Um okkur
Hver og hvar erum við!
Grafarkot er staðsett miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar. Bærinn stendur við þjóðveg 1, sjá hér. Ábúendur í Grafarkoti eru Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir ásamt dætrum sínum. Hér var stundaður fjárbúskapur ásamt hrossabúskap þar til fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur eingöngu verið um hrossabúskap að ræða. Hestar og allt sem þeim fylgir hefur alltaf verið stór partur af lífi fjölskyldunnar og ekki má gleyma hundunum sem eru systurnar Vala og Assa og svo er prinsinn í hópnum, rough collie hundurinn Gári
Árið 2001 var byggt hesthús fyrir 30 hross, 20 stíur fyrir einn hest hver, og 5 tveggja hesta stíur, einnig er áföst reiðskemma sem er 30*12 m löng, hún nýtist einkar vel við þjálfun og tamningar.
Allar stelpurnar eru mjög áhugasamar, og hafa gaman af öllum þáttum hestamennskunnar. Allar hafa þær tekið þátt í keppni oft með góðum árangri. Alltaf er reynt að fara í eina góða hestaferð á hverju sumri og svo eru hestarnir notaðir við smalamennskur á haustin.
Þannig að hestamennskan er mjög fjölbreytt í Grafarkoti og ekki einblínt á einn þátt hennar.
Haustið 2002 voru svo reyndar keyptar 18 gimbrar og 1 hrútur svona til gamans, svo fjárbúskapur er hafin aftur þó í smáum stíl sé, og núna '05 eru kindurnar orðnar 44 og fer ört fjölgandi ef viss hluti fjölskyldunnar fær að ráða.
Hesthúsið

Séð að utan Þrír gangar

Greifi í hesthúsinu Séð yfir hesthúsið

Reiðskemman
Til í slaginn...
Fjölskyldan
Indriði og Háleggur frá Grafarkoti & Herdís og Æra frá Grafarkoti

Fanney & Ásjóna, Eydís & Kardináli og Kolla & Arfur
Kolla keppti mikið á töltaranum Sölva frá Skáney.
Kolla fékk F.T. verðlaunin á FM '93
Eydís og Kardináli

Fanney og Nátthrafn, þau náðu þeim árangri saman að verða þriðju í barnaflokki á LM 1998 og Fanney og Dögg voru í 2. sæti á LM 2006, sem og íslandsmeistarar í tölti ungmenna 2007.

Fanney og Ásjóna sem er 1. verðlauna Hervarsdóttir, hún var keppnishryssan hennar Fanneyjar og er núna orðin aðalræktunarhryssan hennar. Á 2 dætur, önnur er undan Órator frá Grafarkoti og hin er undan Sólon frá Skáney.
Nýja daman í fjölskyldunni
Rakel Gígja
Nýtt myndband af dömunni að bardúsa:
25.10_012.avi

Skírnin 15. ágúst Sofnaði hjá afa

Hjá ömmu 2 mánaða

Hjá Eydísi frænku Hjá mömmu minni

Fyrsta skipti á hestbak 3 mánaða.

Vinkonurnar í góðu veðri vorið 2005 Á hvað skildu þær vera að horfa?

Rakel Gígja í garðinum Ég og amma mín
Myndir frá jólunum 2005
Nýtt video af Rakel Gígju en hún er byrjuð að segja MMamma og babb. (mars 2005)
13.03_013.avi
15.03_015.avi