Eldri fréttir
Uppskeruhátíð Þyts

Uppskeruhátíð Þyts var haldin í gærkvöldi. Þar var margt um manninn, boðið var upp á forrétt, aðalrétt og eftirrétt, síðan var verðlaunaafhending og frábær skemmtiatriði. Ræktunarbú ársins var Sigmundarstaðir a.k.a Syðri-Vallarbúið. Hæst dæmdi stóðhesturinn var Tvinni frá Grafarkoti og hæst dæmda hryssan var Víf frá Grafarkoti. Knapar ársins voru:
Opinn flokkur: Tryggvi Björnsson
Áhugamannaflokkur: Skeiðdrottningin Sigríður Ása Guðmundsdóttir ;o)
Ungmennaflokkur: Fanney Dögg Indriðadóttir
Myndir
Skrifað 18.nóvember 2006
___________________________________________________

Í síðustu viku var haldinn félagsfundur hjá Þyt. Umræðuefnið var hvort félagið ætti að þiggja styrk þann er Landbúnaðarráðherra úthlutaði félaginu nú í haust, alls 15 milljónir. Félagsmenn voru á einu máli um að þiggja styrkinn og leita allra leiða til að byggja, helst ekki minna hús en 25*50 m. Auðvitað vita allir að svona bygging mun kosta miklu meira en nemur styrknum, svo félagið treystir á að sveitafélagið komi myndarlega að byggingunni. Félagsmenn voru einnig sammála um að eigi félagið að standa jafnfætis öðrum félögum hvað varðar námskeiðahald og kennslu barna og unglinga, sé reiðhallarbygging nánast nauðsynleg.
Skrifað 17.nóv.2006
______________________________________________________

Í gær var hrossunum loksins smalað á Vatnsnesfjalli, ansi seint að okkar mati. En hvað um það við fengum restina af hrossunum okkar þar á meðal 6 fola sem á að temja í vetur. Þannig að nú er hægt að byrja á fullum krafti í hesthúsinu.
Við urðum líka vitni að mjög sérstökum atburði í gær. Sagan er þessi að vinur okkar hann Dóri frá Efri-Þverá týndi folaldi í vor sem þá var þriggja vikna. Gerð var mikil leit en ekkert fannst, svo í gær kom það fram út í Hamarsrétt ansi lítið en ágætlega sprækt. Það merkilega er að það fylgdi 3v. hryssu frá okkur og hafði hryssan tekið ástfóstri við það. Hún leyfði því að fara undir sig og það virtist sjúgja hana, heyrðist soghljóð og allt. Við náðum merinni til að ath. hvort það væri virkilega mjólk í henni, en svo reyndist nú ekki vera enda hryssan aldrei átt folald. Líklega hefur þetta bjargað folaldinu að hafa einhvern til að treysta á þó engin væri mjólkin.
Skrifað 05.nóvember 2006
_________________________________________________

Í kvöld var stofnað nýtt hluthafafélag um stóðhestinn Kost frá Breið sem er undan Adam frá Ásmundarstöðum og Glódísi frá Breið. Félagsmenn eru 50 talsins. Félagið leggur mesta áherslu á skemmtun og aðalmarkmiðið er að hittast og hafa gaman, og auðvitað að skoða Kost reglulega Hesturinn var sýndur í reiðskemmunni í Grafarkoti, leist mönnum vel á enda sveif gripurinn um skemmuna á hágengu brokki, eftir sýninguna var skálað fyrir hestinum og svo færðu menn sig yfir á næsta bæ, nánar tiltekið á Gauksmýri, þar sem ákveðið var nafn á félagið og reglur kynntar fyrir félögum.
Skrifað 3. nóvember 2006
___________________________________________________

Gerð var skemmtileg skoðannakönnun nú um helgina, sem fólst í því að velja fimm stóðhesta til að halda undir. Hugsunin var sú að þú átt fimm hryssur og mátt velja einn stóðhest handa hverri hryssu og halda undir hann frítt, hvaða fimm stóðhesta myndir þú velja?
Þetta byrjaði með því að Indriði lagði stóðhestablaðið fyrir framan Heddu og sagði henni að velja. Indriði var þá sjálfur búinn að velja og svo merkilega vildi til að Hedda valdi nákvæmlega sömu stóðhestana.
Indriði og
Herdís Grafarkoti: Orri frá Þúfu, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Álfur frá Selfossi, Gustur frá Hóli og Sær frá Bakkakoti. Efiðast var að velja fimmta stóðhestinn, þar komu margir til greina, s.s. Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum og Stáli frá Kjarri.
Þetta vakti forvitni okkar svo við spurðum af gamni nokkra ræktunarmenn í sveitinni í kring hvað þeir myndu velja. Og hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar, þær eru skemmtilega fjölbreyttar ;0)
Ingunn Reynisdóttir á S-Völlum: Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Mökkur frá Varmalæk, Stáli frá Kjarri, Kolfinnur frá Kjarnholtum og Kraftur frá Efri-Þverá.
Pálmi Geir Ríkharðsson á S-Völlum: Stáli frá Kjarri, Eldjárn frá Tjaldhólum, Mökkur frá Varmalæk, Sær frá Bakkakoti og Tígull frá Gígjarhóli.
(Vantar mynd) Magnús Jósefsson í Steinnesi: Orri frá Þúfu, Gustur frá Hóli, Álfur frá Selfossi, Stáli frá Kjarri og Þóroddur frá Þóroddsstöðum.
Fanney Dögg Indriðadóttir í Grafarkoti: Orri frá Þúfu, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Álfur frá Selfossi, Sær frá Bakkakoti og Stáli frá Kjarri
Sverrir Sigurðsson á Höfðabakka: Orri frá Þúfu, Sveinn-Hervar frá Þúfu, Hróður frá Refsstöðum, Töfri frá Kjartansstöðum og Stáli frá Kjarri.
Elvar Logi Friðriksson á Varmalæk: Orri frá Þúfu, Kolfinnur frá Kjarnholtum, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Sær frá Bakkakoti og Stáli frá Kjarri.
Gunnar Þorgeirsson &
Gréta B. Karlsdóttir á Efri-Fitjum: Gustur frá Hóli, Adam frá Ásmundarstöðum, Krákur frá Blesastöðum, Vilmundur frá Feti og Hróður frá Refsstöðum.
Eydís Ósk Indriðadóttir Grafarkoti: Sær frá Bakkakoti, Stáli frá Kjarri, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Sólon frá Skáney og Gustur frá Hóli.
Elías Guðmundsson á S-Ásgeirsá: Orri frá Þúfu, Hróður frá Refsstöðum, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Huginn frá Haga.
Jóhann B. Magnússon á Bessastöðum. Fursti frá Stóra-Hofi, Álfur frá Selfossi, Hróður frá Refsstöðum, Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Kraftur frá Efri-Þverá.
Helga Thoroddsen á Þingeyrum: Stáli frá Kjarri, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Hróður frá Refsstöðum, Sólon frá Skáney og Gustur frá Hóli.
Jón Gíslason á Hofi: Orri frá Þúfu, Þóroddur frá Þóroddsstöðum, Eldjárn frá Tjaldhólum, Töfri frá Kjartansstöðum og Gustur frá Hóli.
Sigrún Þórðardóttir á Höfðabakka: Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, Sveinn-Hervar frá Þúfu, Stáli frá Kjarri, Töfri frá Kjartansstöðum og Vilmundur frá Feti.
Jóhann Albertsson á Gauksmýri: Orri frá Þúfu, Geisli frá Sælukoti, Roði frá Múla, Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Sær frá Bakkakoti.
Tryggvi Björnsson á Blönduósi: Sveinn-Hverar frá Þúfu, Orri frá Þúfu, Gustur frá Hóli, Álfur frá Selfossi og Adam frá Ásmundarstöðum.
(Vantar mynd) Jón Kristófer Sigmarsson á Hæli: Sær frá Bakkakoti, Álfur frá Selfossi, Glymur frá Innri-Skeljabrekku, Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Mökkur frá Varmalæk.
Alls tóku 17 manns þátt, flestir völdu Þórodd frá þóroddsstöðum, hann fékk alls 11 atkvæði. Á eftir honum komu þeir Orri frá Þúfu og Stáli frá Kjarri með 9 atkvæði og svo Sær frá Bakkakoti og Gustur með 7 atkvæði alls.
Endilega setjið ykkar hesta ef þið hafið áhuga á að vera með í commenta kerfið hérna að neðan:
Comments| Trackback
Skrifað 29. október 2006
________________________________________________________

Jæja núna er búið að losa haughúsin í hesthúsinu og núna um helgina verður byrjað á frumtamningartryppunum. Þau eru 12 sem eru alveg ótamin, 6 ungfolar á fimmta vetur og 4 hryssur á fjórða vetur og 2 stóðhestar á fjórða vetur, Nemi frá Grafarkoti undan Dyn frá Hvammi og kæti frá Grafarkoti og Órói frá Grafarkoti undan Óttu frá Grafarkoti og Rauðskinna frá Grafarkoti. Það verður gaman að sjá hvernig þessi hross þróast í vetur.
skrifað 19.okt.2006
____________________________________________

Þessa helgina halda húsfreyjurnar á Vatnsnesi sýna árlegu sviðamessu. Þetta er mikil matarveisla með hefðbundnum sviðum heitum og köldum, sviðalöppum, strúpasöltuðum sviðum, og reyktum. Meðlætið er rófustappa og kartöflumús umm...... Svo er auðvitað veislustjóri og söngur, við skelltum okkur í gærkvöldi og vorum ekki svikin af skemmtuninni frekar en vanalega. Þessi hátið er að verða svo vinsæl að uppselt var á kvöldin tvö nánast strax, og sjálfsagt hefði verið hægt að halda þriðju veisluna. Fólk er farið að koma langt að og t.d í gær hefur svona 1/3 verið heimafólk. Myndir
skrifað 14.okt
_________________________________________________________________

Víðidalstungurétt var í dag, þar var margt um manninn og mikil skemmtun! Í gær var sjálf stóðsmölunin og það var eitthvað um 200 manns sem fóru ríðandi á móti safninu. Stoppað var á Kolugili í kaffihlaðborði á baka leiðinni, þar var mikið sungið við undirleik gítara og harmonikka. Hrossin voru síðan rekin í safngirðinguna og þá tók við mikil gleði á bæjunum í kring sem stóð eitthvað fram eftir nóttu.
Í morgun var svo byrjað að rétta klukkan 10 í góðu veðri. Þar var einnig happdrætti, uppboð, söludilkur og ýmsar veitingar til sölu. Svo eftir réttina ráku bændurnir hrossin sín heim og einnig reið skrautreiðarfólkið heim. Núna tekur svo ballið með Geirmundi Valtýrssyni í Víðihlíð við ;-)
Myndir eru hér
skrifað 7. október 2006
__________________________________________________
Við kíktum aðeins í Laufskálarétt um helgina, höfum bara farið einu sinni áður! Þverárétt í V-Hún er nefninlega alltaf á sama tíma, við ákváðum að breyta til svona einu sinni. Það var margt um manninn í réttinni og gaman að hitta fólk. Þó svo að réttin snúist aðallega um mannamót en minna um hrossin sjálf!
Víðidalstungurétt er um næstu helgi og af sjálfsögðu förum við þangað líka, sú rétt er annars eðlis. Meira um hross og minna um kenderí í réttinni sjálfri. Aðal djammið er í niðurreiðinni á föstudeginum og svo eftir réttina á laugardeginum, því þá er ball með Geirmundi í Víðihlíð!!!
En já allir að mæta í réttina um næstu helgi ;-)
smellið á myndina til að fá hana stærri.
Skrifað 2.okt. 2006
______________________________

Þessi fallega hryssa Víf IS2000255410 frá Grafarkoti er nú til sölu. Hún er undan Galsa frá Sauðárkróki og Klassík frá Grafarkoti (8,34 hæfil) Víf er með 1 verðlaun, 8,07 fyrir byggingu þar af 8,5 fyrir háls 8,5 fyrir bak og lend og 8,5 fyrir samræmi, hún er alhliða hryssa með 8,5 fyrir tölt, stökk og Vilja og geðslag, hæfileikaeinkunn 8,18 og aðaleink 8,14. Víf er með staðfest fyl við Gaumi frá Auðsholtshjáleigu.
Skrifað 21. sept. 2006

Þá eru göngur afstaðnar í Vatnsnesfjalli þetta árið. 5 gangnamenn fóru frá Grafarkoti. Hedda er gangnaforingi Miðfjalls, en þann hluta fjallsins smala 17 menn auk Göngufélagsins Brynjólfs sem sjá orðið alfarið um smalamennskuna í "neðra" Nokkur hópur fólks fer líka alltaf ríðandi úr Ánastaðaseli út í rétt og kallast sá hópur skrautreiðin. Okkar gangnamenn þetta árið voru Gúndi, Kolla og Raggi fóru sem einn, Logi fékk að vera Indriði þessar göngurnar þar sem hann lá í pest og Óli og Jói fóru fyrir Fanney sem var líka lasin, ekki það að við eigum svo margar rollur, heldur finnst okkur þetta hin mesta skemmtun. Smölun gekk vel þrátt fyrir þoku sem hamlaði för nokkurn tíma, allir gangnamenn stóðu sig með sóma og var komið niður í Hamarsrétt um 3 leytið, þar sem beið gangnamanna rjúkandi kaffi, kakó og meðlæti hjá húsfreyjunum. Og svo hófust réttarstörfin, við áttum 5 kindur í réttinni. Þessi dagur endar svo alltaf í Gröf þar sem bíður okkar gómsætt læri með öllu tilheyrandi, og á eftir var sungið við eldhúsborðið fram á kvöld.
Skrifað 19. sept. 2006

Síðustu helgi fóru frænkurnar, Rakel Gígja og Júlía Jara, saman í bað. Settum nokkrar skemmtilegar myndir af þeim frænkum inn á myndasíðuna.
Skrifað 13.09.2006
Settum myndir af hundunum okkar sem voru teknar núna í haust inn á myndasíðuna.
Myndin hér fyrir ofan er af Gára sem er rough collie hundurinn okkar!!
Skrifað 12.09.2006

Um síðustu helgi voru 3 kindaréttir í Húnaþingi vestra, þ.e. í Víðidal, Miðfirði og Hrútafirði. Það var margt um manninn í sýslunni og haldin voru 2 réttarböll, annað í Víðihlíð og hitt í Ásbyrgi. Svo um næstu helgi verða tvær aðrar kindaréttir, Hamarsrétt á Vatnsnesi og Þverárrétt í Vesturhópi. Stóðréttirnar í Víðidal verða svo helgina 6 og 7 október.
Hérna er hægt að skoða fullt af myndum frá réttunum. Svo eru göngurnar í Vatnsnesfjallinu næstu helgi og rákumst við inn á skemmtilega heimasíðu sem er haldið af Göngufélaginu Brynjólfi en þeir fara alltaf í göngur í Vatnsnesfjalli.
Skrifað 11. september 2006
______________________________________________________
Firmakeppnin var haldin laugardaginn 2 september. Þáttakan var ágæt og úrslit urðu eftirfarandi:
Kvennaflokkur:
- Hafdís Ýr Óskarsdóttir og Funi frá Fremri-Fitjum
- Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Vera frá Grafarkoti
Karlaflokkur:
- Pálmi Geir Ríkharðsson og Kveikur frá Sigmundarstöðum
- Jóhann B. Magnússon og rauðstjörnótt (man ekki alveg)
- Gumundur Sigurðsson og Stúdent
Börn og unglingar meira vön:
- Fríða Marý Halldórssdóttir og Reynd frá Efri-Þverá
- Leifur George Gunnarsson og Stígur frá Efri-Þverá
- Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Spói frá Þorkelshóli
Börn minna vön:
- Fríða Björg Jónsdóttir og Gríma frá Litla-Dal
- Jóhann Ingvi og brúni klárinn hans Gúnda
- Inga Þórey Þórarinssdóttir og Funi frá Fremri-Fitjum
Skrifað 2. september 2006
_____________________________________________________

Það skiptast á skin og skúrir í hrossaræktinni, þrátt fyrir að við séum mjög ánægð með hryssufjöldann í folaldahópnum þetta árið, urðum við fyrir því óhappi aðfaranótt 25. ágúst að missa jarpt merfolald undan Óttu og Tvinna frá Grafarkoti. Svo virðist sem að folaldið hafi fæðst dautt og er ástæðan ókunn! Ótta er ein af okkar bestu ræktunarhryssum og er tjónið því mikið. Meðfylgjandi mynd er af Óttu 6 vetra á fjórðungsmóti á Vindheimamelum
Skrifað 27.ágúst 2006
_________________________________________________
- Vinamót Vestur og Austur Húnvetninga og Dalamanna

Mótið var haldið í gær laugardaginn 19. ágúst, þáttaka var góð og ekki skemmdi verðrið fyrir en Það var ofboðslega gott, sól og blíða. Hér er búin að vera hitabylgja alla síðustu viku 20 + stiga hiti og það er enn alveg frábært! Myndir eru væntanlegar og hér koma úrslit:
Hér má sjá MYNDIR
B-flokkur I:
- Jhonny frá Hala og Svavar Örn Hreiðarsson 8,66
- Valíant frá Miðhjáleigu og Halldór P. Sigurðsson 8,56
- Lúta frá Stekkjardal og Tryggvi Björnsson 8,50
- Gáski frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon 8,47
- Urt frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir 8,30
B-flokkur II:
- Harpa frá Miklagarði og Margrét Guðbjartsdóttir 8,28
- Elva frá Miklagarði og Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,25
- Gáta frá Miðhópi og Hjördís Ósk Óskarsdóttir 8,17
- Þóra frá Litla-Dal og Sigrún Þórðardóttir 7,90
- Kengála frá Fögrubrekku og Sigríður Ása Guðmundsdóttir 7,84
Ungmennaflokkur:
- Flauta frá Tannstaðarbakka og Fanney Dögg Indriðadóttir 8,45
- Kjarnorka frá Fremri-Fitjum og Helga Rós Níelsdóttir 8,08
- Róni frá Kolugili og Gerður Rósa Sigurðardóttir 8,00
- Pamela frá Galtanesi og Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir 7,82
- Júnía frá Hallsstöðum og Jónfríður E. Hólm 7,58
Unglingaflokkur:
- Moli frá Reykjum og Aðalheiður Einarsdóttir 8,10
- Lýsingur frá Kílhrauni og Signý Hólm 7,79
- Huldar og Daði Rafn 7,33
- Fróði frá Torfastöðum og Karen Ósk 0,00 (reið út af)
Barnaflokkur:
- Reynd frá Efri-Þverá og Fríða Marý Halldórsdóttir 8,46
- Galdur frá Gilá og Stefán Logi Grímsson 8,15
- Vísir frá Miklagarði og Róbert Arnar 7,99
- Frami frá Efri-Þverá og Rakel Run Garðarsdóttir 7,91
A-flokkur:
- Stínóla frá Áslandi og Tryggvi Björnsson 8,49
- Njörður frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon 8,44
- Stígur frá Efri-Þverá og Halldór P. Sigurðsson 8,37
- Gjafar frá Þingeyrum og Helga Thoroddsen 8,25
- Dína frá Skagaströnd og Guðmundur Elíasson 8,24
A-flokkur II:
- Jasmýr frá Reykjum og Aðalheiður Einarsdóttir 7,90
- Frostrós frá Efri-Þverá og Leifur George Gunnarsson 7,84
- Stakur frá Sólheimum og Sigríður Ása Guðmundsdóttir 7,74
- Hrafna-Flóki frá Miðey og Gerður Rósa Sigurðardóttir 7,64
- Tónn og Katrin Gier 7,93 - en hún keppti sem gestur!
100m skeið:
- Jasmýr frá Reykjum og Aðalheiður Einarsdóttir 7,93
- Kapall frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir 8,45
- Hylling og Svavar Örn Hreiðarsson 8,84
150m skeið:
- Fiðringur frá Stóru-Ásgerisá og Magnús Ásgeir Elíasson 15,63
- Stakur frá Sólheimum og Sigríður Ása Guðmundsdóttir 16,59
- Stimpill frá Höfðabakka og Sverrir Sigurðsson 18,66
Skrifað 20 ágúst 2006
________________________________________________

Í dag og í gær er búið að vera frábært veður ca. 20 stiga hiti og sól. Þessi mynd var tekin áðan og hún sýnir samspil sólar og þoku, en þokan læddist inn Miðfjörðinn í kvöld.
skrifað 16. ágúst 2006
_______________________________________________________

Kvennareiðin var í Miðfirði þetta árið, alls mættu 102 konur og þemað var bleikt! Dagurinn var mjög skemmtilegur, ferðin gekk vel, að vísu var reiðin í það lengsta tæpir 20 km og margar konur orðnar ansi lúnar. Stoppað var í Miðfjarðarétt þar var drukkið vel útilátið kaffi og farið í leiki. Og endastöðin var á Laugarbakka á Grettishátíðinni þar sem konurnar fylgdust spenntar með bardaga víkinganna.
Myndir og Myndir á heimasíðu Ínu
skrifað 15. ágúst 2006
_______________________________________________
- Órator íslandsmeistari í tölti

Stóðhesturinn Órator frá Grafarkoti og Katla Gísladóttir urðu íslandsmeistarar í tölti ungmenna nú um helgina. Órator er 7 vetra gamall undan Víkingi frá Voðmúlastöðum og Óttu frá Grafarkoti, sem hefur gefið okkur mjög góð hross með frábært tölt og gott geðslag. Elstu afkvæmi Órators eru 4 vetra og sonur hans Svarti-Pétur var frumtaminn síðasta vetur og hann fer um á hágengu tölti og brokki. Meðfylgjandi mynd er af Kötlu og Órator nýbökuðum íslandsmeisturum.
skrifað 14. ágúst 2006
_____________________________________________

Bikarmótið var haldið föstudaginn og laugardaginn 28 og 29 júlí á Dalvík! Alls kepptu 6 lið og keppnin fór þannig að UMSS sigraði, USVH var í 2. sæti og ÍBA var í 3 sæti. Við í USVH höfum ekki farið á bikarmót undanfarin ár, en nú var ákveðið að slá til og koma saman sveit. Þetta var hið skemmtilegasta mót og góður liðsandi í okkar liði eins og venjulega. Sveitina okkar skipuðu: Tryggvi, Herdís, Jói Magg, Þorgeir, Sverrir, Halldór, Fanney, Magnús, Helga og Alla.
Tölt opinn flokkur:
1. Mette Mannseth UMSS og Bragi frá Hólum 7,1/7,22
2.-3. Hans Kjerúlf ÚÍA og Júpiter frá Egilsstöðum 6,8/6,72
2.-3. Þorbjörn Hr. Matthíasson ÍBA og Von frá Halldórsstöðum 6,6/6,72
4. Fanney Dögg Indriðadóttir USVH og Dögg frá Múla 6,5/6,28
5. Nikólína Rúnarsdóttir ÚÍA og Snoppa frá Kollaleiru 6,6/6,17
Tölt unglingaflokkur:
1. Sigurður Rúnar Pálsson UMSS og Hrund frá Þorkelshóli 5,6/6,39
2. Helga Una Björnsdóttir USVH og Feykja frá Höfðabakka 5,8/6,33
3. Fanndís Viðarsdóttir ÍBA og Sorró frá Hraukbæ 5,3/6,28
4. Sigríður Linda Þórarinsdóttir UMSE og Snót frá Hofsósi 4,3/5,17
5. Atli Þór Friðriksson UMSE og Sýn frá Laugasteini 5,4/3,78 (fór undan skeifa)
Fimmgangur opinn flokkur:
1. Mette Mannseth UMSS og Þrándur frá Hólum 6,7/6,90
2. Stefán Friðgeirsson UMSE og Hugi frá Álftagerði III 6,1/6,36
3. Þorvar Þorsteinsson ÍBA og Röst frá Torfunesi 5,9/5,98
2. Stefán Birgir Stefánsson UMSE/HSÞ og Melódía frá Árgerði 6,4/5,90
4. Guðröður Ágústsson ÚÍA og Áli frá Eyrarlandi 6,0/4,71
Fjórgangur opinn flokkur:
1. Anton Níelsson UMSS og Fengur frá Sauðárkróki 6,9/7,43
2. Mette Mannseth UMSS og Bragi frá Hólum 6,5/6,60
3. Stefán Birgir Stefánsson UMSE/HSÞ og Glymur frá Árgerði 6,3/6,57
4. Elsa Albertsdóttir UMSE/HSÞ og Gustur frá Syðra Vallholti 6,3/6,50
5. Hans Kjerúlf ÚÍA og Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,2/6,27
Fjórgangur unglingaflokkur:
1. Helga Una Björnsdóttir USVH og Feykja frá Höfðabakka 5,7/6,53
2. Sigurður Rúnar Pálsson UMSS og Hrund frá Þorkelshóli 6,1/6,43
3. Fanndís Viðarsdóttir ÍBA og Sorró frá Hraukbæ 5,6/5,93
4. Aðalheiður Einarsdóttir USVH og Lúta frá Stekkjardal 5,8/5,90
5. Steinunn Káradóttir ÚÍA og Sprettur frá Sléttu 5,6/5,65
T2 opinn flokkur:
1. Halldór P. Sigurðsson USVH og Reynd frá Efri-Þverá 6,17/6,54
2. Fanney Dögg Indriðadóttir USVH og Eldur frá Sauðadalsá 5,80/6,21
3. Viðar Bragason ÍBA og Kata frá Björgum 6,17/5,96
4. Mette Mannseth UMSS og Þrándur frá Hólum 6,13/5,92
5. Inga María Stefánsdóttir UMSE og Sendill frá Ásgeirsbrekku 5,90/5,88
Gæðingaskeið:
1. Þór Jónsteinsson UMSE/HSÞ og Seifur frá Skriðu 78,0 stig
2. Mette Mannseth UMSS og Þrándur frá Hólum 77,0 stig
3. Guðröður Ágústsson ÚÍA og Áli frá Eyrarlandi 74,0 stig
4.-5. Stefán Birgir Stefánsson UMSE/HSÞ og Blakkur frá Árgerði 72,5 stig
4.-5. Sveinbjörn Hjörleifsson UMSE og Blævar frá Dalvík 72,5 stig
100m. skeið:
1. Þórarinn Eymundsson UMSS og Ester frá Hólum 7,65 sek.
2. Magnús Bragi Magnússon UMSS og Fjölnir frá Sjávarborg 7,94 sek.
3. Sveinbjörn Hjörleifsson UMSE og Jódís frá Dalvík 8,42 sek.
4. Guðröður Ágústsson ÚÍA og Áli frá Eyrarlandi 8,43 sek.
5. Stefán Birgir Stefánsson UMSE/HSÞ og Blakkur frá Árgerði 8,52 sek.
Sveitakeppnin:
1. UMSS 1377,32 stig
2. USVH 1236,60 stig
3. ÍBA 1231,27 stig
4. UMSE 1116,57 stig
5. UMSE/HSÞ 1012,61 stig
6. ÚÍA 992,90 stig
skrifað 30. júlí 2006
___________________________________________________

Íþróttamótið var að klárast núna í kvöld, þáttaka var góð og ekki skemmdi veðrið fyrir, það var alveg frábært!!! Hér kemur röðunin í úrslitum okkur vantar einhverjar einkunnir, vegna þess að það átti að fara yfir þær aðeins aftur, eitthvað smá tölvuvesen en þetta kemur allt saman.....
Úrslit urðu eftirfarandi:
4-gangur 1. flokkur:
- Jóhanna Heiða Friðriksdóttir og Orka frá Stóru-Ásgeirsá eink.6,63
- Tryggvi Björnsson og Gáski frá Sveinsstöðum eink.6,33
- Herdís Einarsdóttir og Flauta frá Tannstaðarbakka eink.6,30
- Magnús Ásgeir Elíasson og Húni frá Stóru-Ásgeirsá eink.5,53
- Sigurður Halldórsson og Hugbúi frá Kópavogi eink.4,97 (datt undan)
4-gangur 2. flokkur:
- Þorgeir Jóhannesson og Frá frá Rauðuskriðu eink.6,37
- Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi eink.6,33
- Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Sólheimum eink.5,70
- Eydís Ósk Indriðadóttir og Kardináli frá Grafarkoti eink.5,63
- Amalía Kristleifsdóttir og Gantur frá Oddgeirshólum eink.5,37
4-gangur ungmennaflokkur:
- Sonja Líndal Þórisdóttir og Dagrós frá Stangarholti eink.6,73
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðardalsá eink.6,67
- Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Eldur frá Bessastaðagerði eink.6,60
- Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili eink.6,20
- Helga Rós Níelsdóttir og Skjóni frá Fremri-Fitjum eink.5,27
4-gangur unglingaflokkur:
- Jónína Lilja Pálmadóttir og Oddkell frá Sigmundarstöðum eink.5,57
- Sylvía Rún Rúnarsdóttir og Hrókur frá Neðra-Vatnshorni eink.5,53
- Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum eink.5,17
4-gangur barnaflokkur:
- Fríða Marý Halldórsdóttir og Reynd frá Efri-Þverá eink.5,93
- Ásta Björnsdóttir og Fákur frá Tungu eink.5,37
- Róbert Arnar Sigursson og Lippi frá Fremri-Fitjum eink.4,77
Tölt 1. flokkur:
- Tryggvi Björnsson og Lúta frá Stekkjardal eink.7,39
- Halldór Pétur Sigurðsson og Valíant frá Miðhjáleigu eink.7,11
- Herdís Einarsdóttir og Flauta frá Tannstaðarbakka eink.6,67
- Einar Reynisson og Ormur frá Sigmundarstöðum eink.6,61
- Jóhanna Heiða Friðriksdóttir og Orka frá Stóru-Ásgeirsá eink.6,28
Tölt 2. flokkur:
- Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi eink.6,67
- Þorgeir Jóhannesson og Frá frá Rauðuskriðu eink.6,61
- Eydís Ósk Indriðadóttir og Kardináli frá Grafarkoti eink.6,39
- Sigrún Þórðardóttir og Þóra frá Litla-Dal eink.6,22
- Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Stakur frá Sólheimum eink.5,33
Tölt ungmennaflokkur:
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Dögg frá Múla eink.7,50
- Sonja Líndal Þórisdóttir og Dagrós frá Stangarholti eink.6,72
- Helga Rós Níelsdóttir og Dagur frá Fremri-Fitjum eink.0,00 (ógilt)
Tölt unglingaflokkur:
- Aðalheiður Einarsdóttir og Slaufa frá Reykjum eink.6,56
- Jónína Lilja Pálmadóttir og Oddkell frá Sigmundarstöðum eink.5,72
- Telma Björk Sörensen og Nonni frá Borgarhóli eink.4,73
- Leifur George Gunnarsson og Frostrós frá Efri-Þverá 4,06
Tölt barnaflokkur:
- Fríða Marý Halldórsdóttir og Reynd frá Efri-Þverá eink.6,22
- Ásta Björnsdóttir og Fákur frá Tungu eink.5,56
- Rakel Rún Garðarsdóttir og Funi frá Fremri-Fitjum eink.5,17
- Róbert Arnar Sigurðsson og Lippi frá Fremri-Fitjum eink.4,28
5-gangur 1. flokkur:
- Tryggvi Björnsson og Stínóla frá Áslandi eink.7,29
- Jóhann B. Magnússon og Biskup frá Kjarri eink.6,23
- Sverrir Sigurðsson og Halldóra-Margrét Bergstöðum eink.5,44
- Elvar Logi Friðriksson og Hrannar frá Galtanesi eink.5,33
- Rakel Róbertsdóttir og Magni frá Búlandi eink.5,31
Slaktaumatölt / T2:
- Jónína Björk Vilhjálmsdóttir og Hugbúi frá Kópavogi
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá
- Aðalheiður Einarsdóttir og Moli frá Reykjum
- Sylvía Rún Rúnarsdóttir og Snælda frá Neðra-Vatnshorni
- Cristina Niewert og Héðinn frá Hala ( reið ekki úrslit)
100m skeið:
- Sverrir Sigurðsson og Halldóra-Margrét frá Bergstöðum tími:8,40
- Herdís Einarsdóttir og Kapall frá Grafarkoti tími:8,60
- Aðalheiður Einarsdóttir og Jasmýr frá Reykjum tími:8,80
Gæðingaskeið:
- Sverrir Sigurðsson og Halldóra-Margrét eink.6,40
- Tryggvi Björnsson og Stínóla frá Áslandi eink.5,90
- Magnús Ásgeir Elíasson og Fiðringur frá Stóru-Ásgeirsá eink.5,90
Tryggvi Björnsson og Stínóla frá Áslandi urður valin glæsilegasta par mótsins.
Myndir
skrifað 23.júlí 2006
________________________________________
Jæja núna er heyskapurin byrjaður gengur reyndar hægar en áætlað var vegna þoku sem gerir okkur lífið leitt. Það er samt rosalega gott veður hérna í Grafarkoti og er búið að vera gott alla vikuna, fyrir utan þessa þoku sem er aðeins að láta sjá sig... En vonandi getum við klárað það sem búið er að slá fyrir helgina, því um helgina er Opna íþróttamót Þyts.
Það fæðast folöld af og til, myndir af þeim er hægt að finna hér Folöld 2006
Skrifað 20.júlí 2006
______

Litla daman þeirra Eydísar og Óla var skírð í gær 08.07.2006 og heitir hún því fallega nafni Júlía Jara. Veislan var haldin á Þinghúsinu og má sjá myndir frá deginum á heimasíðu dömunnar sem er www.juliajara.barnaland.is
skrifað 09.07.2006

Jæja þá er landsmótið afstaðið, það gekk alveg frábærlega fyrir sig í alla staði! Veðrið var mjög gott, nema þá kannski helst á sunnudaginn en þá ringdi svolítið á áhorfendur. Tvinni 5 v. hækkaði í 8,34 fyrir hæfileika og endaði í 8,22 í aðaleinkunn. Huldumey 4 v. hækkaði einnig í 7,97 í aðaleinkunn og Víf endaði í 8,10 í aðaleinkunn. Reyni og fjölskyldu gekk vel með sínar þrjár 4 v. hryssur, Rakel hækkaði í 8,05 í aðaleinkunn, Aradís hækkaði í 8,02 í aðaleinkunn og Marey endaði í 7,72. Fríða Marý og Eydís Anna komust með Reynd og Mola í milliriðil, vel gert hjá þeim. Og svo komust Fanney og Helga í a-úrslit í sínum flokkum. Fanney og Dögg höfnuðu í 2. sæti í ungmennaflokki og Helga og Gammur höfnuðu í 3. sæti í unglingaflokki. Og stuðningslið Þyts hafnaði í 1 sæti það stóð sig frábærlega allan tímann og meira að segja kl. 10 á sunnudagsmorgni voru all flestir úr liðinu mættir til að hvetja sína liðsmenn, húrra fyrir þeim ;-)
úrslit urðu eftirfarandi:
Ungmennaflokkur:
1. Krummi frá Geldingalæk/ Freyja Amble Gísladóttir - Sleipnir
2. Dögg frá Múla/ Fanney Dögg Indriðadóttir - Þytur
3. Bylur frá Kleifum/ Rósa Birna Þorvaldsdóttir - Sörli
4. Akkur frá Brautarholti/ Viggó Sigurðsson -
5. Ægir frá Móbergi/ Ragnhildur Haraldsdóttir - Léttir
6. Sporður frá Höskuldsstöðum/ Camilla Sigurðardóttir - Máni
7. Segull frá Akrakoti/ Jamila Berg - Fákur
8. Spegill frá Auðsholtshjáleigu/ Eyvindur Hrannar Gunnarsson - Fákur
Unglingaflokkur:
1 Sara Sigurbjörnsdóttir / Kári frá Búlandi Fákur 8,74
2 Valdimar Bergstað / Leiknir frá Vakurstöðum Fákur 8,63
3 Helga Una Björnsdóttir / Gammur frá Steinnesi Þytur 8,60
4 Rúna Helgadóttir / Leikara-Brúnn-Þröstur frá Kolbeinsá Fákur 8,55
5 Rakel Nathalie Kristinsdóttir / Vígar frá Skarði Geysir 8,53
6 Oddur Ólafsson / Ör frá Prestsbakka Ljúfur 8,44
7 Edda Hrund Hinriksdóttir / Glæsir frá Ytri-Hofdölum Fákur 8,42
8 Jón Herkovic / Nastri frá Sandhólaferju Léttir (missti skeifu)
Skrifað 2. júlí 2006
_________________________________________
Stóðhesturinn Grettir frá Grafarkoti IS 2002155416

Verður til afnota í Grafarkoti í sumar.
F. Dynur frá Hvammi M. Ótta frá Grafarkoti.
Grettir er hágengur klárhestur mjög viljugur með gott geðslag.
Kostir: 8,0-8,5-5,0-8,5-8,0-8,5-7,5 = 7,72
Bygging: 8,0-8,5-8,0-8,0-7,5-8,0-8,0-8,0 = 8,05
Aðaleinkunn: 7,85
Folatollurinn kostar 25.000 með vsk. Nánari upplýsingar í símum
860-2056 Indriði eða 848-8320 Hedda.
Stóðhesturinn Tvinni frá Grafarkoti IS 2001155416

Verður til afnota í Grafarkoti í sumar. (Eftir landsmót)
F. Kvittur frá Grafarkoti. M. Sameign frá Sauðárkróki.
Tvinni er einsaklega geðgóður og traustur hestur, að honum standa stóðhestarnir Hrafn frá Holtsmúla, Hervar frá Sauðárkróki, Sörli frá Sauðárkróki og Kjarval frá Sauðárkróki.
Kostir: 8,5-8,0-8,0-8,0-8,5-8,5-9,0 = 8,34
Bygging: 8,5-8,0-8,5-8,0-8,0-7,5-8,0-8,0 = 8,04
Aðaleinkunn: 8,22

Hæ hó jibbí jei og allt það. 17 júní var haldinn hátíðlegur á vegum hestamannafélagsins Þyts í ágætu veðri. Farið var frá félagsheimilinu og upp í Kirkjuhvamm sem er félagssvæði Þyts. Þar var glens og gaman s.s. leikir, grill, tombóla, Rauðu dívurnar sýndu atriðið sitt og margt fleira. Meðfylgjandi mynd er af fánaberunum sem eru 3 stúlkur í Þyt, þær Fanney, Alla og Hjördís. í kvöld verða svo ræktunarbúasýningar, grill og fleira sprell upp í Hvammi.
Rauðu dívurnar 17. júní.
skrifað 17. júní 2006
______________________________________________

4 vetra hryssan Huldumey frá Grafarkoti var sýnd í Glaðheimum í Kópavogi í gær og svo var yfirlitið í dag, veðrið var ömurlegt, rok og rigning ekki bestu aðstæður fyrir unga viljahryssu. Hún komst inn á landsmót með einkunnirnar, bygging: 8,5-9,0-7,0-8,0-7,5-8,0-8,0-7,0 = 8,10 og hæfileikar: 7,5-7,5-7,0-8,5-8,0-8,0-7,5 = 7,69 Aðaleinkunn: 7,85 Þá er það ljóst að það fara 6 hross frá Grafarkoti á landsmót, 3 sem kynbótahross og 3 í gæðingakeppni. Þess má til gamans geta að Huldumey eignaðist bróður í morgun. Vakning kastaði jörpum hesti undan Órator frá Grafarkoti meðfylgjandi mynd er af honum.
Skrifað 15. júní 2006
___________________________________________
Loksins allar tölurnar fundnar, sjá í skjalinu hérna fyrir neðan ;-)
Gæðingamót_Þyts.doc
skrifað 14. júní 2006
_____________________________________________________
- Gæðingamót Þyts - úrtaka fyrir LM

Úrtaka Þyts og Neista var haldin í gær laugardaginn 10. júní í óskaplega góðu veðri, það var sól og blíða allan daginn og 15-20 stiga hiti. Það var mjög góð þáttaka rúmlega 20 keppendur í A og B flokki. Fulltrúar Þyts á landsmót 2006 eru eftirfarandi:
'Urtaka_f._landsmÓt_2006.doc
Skrifað 11. júní 2006
___________________________________________________________
- Yfirlitssýningin afstaðin

Uppáhaldið hennar Heddu - Tvinni
Jæja þá er yfirlitið búið, Tvinni hækkaði fyrir skeið. Hæfileikar: 8,5-8,5-8-7,5-8,5-8-8,5= 8,27 bygging: 8,04 aðaleinkunn: 8,18
Víf varð fyrir því óhappi að grípa á sig á frábærum skeiðspretti og gat því ekki lokið sýningu. En hún fer á landsmót, hæfileikar: 8,5-8,0-8,0-8,5-8,5-7,5-8,0= 8,18 bygging: 8,07 aðaleinkunn: 8,14
Urt átti góða sýningu, hún hækkaði fyrir stökk í 8,5. hæfileikar: 8,5-8,5-5,0-8,5-8,5-8,5-5,5=7,90 bygging: 7,78 aðaleinkunn: 7,85
skrifað 04.06.´06
_____________________________________________________________
Tvö hross komumst inn á landsmót frá Grafarkoti. Annað var Víf 6 vetra undan Galsa frá Sauðárkróki og Klassík frá Grafarkoti Hún hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt. Fyrir byggingu fékk hún 8,07 og hæfileika 8,18 - aðaleinkunn: 8,14. Og svo var það Tvinni 5 vetra stóðhestur undan Kvitt frá Grafarkoti og Sameign frá Sauðárkróki, hann hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt, brokk og vilja og geð. Fyrir byggingu fékk hann 8,04 og fyrir hæfileika 8,19 - aðaleinkunn: 8,13. Svo er yfirlitissýningin á laugardaginn.
- Eydís og Óli eignuðust dóttur

Eydís og Óli eignuðust dóttur rétt fyrir tvö í nótt 31.05. Hún er 13 merkur og 51 cm og alveg rosalega flott stelpa. Eydís átti í Reykjavík og fór svo seinnipartinn í dag á Akranes þar sem hún ætlar að liggja eitthvað áfram.
Smá video af skvísunni: MOV09D.MOD
MOV09E.MOD
Skrifað 31.05.2006
Það eru ekki nema alvöru ræktunarmenn sem fá hryssur. Þessi fleyga setning var einu sinni sögð hér í Grafarkoti og oft hefur verið vitnað til, en núna erum við nokkuð ánægð með hryssurnar fimm sem eru kastaðar því allar hafa þær komið með hryssur. Nú í nótt kastaði Klassík rauðskjóttri hryssu undan Álfi frá Selfossi.
Endilega kíkið á myndirnar hér *Folöld 2006*

Skrifað 30.05.2006
_______________________________________________

Fanney útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbraut á Króknum núna á föstudaginn. Haldin var grillveisla í Grafarkoti og hérna má sjá nokkrar myndir.
Skrifað 27.05.2006
Jæja vorhretið stóð ekki lengi, því hér er hitinn kominn upp í 14 stig í sólinni. Við erum búin að setja kindurnar aftur út og hrossin líka. Þau voru mjög fegin að komast út og lömbin hlupu eins og óð út um öll túnin. Við erum mjög fegin að það sé aftur kominn maí :)
skrifað 25.05.2006
____________________________________________________
- Vorið er komið og farið...
Jæja við búum örugglega á Íslandi þar sem allra veðra er von. Í dag 23. maí er veðrið eins og það getur verið í janúar. Það er mjög hvasst og éljagangur og hitastig við frostmark. Í gær settum við allar kindurnar sem komnar voru út með lömbum sínum, inn aftur. Við rákum líka öll veturgömlu tryppin inn og fylfullu hryssurnar ásamt þeim 3 sem eru kastaðar og þær eru núna inni í reiðskemmunni okkar. Yngsta folaldið sem er rauð Hágangsdóttir neitar að fara út í þetta veður.



skrifað 23.05.2006
__________________________________________________
- Sauðburðurinn á fullu, Rakel fékk að vera með í stússinu!!!

Vorið er komið og grundirnar gróa
Nú er vorið komið og allt sem því fylgir. Fuglarnir eru farnir að syngja og sæta andarparið er mætt á sinn stað. sauðburðurinn er byrjaður og fyrsta folaldið er komið í heiminn. Það var Tign sem var fyrst til þess að kasta, hún átti brúnskjótta hryssu unda Gammi frá Steinnesi. Tamningar ganga vel, stefnt er með nokkur hross á kynbótasýningu bæði á Sauðárkróki og Hvammstanga. Hér koma svo nokkrar myndir sem teknar voru í gær 1. maí !!!!!
Grettir frá Grafarkoti 4v stóðhestur Vera frá Grafarkoti

Tvinni frá Grafarkoti 5v stóðhestur Sædynur frá Múla 4v stóðhestur
Skrifað 2. maí
___________________________________
Jæja núna eru viðburðarríkir dagar afstaðnir, við vorum meira og minna í Skagafirðinum frá miðvikudegi til sunnudags, en um síðustu helgi var stórsýningin "Tekið til kostanna" á Sauðárkróki. Hedda, Fanney og Logi voru með hross í sýningunni. Logi var með Aþenu frá Hóli í klárhryssum 2 og Orku frá Stóru-Ásgeirsá í karlaatriðinu "Aðalkjéllerner í Þyt" Hedda var með Flautu frá Tannstaðarbakka í klárhryssum 2 og Urt frá Grafarkoti í klárhryssum 1 og svo var hún með Kotru frá Grafarkoti í atriðinu "Rauðu dívurnar" Fanney var með Dögg frá Múla í klárhryssum 1 og svo keppti hún í gæðatöltinu á henni og varð þriðja. Einnig var hún í "Rauðu dívunum" með Eld frá Sauðadalsá. Sýningin tókst vel og var mjög skemmtileg ;-) Atriðið "Rauðu dívurnar" vakti mikla lukku og var valið besta atriði sýningarinnar.
Rauðu dívurnar
skrifað 26. apríl
______________________________________________

Mikið fjör hefur verið það sem af er páskum, á Skírdag var grill í Garðarströð 1 og þar var rosalegt stuð. Svo var farið í langan útreiðartúr á Föstudaginn langa. Logi og Reynismenn komu frá Gauksmýri með fleiri hross en við gátum talið, við hér í Grafarkoti rákum öll hross sem eru á járnum, svo kom Höfðabakkafólk á móti okkur með sín hross að Norðurbraut, sem og Hvammstangafólkið Hjördís, Sirrý, Dóri Fríða Mary, Leifur og Rakel síðan reið öll hersingin út á Hvammstanga. Hrossin í hópnum hafa sjálfsagt verið um 90. Eftir gott stopp á Tanganum riðum við "Múlafólk" til baka. Aldeilis ljómandi dagur. Hér fyrir neðan eru svo myndir ;-)
Myndir
Í gær settum við folöldin og ungu stóðhestana út eftir nokkra daga inniveru vegna leiðindarveðurs og það var mikið fjör hjá þeim. Hérna eru myndir af ungu stóðhestunum og nokkrum folöldum úti. Eins og má sjá þá er mikill snjór í Grafarkoti núna en rosalega fallegt veður, sól og blíða. Efri myndasyrpan er af ungu stóðhestunum og neðri myndasyrpan er af litlu folöldunum.






Skrifað 09.04
_________________________
Tamningar ganga vel, veðrið hefur reyndar aðeins verið að stríða okkur. Það var gott veður í gær og í dag. En spáin lítur ekki vel út fyrir morgundaginn, það er spáð stormi á Norðurlandi Vestra sem færir sig svo austur. Hérna eru myndir af tveimur 4 vetra Sæsdætrum, sem við erum með í tamningu núna. Þær eru báðar mjög skemmtilegar!



Huldumey á stökki og tölti og Fórn á tölti
Skrifað 04.04
_______________________________________________
Það var mikið um að vera á Blönduósi í gærkvöldi þegar Stórsýning Húnvetnskra hestamanna var haldin. Við sáum sýninguna ekki í heild sinni því við vorum í nokkrum atriðum sjálf, og þá missir maður af svo mörgu öðru. En höllin var stútfull og það fólk sem við hittum var mjög ánægt. Sex hross fóru frá Grafarkoti, Flauta í klárhryssur Urt og Grásíða sem Óttudætur og svo voru Fanney og Dögg heiðraðar af Þyt vegna tilnefningar um efnilegasta knapa ársins 2005. Og svo voru Hedda og Fanney með Kotru og Eld í konuatriðinu Rauðu dívurnar sem var auðvitað mjög flott (¨,) Logi var með 2 hross, Aþenu frá Hóli í klárhryssuatriði og Núp frá Sauðárkróki í karlaatriðinu og skeiðinu.
skrifað 19.03
_________________________________________
- Ísleikar á Gauksmýrartjörn 11. mars
Hestamannafélagið Þytur hélt ísleika á Gauksmýrartjörn laugardaginn 11. mars. Keppt var í tölti í 1. flokki, 2. flokki og unglingum og svo í skeiði. Við erum ekki alveg klár á því hvað allir hestarnir heita sem lentu í úrslitum en við bætum úr því fljótlega. Einnig er von á myndum af flest öllum von bráðar :)
En Þátttakan var mjög góð og úrslit urðu eftirfarandi:
1. flokkur:
- Herdís Einarsdóttir og Flauta frá Tannstaðabakka
- Gunnar Reynisson og Ormur frá Sigmundarstöðum
- Kolbrún Grétarsdóttir og Hetta frá Útnyrðingsstöðum
- Einar Reynisson og Erill frá Sigmundarstöðum
- Sverrir Sigurðsson og Salka frá Höfðabakka
2. flokkur:
- Þorgeir Jóhannesson og Frá frá Rauðuskriðu
- Guðný Helga Björnsdóttir og Brynjar frá Syðstu-Grund
- Kolbrún Stella Indriðadóttir og Urt frá Grafarkoti
- Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Gáta frá Miðhópi
- Elín Jónasdóttir og Spói frá Þorkelshóli
Unglingar og börn:
- Aðalheiður Einarsdóttir og ?
- Fríða Marý Halldórsdóttir og Reynd frá Efri-Þverá
- Margrét Eik Guðjónsdóttir og ?
- Sylvía Rún Rúnarsdóttir og Hrókur frá Neðra-Vatnshorni
- Leifur George Gunnarsson og ? frá Efri-Þverá
Skeið:
- Einar Reynisson og Glæsir frá Sigmundarstöðum
- Elvar Logi Friðriksson og Núpur frá Sauðárkróki
- Jóhann B. Magnússon og Biskup frá Kjarna
- Gunnar Reynisson og Auður frá Sigmundarstöðum
- Jóhann Albertsson og Röggfaxi frá Gauksmýri
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Þráður frá Bæ
- Sigríður Ása Guðmundsdóttir og Kolfinnssonurinn
- Ægir Sigurgeirsson og ? frá Stekkjardal
Myndir
- Ísleikar á Svínavatni 05. mars
Úrslit.doc
Hedda, Fanney og Logi fóru frá Grafarkoti og kepptu á mótinu. Hérna eru myndir af hrossunum þeirra :)


Skrifað 06. mars 2006
______________________________________________
- Töltmót 2 á Blönduósi 03.mars 2006
Jæja þá er töltmótið afstaðið, það fór fram í gærkvöldi! Þátttaka var góð um 60 skráningar og úrslit urðu eftirfarandi:
Töltmót 03 mars 2006.doc
skrifað 04. mars 2006
____________________________
- Bautatöltið Akureyri 2006
Bautatöltið var haldið laugardagskvöldið 18. febrúar. Fanney keppti á Dögg og gekk þeim stöllum ljómandi vel enduðu í 6-7 sæti í fyrsta flokki, af 71 keppanda. Þess má geta að í forkeppninni fengu þær í einkunn 7,1 7,1 og svo 6,4 þessa síðustu tölu vorum við ekkert sérlega ánægð með. Þessi ágæti dómari hélt svo áberandi áfram að halda þeim stöllum niðri í B- úrslitunum, en þar enduðu þær með einkunina 7,44. Fleiri Þytsfélagar mættu til leiks, Gunnar Reynisson keppti á Erli frá Sigmundarstöðum og enduðu þeir í 8-9 sæti, einnig kepptu Tryggvi Björnsson á Stínólu frá Áslandi og Helga Una Björnsdóttir á Orðu frá Gauksmýri.
skrifað 20.02.2006
__________________________________________________

Hestamannafélagið auglýsti útreiðartúr á laugardaginn, um 30 félagsmenn mættu,og riðu þeir fram að Syðri-Völlum í blíðskapar veðri, þar tóku húsráðendur Ingunn Reynisdóttir og Pálmi Geir Ríkharðsson höfðinglega á móti hópnum. Að Syðri-Völlum er nýbúið að taka í notkun nýinnréttað hesthús og var það auðvitað skoðað hátt og lágt, eftir gott stopp var svo riðið aftur út á Hvammstanga, hrossum komið í hús, og í lokin var sameiginlegur kvöldmatur í húsi félagsins. Þátttakendur voru sammála um að svona daga mætti halda oftar.
Myndir
skrifað 19.02 2006
____________________________________
Roði frá Múla verður staðsettur á Gauksmýri í einu stóru gangmáli í sumar. Roði fékk fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á landsmótinu á Vindheimamelum 2002. Nánari upplýsingar gefur Indriði í símum: 860-2056 og 451-2923.
Hér koma svo myndir af 3 afkvæmum Roða; þetta eru Dögg frá Múla, sem er afar viljug og góð keppnishryssa, hún hefur m.a. hlotið 8,67 í forkeppni í B-flokki og 7,61 í töltkeppni. Rúna frá N-Vatnshorni sem hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og vilja og geðslag 8,5 fyrir fegurð í reið, brokk og stökk. Og síðasta myndin er af Rauðskinna frá Grafarkoti 1.v stóðhesti sem við seldum út til Bandaríkjanna 2003. Hann hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt, vilja og geð og fegurð í reið 5 vetra.



skrifað 6. maí
__________________________________________
Skrifað 13.05.2006
Fjórgangsmót meistarakeppni Húnvetninga var haldið 17. febrúar þátttaka var ágæt, dómarar voru Valur Valsson og Arndís Brynjólfsdóttir og fórst þeim verkið vel úr hendi. Dómar lágu þó ansi lágt, sérstaklega í opna flokknum og var það mál manna að tölur þar hafi legið einum heilum of lágt að meðaltali.
Alla systir Heddu var að keppa á sýnu fyrsta móti, hún keppti í öðrum flokki á Össur frá Grafarkoti og enduðu þau í þriðja sæti, frábært það
úrslit.doc

Verðlaunaafhending 1.flokkur Verðlaunaafhending 2. flokkur
skrifað 18.feb 2006.
________________________________________________
Hér er búið að vera leiðindaveður síðan á hádegi á þriðjudag alltaf rokhvasst og ýmist rigning eða snjókoma svo það fer lítið fyrir útreiðum utandyra. En þá er tíminn notaður í reiðskemmunni.

Skrifað 17.02.2006.
- Töltmót á Blönduósi 3. feb
Orraboltarnir þarna í neðri röð, eða mig minnir að pabbi hafi sagt mér að þeir vildu láta kalla sig það. (Kolla)
Fyrsta töltmótið var haldið á Blönduósi í gærkvöldi eða 3 febrúar. Þátttaka var góð og fjöldi áhorfenda.
úrslit.doc
Myndir
skrifað 04.02.2006
Tamningar ganga vel í Grafarkoti, tryppin þetta árið eru öll mjög skemmtileg og geðgóð. Við erum með 3 efnilega graðfola á fjórða vetur sem allir eru undan Dyn frá Hvammi. Þeir eru á góðri leið í tamningunni.
Flygill frá Bæ í Hrútafirði. Hann er undan klárhryssunni Fiðlu frá Kirkjubæ sem hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt og brokk þegar hún var sýnd 5 vetra árið 1990. Flygill er ekki byrjaður að stíga töltið en er rúmur og langstígur á brokki.
Sædynur frá Múla, undan Litlu-Þrumu frá Múla sem er einnig móðir Roða frá Múla. Hún fékk m.a. 9,0 fyrir háls herðar og bóga. Sædynur fer bæði á brokki og tölti og er strax kominn í fallegan höfuðburð.
Grettir frá Grafarkoti er sonur Óttu frá Grafarkoti sem hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt, 8,5 fyrir stökk, 9,0 fyrir vilja og 9,0 fyrir fegurð í reið. Grettir fer á brokki en það er laust í honum töltið og hann virðist ætla verða fjörhestur.
skrifað 01.02.2006
- 2 ungar hryssur í tamningu
Hérna eru svo hinar tvær 4 vetra hryssurnar sem eru í tamningu í Grafarkoti núna, þessi rauða er undan Eið frá Oddhóli og Kímni frá Grafarkoti og þessi jarpa er undan Sveini-Hervari frá Þúfu og Tign frá Grafarkoti.

skrifað 15.01.2006
Þrettándagleðin var haldin sunnudaginn 8. janúar í stað 6. janúars vegna óveðurs þann dag. Jólasveinar, Grýla, Leppalúði og litlu svörtu púkarnir mættu á svæðið og svo auðvitað Álfadrottningin og Álfakonungurinn sem voru í sínu fínasta skarti. Hestamenn mættu á sínum gæðingum og göngufólkið bar kyndla. Lagt var af stað frá Pakkhúsplaninu og farið góðan hring á Hvammstanga og endað í reiðskemmunni á Höfðabakka, þar sem boðið var upp á vöfflur og heitt kakó.

Jólasveinarnir með Grýlu og Leppalúða Álfadrottningin og Álfakonungurinn
skrifað 10.01.2006