Ræktunarhryssur
Klassík frá Grafarkoti, fædd 1987 u. Otri frá Sauðárkróki og Röst frá Mosfellsbæ, dæmd 6v. hæfil. 8,34 þar af 8,5 fyrir tölt og brokk, 9,0 fyrir skeið. Bygg. 7,55, aðaleink 7,95. Sónaðist geld

Ótta frá Grafarkoti, fædd 1987 u. Otri frá Sauðárkróki og Hjálp frá Stykkishólmi, fyrstu verðlauna hryssa með 8,41 fyrir hæfileika og 7,80 fyrir byggingu. Aðaleink. 8,11. Er núna með fyli undan Dofra frá Steinnesi loksins
Tign frá Grafarkoti fædd 1990, undan Stíganda Sauðárkróki og Hjálp Stykkishólmi. Bygg. 8,03, hæfileik. 7,50 aðaleink 7,76. Nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti
Vakning frá Gröf IS1990255440 F. Stígandi frá Sauðárkróki. M. Villimey frá Gröf. Vakning er falleg hryssa með 8,08 fyrir byggingu, hún er í eigu Eydísar, nú með fyli við Feldi frá Hæli
Sál frá Grafarkoti fædd 1992, undan Stíganda frá Sauðárkróki og Óttu frá Grafarkoti. Bygg. 8,05 hæfil. 7,77 aðaleink 7,91. Nú með fyli við Þristi frá Feti.
Glæta frá Grafarkoti fædd 1994 u. Hrannari frá Kýrholti og Hjálp frá Stykkishólmi. Sýnd 5v. Bygg. 7,78 Hæfileik.7,97 Aðaleink 7,87. Nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti
Kæti frá Grafarkoti, fædd 1994, u. Gný Hrepphólum og Kímni Grafarkoti. Sýnd 5v. Bygg 7,68 Hæfil. 8,01 Aðaleink. 7,84. Nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti
Ásjóna frá Grafarkoti fædd 1994, 1. verðlauna hryssa undan Hervari frá Sauðárkróki og Hörpu frá Hnjúki. Hæfil. 8,20 með 8,5 brokk, skeið, vilja og geðslag. Sköpul. 7,78 og Aðaleink. 8,03. Nú með fyli við Kappa frá Kommu. Eig Fanney og Logi
Gráða frá Grafarkoti, u. Andvara frá Ey og Röst frá Mosfellsbæ, nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti
Græska frá Grafarkoti, fædd 1997 u. Safír frá Viðvík og Hjálp frá Stykkishólmi. Græska er ósýnd. Nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti.
Aría frá Grafarkoti fædd 1996, u. Óm frá Grafarkoti og Borgar-Perlu frá S-Ásgeirsá. Aría er 1. verðlauna hryssa með 9 tölt, 8,5 brokk, 9 vilji og geðslag. Bygg. 7,92 Hæfil. 8,16 Aðaleink 8,06. Nú með fyli við Kappa frá Kommu

Æra frá Grafarkoti fædd 1997, 1. verðlauna hryssa u. Safír frá Viðvík og Óttu frá Grafarkoti. Bygg. 8,08 Hæfil. 7,98 Aðaleink 8,02. Nú með fyli við Óm frá Kvistum
Trú frá Grafarkoti, fædd 1999,u. Tvífara frá Kjartansstöðum og Tign frá Grafarkoti. Sýnd 2005 bygg 7,98 hæfil 8,0 aðaleink 7,99. Sónaðist geld frá Grásteini frá Brekkum

Vin frá Grafarkoti, fædd 1999 u. Roða frá Múla og Klassík frá Grafarkoti. Sýnd 2005 bygg 7,89 hæfil. 7,95 aðaleink 7,93. Fylfullt við Gretti frá Grafarkoti

Urt frá Grafarkoti IS2000255416. u. Loga frá Skarði og Óttu frá Grafarkoti. Klárhryssa sýnd 2006 með 8,5 fyrir alla eiginleika í hæfileikum. bygg 7,78 hæfil 7,90 aðaleink 7,85 Nú með fyli við Arði frá Brautarholti
Grásíða frá Grafarkoti IS2001255416. u. Flygli frá V-Leirárgörðum og Óttu frá Grafarkoti alhliðahryssa mikið viljug og og rúm. Er nú með fyli við Óm frá Kvistum
Kotra frá Grafarkoti IS1999255416. F. Tvífari frá Kjartansstöðum. M. Kórea frá Grafarkoti. Kotra er með 8,16 fyrir bygg og 7,83 hæfil. aðaleink 7,96. Kotra er nú með fyli við Gretti frá Grafarkoti.
Fallnar ræktunarhryssur

Hjálp frá Stykkishólmi u. Sörla frá Sauðárkróki og Sótu frá Innra-Leiti, fyrsta ræktunarhryssan okkar, hún fékk 1.v. fyrir afkvæmi 1994. Hún var felld árið 2000, 28 vetra gömul.
Afkvæmi Hjálpar.doc
Röst frá Mosfellsbæ er hin stofnhryssan okkar. Hún var u. Blesa frá Kjartansstaðakoti og Rauðku frá Mosfellsbæ. Röst gaf mörg mjög hæfileikarík hross, öll alhliða. Hún varð 26 v, hún var felld árið 2000.
Flest okkar hross eru komin út af þessum tveim hryssum.
Eldvör frá Grafarkoti, fædd 1983, undan Eld frá Stóra-Hofi og Hjálp frá Stykkishólmi. Sýnd hryssa með aðaleink. 7,85. Eldvör var hjá Gretti frá Grafarkoti í sumar en hún hefur verið geld siðustu tvö ár.Felld haustið 2007
Sameign frá Sauðárkróki fædd 1985, undan Hervari frá Sauðárkróki og Drottningu frá Sauðárkróki. Sameign var keypt af fimm aðilum þar á meðal okkur af Sveini Guðmunds, svo endaði það þannig að við keyptum hana alla 5v. Hún hefur reynst farsæl undaneldishryssa. Felld haustið 2008.
Kímni frá Grafarkoti fædd 1986, undan Kjarvali Sauðárkróki og Hjálp Stykkishólmi. Sýnd 4v. Bygg. 7,65, hæfileik. 7,97, aðaleink 7,81. Var hjá 'Alfi frá Selfossi sóðaðist fyllaus. Felld haustið 2009
Óregla Frá Grafarkoti, fædd 1986, undan Seif frá Sauðárkróki og Röst frá Mosfellsbæ. Slasaðist tveggja vetra og var því aldrei tamin en hefur gefið mjög góð afkvæmi. Í ár fór Óregla undir Gretti frá Grafarkoti, Fórst við köstun vorið 2009
Kórea frá Grafarkoti, fædd 1989 u. Þyt frá Enni og Eldvör frá Grafarkoti. Kórea er hryssan sem er nær og knapi er Indriði Karlsson. Kórea er klárhryssa með skeiðuppbót, hún hlaut 7,71 í aðaleinkunn, m.a 8 fyrir tölt, stökk, fegurð í reið og 8,5 fyrir vilja. Fórst haustið 2009.