,0 = 8,08
Kostir: 9,0 8,5 8,0 8,5 8,5 9,0 9,5 = 8,66
hægt tölt 8,5, hægt stökk 8,0
Aðaleinkunn: 8,43
Órator frá Grafarkoti. Fæddur 1999. Hann er með 8,5 tölt, vilja og geð og fegurð í reið. 9,0 fyrir stökk. Órator var keppnishestur Heddu sumarið 2005 6v. Hann hlaut 6,94 í tölti í forkeppni í sinni fyrstu keppni og 7,56 í úrslitum, í B-flokki fékk hann eink 8,51. En við erum búin að selja Órator og nýi eigandinn er Gísli Sveinsson á Hestheimum.

Órator 4 vetra

Órator og Fanney í fyrstu töltkeppnni, tekið á Bautamótinu á Akureyri 2005

Órator í töltkeppni Órator og Hedda

Órator og Hedda valin glæsilegasta par mótsins
Rauðskinni frá Grafarkoti. 1. verðlauna stóðhestur fæddur 1998 undan Roða frá Múla og Röst frá Mosfellsbæ. Hann var sýndur 2003 og hlaut fyrir byggingu 7,80 og hæfileika 8,20 aðaleink 8,05. Þar af hlaut hann 8,5 fyrir tölt, vilja og geð og fegurð í reið 5 vetra gamall. Rauðskinni er nú í eigu Sharon Johnsson Crow River Farm í Minneasota USA.

Kvittur frá Grafarkoti. Fæddur 1996, undan Kímni frá Grafarkoti og Sprota frá Hæli. Kvittur var sýndur 4 vetra árið 2000 og hlaut fyrir byggingu 7,61 og hæfileika 8,03 aðaleink 7,86. Kvittur var seldur til Bandaríkjanna 2001 og núverandi eigandi er Hope Ellis. Við höfum fengið nokkur afkvæmi undan Kvitt og þau eru öll með frábært geðslag og afar eiguleg hross.

Kvittur 4 vetra
Kanslari frá Grafarkoti undan Sameign frá Sauðárkróki og Kolfinni frá Kjarnholtum. Kanslari er 1. verðlauna stóðhestur nú í eigu Christine og Johannes Holtkotte í Þýskalandi.
