Hundar
Við eigum 3 hunda í Grafarkoti núna, Fanney og Logi fengu sér tík frá Rauðalæk í Holtum, hún heitir Assa. Og svo fékk Hedda sér systir hennar sem heitir Vala. Þetta eru greindar og duglegar tíkur, þær eru fæddar 6.júlí 2005.

Vala og Assa


Svo komu Fanney og Logi færandi hendi og gáfu okkur algeran speking. Hann heitir Gári og er hreinræktaður collie (lassie) hundur frá Tunguhálsi í Skagafirði, fæddur 7 mars 2006.
- Hundar sem eru fallnir frá -
Í gegnum tíðina höfum við eiginlega bara átt tíkur. Settum inn myndir af nokkrum hundum sem við höfum átt.
Móa er 3/4 íslendingur og 1/4 Border Collie. Við áttum hana í 7 ár, en hún fékk krabbamein núna veturinn 2006. Og svo er það Æsa, hún var hreinræktaður border collie.

Móa hvolpur Móa fallega
- Æsa í garðinum-
Fleiri myndir af Móu má sjá hér.

Erró fæddist vorið 2004 og er undan Æsu, við ætluðum að eiga hann en hann lenti fyrir bíl greyið. Var algjör spekingur. Aska systir hans fór að Neðri Þverá.

Erró og Aska - spekingsleg og svo er hin myndin af Vöku, hún var hreinræktuð Border Collie en dó árið 2003 úr veirusýkingu. Hún varð 6 ára.

Hektor og Skuggi eru undan Móu og fæddust vorið 2003. Skuggi á heima á Reykjum í Hrútafirði en Hektor býr inn í Svartárdal.
____________________________________________________________