FRÉTTIR
Fyrsta mótinu í Húnvetnsku liðakeppninni lokið. 103 keppendur skráðir til leiks og var því ekki auðvelt starf dómaranna að dæma þennan fjölda á einu kvöldi. En mótið tókst rosalega vel, allt samkvæmt tímaáætlun mótanefndar og vill mótanefnd þakka öllu því frábæra starfsfólki sem aðstoðaði við að gera mótið svona skemmtilegt
Sex hross frá Grafarkoti tóku þátt í keppninni og komu þau öll vel fyrir og voru búinu til sóma, það voru, Grettir Dynssonur ,Kasper Klettssonur, Stuðull Gammssonur, Loki Óratorssonur, Kufl Klettsonur og Össur Safírssonur
Úrslit urðu eftirfarandi: einkunnir, forkeppni / úrslit
1. flokkur:

A-úrslit
1. Tryggvi Björnsson og Penni frá Glæsibæ, eink. 6,90 / 7,3
2. Helga Una Björnsdóttir og Ólga frá Steinnesi, eink. 6,65 / 7,1
3. Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti, eink. 6,50 / 7,05
4. Agnar Þór Magnússon og Hrímnir frá Ósi, eink. 6,65 / 7,00
5. Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum, eink. 6,55 / 6,85

B-úrslit.
5. Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti, eink. 6,50 / 6,85
6. Kolbrún Grétarsdóttir og Snilld frá Hellnafelli, eink. 6,20 / 6,60
7. Fanney Dögg Indriðadóttir og Stuðull frá Grafarkoti, eink. 6,2 / 6.60
8. Ólafur Magnússon og Eðall frá Orrastöðum, eink. 6,3 / 6,4
9. Elvar Einarsson og Höfðingi frá Dalsgarði, eink. 6,35 / 6,2
10. Elvar Logi Friðriksson og Syrpa frá Hrísum II, eink. 6,20 / 6,15
11. Halldór Svansson og Fursti frá Efri-Þverá, eink. 6,30 / 6,1
2. flokkur

A-úrslit
1. Ninni Kulberg og Sóldögg frá Efri-Fitjum, eink. 6,05 / 6,85
2. Patrik Snær Bjarnason og Gígur frá Hólabaki, eink. 5,85 / 6,45
3. Gréta B Karlsdóttir og Frá frá Rauðuskriðu, eink. 5,55 / 6,25
4. Kolbrún Stella Indriðadóttir og Kasper frá Grafarkoti, eink. 5,65 / 6,15
5. Elín Íris Jónasdóttir og Spói frá Þorkelshóli, eink. 5,70 / 6,05

B-úrslit
5. Gréta B Karlsdóttir og Frá frá Rauðuskriðu, eink. 5,55 / 6,15
6. Ragnar Smári Helgason og Blær frá Hvoli, eink. 5,35 / 5,95
7. Jónína Lilja Pálmadóttir og Þáttur frá Seljarbrekku, eink. 5,50 / 5,75
8. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir og Sæla frá Hellnafelli, eink. 5,45 / 5,60
9. Sveinn Brynjar Friðriksson og Gosi frá Hofsvöllum, eink. 5,30 / 5,20
Unglingaflokkur
A-úrslit
1. Sigrún Rós Helgadóttir og Biskup frá Sigmundarstöðum, eink. 6,0 / 6,80
2. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II, eink. 5,80 / 6,00
3. Jóhannes Geir Gunnarsson og Þróttur frá Húsavík, eink. 5,95 / 5,95
4. Rúna Halldórsdóttir og Stígur frá Reykjum, eink. 5,60 / 5,95
5. Ásta Björnsdóttir og Glaumur frá Vindási, eink. 6,15 / steig af baki

B-úrslit
5. Rúna Halldórsdóttir og Stígur frá Reykjum, eink. 5,60 / 6,1
6. Klara Sveinbjörnsdóttir og Óskar frá Hafragili, eink. 5,50 / 5,75
7. Fríða Marý Halldórsdóttir og Sómi frá Böðvarshólum, eink. 5,70 / 5,70
8. Rakel Rún Garðarsdóttir og Lander frá Bergsstöðum, eink. 5,00 / 5,40
9. Eydís Anna Kristófersdóttir og Viður frá Syðri-Reykjum, eink. 5,10 / 4,95
Staðan í liðakeppninni eftir fyrsta mót:
1. Lið 1 með 54,5 stig
2. Lið 2 með 33,5 stig
3. Lið 3 með 17 stig
4. Lið 4 með 7 stig
Myndir frá mótinu má sjá hér.
Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar
Skrifað 0.02.2010
Liðakeppnin.
Nú fer hin skemmtilega liðakeppni að byrja aftur, liðin verða fjögur eins og í fyrra og stefnir í hörkukeppni. 'I fyrra voru aldrei færri en um 50 skráningar og upp í rúmlega 80, og vonandi verður sama fjörið í vetur. Keppt er í 1 og 2 flokki og unglingaflokki. Byrjað er að hita upp fyrir keppnina og hér er kynning á ábúðarfullum liðstjórum keppninar :))
Liðsstjórarnir spurðir spjörunum úr :)
Núna styttist í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar, en það er 5. febrúar nk. og verður keppt í fjórgangi. Kolla tók viðtal við liðsstjórana fjóra og spurði þá alla sömu spurninganna. Hér koma svörin þeirra og myndir af þeim.
Svo flottir liðsstjórar

Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir liðsstjóri liðs 1, Hvammstangi, Hrútafjörður og Miðfjörður.
Hvernig leggst Liðakeppnin 2010 í þig? Liðakeppnin leggst einstaklega vel í mig þetta árið, enda nýskriðin undan jólum.
Er liðið komið með slagorð? Vissulega.... Það hljómar svo. Draumaliðið, þar sem þínir villtustu rætast!
Á eitthvað annað lið séns í þitt lið í vetur? Það byrja öll liðin á núlli svo í upphafi eiga allir jafnmikin séns. Ég hef samt sem áður ekki áhyggjur á að gengi okkar verði valt, síður en svo. Við byrjum jöfn og endum svoleiðis langt frá því ;)
Er búið að kaupa einhverja nýja knapa? Tryggvi Björnsson myndi teljast dýrari en Eiður Smári í dag. Við keyptum hann með öllum hans kröfum. Alltaf klakavatn í hesthúsinu, 3 svört handklæði, kattasandur, aðgangur að interneti og engir speglar.
Helduru að Gunnar sé búin að jafna sig eftir höfuðhöggið? Ég held hann hafi bara batnað við það ef eitthvað er.....
Er eitthvað snobb í þínu liði? Nibb... Kolla Stella er ekki með okkur í liði ;)
Verða fleiri aðkomumenn en heimamenn í þínu liði? Klárlega heimamenn....
Heldur þú að Logi fái stig í ár? (hver man ekki eftir Liðakeppnislaginu og hvernig þetta fór í fyrra) Hans vegna vona ég það innilega, mín vegna vona ég það alls ekki! Hef samt trú á karlinum að næla sér í nokkur, en það mun vera fyrir annað sæti þar sem einhver úr mínu liði verður í því fyrsta...
Nú er stigahæsti liðsmaður Austur-Húnvetninga frá því í fyrra fluttur til Noregs, teljið þið að þeir séu með einhver önnur tromp á hendi? Já ég myndi halda það, án þess að hafa hundsvit á því...
Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri? Megi besta liðið sigra og EF það er ekki mitt lið megi næstbesta liðið sigra og EF það er ekki mitt lið megi næstnæstbesta liðið sigra og EF það er ekki mitt lið megi þá næstnæstnæstbesta liðið sigra.... sem sagt Draumaliðið, þar sem þínir villtustu rætast!

Indriði Karlsson liðsstjóri 2 Goods, liðs 2. Vatnsnes / Vesturhóp
Hvernig leggst Liðakeppnin 2010 í þig? Alltaf gaman að vinna :)
Er liðið komið með slagorð? Engan ungmennafélagsanda
Á eitthvað annað lið séns í þitt lið í vetur? Gefur augaleið NEI...
Er búið að kaupa einhverja nýja knapa? Já keyptum Alexander Peterson fyrir Haddý
Heldurðu að Gunnar sé búin að jafna sig eftir höfuðhöggið? Já, held reyndar að hann hafi aðeins skánað við höggið
Er eitthvað snobb í þínu liði? Fyrir utan Kollu ????
Verða fleiri aðkomumenn en heimamenn í þínu liði? Nei ekki nema við kaupum fimmta og öflugasta liðið frá því í fyrra, slökkviliðið.
Heldur þú að Logi fái stig í ár? (hver man ekki eftir Liðakeppnislaginu og hvernig þetta fór í fyrra) Ertu að tala um Loga í beinni ??
Nú er stigahæsti liðsmaður Austur-Húnvetninga frá því í fyrra fluttur til Noregs, teljið þið að þeir séu með einhver önnur tromp á hendi? Já þeir hljóta að virkja Dísus kræst from the Hæl
Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri? Já eins og Vatnsnesskáldið orðaði það:
Markvisst hross og mannskap allan þjálfum
má því telja víst að sigur er í höfn.
Líklega mun fyrsta sætið lenda hjá mér sjálfum
liðin sem á eftir koma verða nokkuð jöfn.
En kæru vinir ekki verða voðalega tens
verið heldur glöð og sýnið kæti.
Því auðvitað þið eigið alltaf ofurlítinn séns
á öðru, þriðja eða fjórða sæti.

Gunnar Þorgeirsson liðsstjóri liðs 3, Víðidalur / Fitjárdalur
Hvernig leggst Liðakeppnin 2010 í þig? Vel vonandi að við fáum einhverja keppni í ár.
Er liðið komið með slagorð? Hobb, hobb ekkert snobb!
Á eitthvað annað lið séns í þitt lið í vetur? Það á ég ekki von á.
Er búið að kaupa einhverja nýja knapa? Við höfum aldrei keypt neina knapa, færri komast að en vilja, keyrum liðið áfram á heiðarleika, metnaði og fagmennsku.
Ertu búinn að jafna þig eftir höfuðhöggið? Hvaða höfuðhögg?
Er eitthvað snobb í þínu liði? Sjá spurningu 2
Verða fleiri aðkomumenn en heimamenn í þínu liði? NEI
Heldur þú að Logi fái stig í ár? (hver man ekki eftir Liðakeppnislaginu og hvernig þetta fór í fyrra) Flest allir liðsmenn mínir fengu stig í fyrra, flestir fleiri en sá sem samdi þennan texta.
Nú er stigahæsti liðsmaður Austur-Húnvetninga frá því í fyrra fluttur til Noregs, teljið þið að þeir séu með einhver önnur tromp á hendi? Já skytturnar þrjár bræðurnar frá Brekku Hauk, Jósef og Hrein.
Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri? Hvers konar snobb spurning er þetta manneskja, talaru ekki íslensku. Hvað er pepp? er það eitthvað sælgæti. Fáðu þér svo appelsínugula úlpu og rautt eyrnaband og hættu þessari vitleysu...

Ragnar Stefánsson liðsstjóri liðs 4 - Austur-Húnavatnssýsla
Hvernig leggst Liðakeppnin 2010 í þig? Vel, verður spennandi að sjá alla útlendingahersveitina mæta.
Er liðið komið með slagorð? Nei ég get nú ekki sagt það, en það verður búið að finna upp á einhverju slagorði þegar við mætum.
Á eitthvað annað lið séns í þitt lið í vetur? 3 lið
Er búið að kaupa einhverja nýja knapa? Vil nú ekkert segja á þessu stigi málsins en það verður mikið í það lagt að fá erlenda knapa td Jóa Skúla, Stian Petersen og Lena Trappe svo dæmi séu tekin. Samningaviðræður í gangi.
Helduru að Gunnar sé búin að jafna sig eftir höfuðhöggið? Ég tel svo ekki vera.
Er eitthvað snobb í þínu liði? Það eru nokkrar snobbhænur
Verða fleiri aðkomumenn en heimamenn í þínu liði? Hvað eru aðkomumenn og hvað eru heimamenn?????
Heldur þú að Logi fái stig í ár? (hver man ekki eftir Liðakeppnislaginu og hvernig þetta fór í fyrra) Eitt eða tvö
Nú er stigahæsti liðsmaður Austur-Húnvetninga frá því í fyrra fluttur til Noregs, ertu með einhver önnur tromp á hendi? Við teflum fram Rúnari í Kjalfell
Skrifað 30.01.2010
__________________________________________
Folöldin janúar 2010
Eydís skrapp og tók nokkar myndir af folöldunum í dag enda veðrið mjög fallegt. Hér má sjá nokkrar myndir af þeim.


Á myndinni t.v má sjá hryssu u. Akk og Trú, þá er jarpskjótt u. Tign og Álfi, Ári u. Sál og Álfi og Villimey u. Vakningu og Álfi. Á myndinni hægra megin eru Villimey og Akksdóttirin aftur.


Á myndinni t.v er Tignardóttirin, Áróra u. Glætu og Álfi, hryssa u. Grásíðu og Álfi. Á myndinni til hægri er rauðblesótt hryssa u. Kotru og Gretti og hryssa u. Kóreu og Gretti

___________________________________________
Skrifað 13.01.2010
Þrettándagleði Þyts

Þrettándagleðin var haldin í gær 06.01 og var fín skemmtun. Álfakóngur, álfadrottning og hirðmeyjar leiddu gönguna, fram hjá sjúkrahúsinu þar sem nokkur lög voru sungin. Síðan var farið upp að reiðhöllinni, þar söng og spilaði Mundi fyrir gesti, teymt var undir krökkunum og hægt var að kaupa vöfflur með rjóma og kakó. Með í för voru líka bráðskemmtilegir jólasveinar, Grýla, Leppalúði og fullt af álfum.
Myndir komnar inn á heimasíðu Þyts.
Skrifað 07.01.2010
____________________________________
Tamningar.
Núna er búið að fylla hesthúsið, allt eru þetta ung hross flest fædd 2004-5 og 6. Við byrjuðum á því að taka inn 15 ótamin hross um miðjan nóvember, 8 hryssur og 7 geldinga. Og við Gréta á Efri- Fitjum tókum þau reglulega í mánuð, það gekk mjög vel, eftir mánuðin eru þau öll orðin reiðfær inni og búið að járna þau flest. Þessi ungu hross eru undan Gretti frá Grafarkoti, 'Alfi frá Selfossi, Gammi frá Steinnesi, Órator frá Grafarkoti Gígjari frá Auðsholtshjáleigu, Parker frá Sólheimum, Hágangi frá Narfastöðum, Krumma frá Blesastöðum, Tvinna frá Grafarkoti, og hrossin fædd 2004 eru undan Kletti frá Hvammi og Dyn frá Hvammi. Við erum núna að byrja á fyrstu hrossunum undan Gretti 3 hryssum á 4.v og einn gelding á 5.v okkur lýst vel á, tryppin eru þæg en næm og fara um á rúmu brokki án þess að vera klárgeng. Núna undanfarið hafa hrossin fengið hálfgert jólafrí þar sem ég hafði það af að meiða mig á hendi, en strax eftir áramótin mæta hér tvær galvaskar dömur til að hjálpa mér við tamningu og þjálfun þær Stella Guðrún frá Sauðá og frá svíaríki mætir Cosma Gill svo þá fer allt á fullt aftur :)
Grafarkot ræktunarbú ársins 2009

Grafarkot var valið ræktunarbú ársins 2009. 13 hross sýnd, meðaleinkunn 7.91 og 5 hross í fyrstu verðlaun.
Viðurkenningar kynbótahrossa: Þessum viðurkenningum má skipta í þrennt, í fyrsta lagi fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin í hverjum aldurshópi. Í öðru lagi fyrir hæst dæmdu hryssuna og hæst dæmda stóðhestinn óháð aldri. Og í þriðja lagi hrossaræktarbú ársins í Húnaþingi vestra. Þau hross sem fá viðurkenningu þurfa að vera í eigu félagsmanna. Við val á hrossaræktarbúi ársins eru talin saman öll hross fædd á viðkomandi búi - sem til dóms hafa komið á árinu - og þeim gefin stig eftir árangri þeirra og aldri við dóm.
4. vetra hryssur:
1. sæti: Kara frá Grafarkoti
Bygg: 8,33 Hæfil. 7,80. Aðaleink. 8,01
Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
2. sæti: Bylting frá Bessastöðum
Bygg: 7,98 Hæfil: 7,85 Aðaleink: 7,91
Eigandi og sýnandi: Jóhann B Magnússon
3. sæti: Eik frá Grund
Bygg . 7,98 Hæfil: 7,49 Aðaleink: 7,69
Eigendur: Þórir Ísólfsson og Ísólfur Líndal Þórisson
Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson
5. vetra hryssur:
1. sæti: Brimkló frá Efri-Fitjum
Bygg: 8,07 Hæfil 8,23 Aðaleink. 8,17
Eigendur: Gunnar Þorgeirsson og Gréta B Karlsdóttir
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
2. sæti: Fregn frá Vatnshömrum
Bygg: 7,94 Hæfil. 8,17 Aðaleink. 8,08
Eigandi og sýnandi: Jóhann B Magnússon
3. sæti: Hrönn frá Leysingjastöðum
Bygg: 7,91 Hæfil: 8,06 Aðaleink: 8,0
Eigendur: Ísólfur L Þórisson og Vigdís Gunnarsdóttir
Sýnandi: Ísólfur L Þórisson
6. vetra hryssur:
1. sæti: Líf frá Syðri Völlum Bygg: 8,14 Hæfileik: 8,29 Aðaleinkunn 8,23
Eigendur Reynir Aðalsteinsson og Lars Anderson
2. sæti: Skinna frá Grafarkoti Bygg: 7,99 Hæfil: 8,03 Aðaleink: 8,02
Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
Sýnandi: Herdís Einarsdóttir
3. sæti: Dröfn frá Síðu
Bygg: 7,61 Hæfil: 8,28 Aðaleink: 8,01
Eigandi: Jón Júlíusson
Sýnandi: Guðröður Ágústsson
Líf frá Syðri Völlum er jafnframt hæst dæmda hryssan á félagssvæðinu.
7. vetra hryssu og eldri:
1. sæti: Snælda frá Bjargshóli
Bygg: 7,94 Hæfil: 8,33 Aðaleink: 8,18
Eigandi: Eggert Pálsson
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson
2. sæti: Dís frá Stóru Ásgeirsá
Bygg: 8,08 Hæfil: 8,12 Aðaleink: 8,14
Eigandi: Ingolf Nordal
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
3. sæti: Þruma frá Stóru Ásgeirsá
Bygg: 7,90 Hæfil: 8,10 Aðaleink: 8,02
Eigandi: Ingolf Nordal
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Enginn 4. vetra stóðhestur í eigu félagsmanna var sýndur á árinu.
5. vetra stóðhestar:
1. sæti: Kufl frá Grafarkoti
Bygg 7,98 Hæfil. 7,89 Aðaleink. 7,93
Eigendur: Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
2. sæti Kaleikur frá Grafarkoti
Bygg 8,02, Hæfil. 7,72 Aðaleink. 7,84
Eigendur Indriði Karlsson og Herdís Einarsdóttir
Sýnandi: Elvar Logi Friðriksson
6. vetra stóðhestar
1. sæti: Ræll frá Gauksmýri
Bygg: 7,93 Hæfil: 8,50 Aðaleink: 8,27
Eigendur: Jóhann Albertsson og Sigríður Lárusdóttir
Sýnandi: Tryggvi Björnsson
7. vetra og eldri stóðhestar:
1. sæti: Kraftur frá Efri-Þverá
Bygg; 8,22 Hæfil. 8,36 Aðaleink. 8,31
Eigandi: Sigurður Halldórsson
Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson
2. sæti: Grettir frá Grafarkoti
Bygg: 8,18 Hæfil. 8,26 Aðaleink. 8,23
Eigandi og sýnandi: Herdís Einarsdóttir
3. sæti: Sikill frá Sigmundarstöðum
Bygg: 8,04 Hæfil. 8,34 Aðaleink. 8,22
Eigendur: Gunnar Reynisson og Soffía Reynisdóttir
Sýnandi: Reynir Aðalsteinsson
Skrifað 09.11.2009
________________________________________
Sláturgerð


Hedda og Kolla réðust í sláturgerð um daginn og fengu góðan aðstoðarmann með sér í lið. Ákváðum að setja nokkrar skemmtilegar myndir inn af gaurnum okkar, honum Indriða Rökkva.
Skrifað 23.10.2009
_________________________________________
Framkvæmdir.

Nú er allt á fullu í endursmíðun fjárhúsa, þannig er að votheyshlaðan hér hefur undanfarin ár verið notuð til helminga sem fjárhús á móti ungfolahúsi. Nú var sú ákvörðun tekin í sumar að færa folana níður í hesthús og nota alla hlöðuna undir féð enda er mikil fjölgun "fjárhausa,, þetta árið. Fjárhúsin eru sem sé komin á efri hæðina á hlöðunni gólfið kemur á milliveggin, og þar verður pláss fyrir 320-40 kindur. Gefið verður í gjafagrindur og gólfið klætt með plastrimlum og timbri. Steypt hefur verið í öll göt á neðri hæðinni svo hægt verður að taka skítinn út með haugdælu.
'I dag 20 okt, er staðan þannig að búið er að steypa alla steypu,búið að saga fyrir nýju dyragati og mynd er að komast á gólfið þannig að allt er þetta nú á góðu róli, veðrið er gott ennþá þannig að vel fer um féð úti. Búið er að kaupa 65 lömb frá Heydalsá bæjunum og 20 koma frá Hafrafellstungu þannig að gemlingar verða milli 150-60 á fóðrum í vetur, rétt rúmlega hundrað kindur voru til fyrir þannig að fjölgunin er veruleg. En aftur á móti verður vinnan ólíkt léttari við fóðrun og þrif húsana. Stefni að setja inn fleiri myndir fljótlega...
Stóðréttir 2009
Viðidalstungurétt var laugardaginn 3.Okt veðrið hefði mátt vera betra en slapp þó alveg til, margt manna var í réttinni og gaman að sjá hrossin eins og venjulega. Hrossauppboð var haldið og svo var dregið í happadrætti kvenfélagskvenna og haldiði ekki að folaldið hafi komið á miða sem Grafarkotsbúið átti. Vinningurinn var ljósaskjóttur foli frá Stórhól undan fola undan Álfasteini frá Selfossi og móðirin er undan Stormi frá Stórhól.

Hér má sjá fullt af myndum úr réttinni....
Skrifað 05.10.2009
____________________________________
Brúkunar og smalahestar !
Við Flakkari óvanalega hrein og fín ;)
Einhvern veginn finnst mér að öll hross sem eru tamin og eiga að vera til hér á bæ verði að hafa einhvert hlutverk. Svo núna seinni partinn í sumar áttum við allt í einu ekki orðið nema 4 fullorðna alvöru brúkunarhesta, hesta sem aldrei hafa verið gefnir falir, elstur er Flakkari grár sonarsonur Sörla frá Sauðárkróki 22v frábær smalahestur vitur og kann sko að "lesa landið" , svo er Kapall 15v.undan Klassík Otursdóttur og Kolfinni Kjarnholtum flugvakur, stór og mikill hestur óragur með öllu, . Háleggur 14v undan Óm frá Grafarkoti og Perlu frá S-Ásgeirsá er frábærlega traustur hestur og svo höfum við til umráða líka hann Kardinála (sem Eydís á )15v hörkuviljugur og duglegur hestur. Smalamennskurnar okkar Indriða hafa farið fram að mestu leyti á þessum hestum undanfarin ár og ég hef oft hugsað að það sé eins gott að ekkert komi fyrir þá um háannatímann, en svo gerðist það í einni smalamennskunni í haust að Kapall sneri sig á framfæti og var úr leik í bili og gangnastjórinn stóð frammi fyrir því að vera með Flakkara einan í göngum sem gekk nú ekki, svo nú varð bara að taka sénsinn og taka með óreyndan hest, fyrir valinu varð hann Kvikur hann er annar af tveimur tömdum geldingum sem eru til hér og voru svona í biðstöðu hvað ætti að gera við. Kvikur hefur oft gengið undir nafninu Gamli-Rauður þó hann sé aðeins 7v gamall, mjög viljugur, þægur, en frekar gangsamur hestur, hann er undan Nið Klassíkarson og Safírs. Kvikur hefur verið mjög sérstakur í uppeldinu alltaf að gera eitthvað af sér, enginn gæðingur en reyndist svo frábær fjallahestur þegar að til kom, svo nú er hann kominn með hlutverk, (vegna helti Kapals) og verður líklega bara hafður áfram hér í Grafarkoti sem brúkunar og smalahestur. Hinn hestinn hann Freyði Eiðson 7v lánaði ég Fanney á Víðidalstunguheiðina og þar stóð hann sig með prýði líka svo kannski erum við hér með komin með tvo nýja brúkunarhesta og allir tamdir hestar hér á bæ komnir með hlutverk :)) skrifað 18 sept 2009
Vigtað 13. sept
Göngur í Vatnsnesfjalli fóru fram laugardaginn 12 sept í góðu veðri, Grafarkot setti 6 menn í göngur eins og undanfarin ár og gekk þetta allt saman ljómandi vel, við keyrðum hestana okkar upp í Helguhvamm kvöldið áður, en þaðan er lagt af stað á fjallið, húsfrúin er í ábyrgðar hlutverki þennan dag en hún er gangnaforingi miðfjalls og gengur oft undir nafninu "Heródes konungur,, kallagreyjunum líður eitthvað betur með það :)). þetta haustið fóru Indriði Raggi Gundi Dóri Fúsa og Hjalti í Koníaksgöngurnar Dóri fór þetta nú í fyrsta skipti og var innvígður í alla leyndardómana sem fylgja þessari leið :) Óvanalega margt fé kom til réttar miðað við undanfarin ár, og t.d var svo mikið að gera hjá Göngufélaginu að þeir höfðu varla tíma til að dreypa á veigunum og komu bara rétt mildir til réttar. Við sem leitum vestan megin á fjallinu réttum okkar fé í Hamarsrétt. Grafarkotsbúið fékk einar 70 kindur þar, aldrei fengið svo margt áður.
Á sunnudag voru svo lömbin vigtuð, og vigtaðist bara vel settum líka 60 lömb í sláturhús og var meðalvigtin tæp 19.7 og fitan aðeins 5,74 og gerðin 9,86 fjárbændurnir ekki alveg nógu ánægðir með það, settum inn nokkrar myndir á myndasafnið. Sjá hér
Skrifað 14.09.2009
___________________________________
Líður að hausti

Jæja þá eru haustlitirnir á næsta leiti vonandi fáum við þurrt og fallegt haust. Öll mót og kynbótasýningar að baki þetta árið, og við erum bara nokkuð sátt við árangurinn. Hrossasala hefur verið góð það sem af er ári og nú fara yngri hrossin í smá hvíld áður en vetrarstarfið hefst. Þessi tími ársins er þó alltaf mjög skemmtilegur því nú fara að skella á smalamennskur svo nú er að gera eldri hestana klára fyrir átök haustsins, ég tel að smalamennskur séu nauðsynlegur þáttur í lífinu og tilverunni því þar geta hinir spökustu menn umbreyst í hálfgerða geðofsa menn, ( þar að segja ef illa gengur.) þar sem allir aðrir eru að gera vitleysurnar held að þetta sé sniðugt rannsóknarefni :) Allavega geta smalamennskur verið góð leið til að veita allri innbyrgðri reiði útrás :) :) Því þetta tekur fljótt af og eru allir eru orðnir kátir og glaðir þegar féð er komið til réttar.
Hér stendur til að gera nýja aðstöðu fyrir féð í haust nota flatgryfjuna uppfrá áfram, en rífa það sem fyrir er og gera aðstöðuna þannig að gefnar verða heilar rúllur í gjafagrindur það verður mikill munur á vinnu, og eitthvað á nú að fjölga :) Ungu stóðhestarnir verða nú færðir niður í hesthús svo öll hross sem verða inni verða nú á sama stað. Og auðvitað er margt af spennandi unghryssum og hestum að komast á tamningaaldur en meira um það seinna...
skrifað 28 ágúst 2009
__________________________________________
Úrslit íþróttamót Þyts
Opna íþróttamót Þyts var haldið dagana 8-9. ágúst á Kirkjuhvammsvelli. Mótið gekk vel. Hedda keppti á Skinnu í fimmgangi og gæðingaskeiði, Kapli í 100m skeiði og lánaði Fanney hann í gæðingaskeið. Síðan keppti hún líka á Kóða í tölti. Þetta gekk allt saman nokkuð vel. Kóði endaði níundi í tölti, Skinna varð þriðja til fjórða í gæðingaskeiði og sjötta í fimmgangi. Fanney varð í sjötta til sjöunda sæti í gæðingaskeiði á Kapli og Hedda var sjötta í 100 metrunum á honum. Kapall stendur sig alltaf vel!! Mótið var vel sótt, það voru ca. 130 skráningar sem hafa líklega aldrei verið svona margar. Veðrið frekar gott, ringdi reyndar seinnipartinn báða dagana en það var mjög hlýtt.
Úrslit mótsins:
1. flokkur tölt:
1. Jakob Svarvar Sigurðsson og Gígur frá Hítarnesi 7,27/8,11
2. Jón Gísli Þorkelsson og Vökull frá Kópavogi 7,00/7,56
3. Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmunarstöðum 6,77/7,50
4. Kolbrún Grétarsdóttir og Snilld frá Hellnafelli 6,80/7,00
5. Ísólfur Líndal og Ögri frá Hólum 6,87/6,83
6. Guðmundur M. Skúlason og Fannar frá Hallkelsstaðahlíð6,10/6,39 (upp úr b)
b-úrslit:
7. Pálmi Geir Ríkharðsson og Heimir frá Sigmundarstöðum 6,23/6,33
8. Gréta B. Karlsdóttir og Birta frá Efri-Fitjum 6,43/6,28
9. Herdís Einarsóttir og Kóði frá Grafarkoti 6,17/6,17
10. Guðmundur Þór Elíasson og Fáni frá Lækjardal 6,43/00(mætti ekki)
2.flokkur tölt:
1. Snorri Rafn Snorrason og Victor frá Hafnafirði 6,13/6,28
2. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík 5,97/6,11
3. Margrét Guðrúnardóttir og Fífa frá Steinum 5,97/6,06
4. Eydís Ósk Indriðaóttir og Kardináli frá Grafarkoti 5,67/5,83
5. Ragnar Smári Helgason og Blær frá Hvoli 5,70/5,61
Ungmenni tölt:
1. Þórdís Jensdóttir og Gramur frá Gunnarsholti 6,63/7,50
2. Egill Þórir Bjarnason og Sýn frá Gauksstöðum 6,10/6,72
3. Óskar Sæberg og Glanni frá Múlakoti 6,30/6,67
4. Margrét Ríkharðsdóttir og Stilkur frá Höfðabakka 5,67/6,22
5. Ninni Kulberg og Sóldögg frá Efri-Fitjum 6,03/6,11
Unglingar tölt:
1. Jónína Lilja Pálmadóttir og Árdís frá Steinnesi 6,07/6,78
2. Hanna Rún Ingibersdóttir og Ísak frá Ytri-Bægisá II 5,83/6,67
3. Heiðar Árni Baldursson og Breki frá Brúarreykjum 6,37/6,67
4. Karítas Guðrúnardóttir og Álfur frá Akureyri 5,73/6,11
5. Katarína Ingimarsdóttir og Johnny frá Hala 5,77/5,89
Börn tölt:
1. Aron Orri Tryggvason og Smiður frá Hólum 5,20/6,06
2. Kristófer Smári Gunnarsson Kofri frá Efri-Þverá 4,57/5,61
3. Atli Steinar Ingason og Spói frá Þorkelshóli 4,57/5,44
4. Karítas Aradóttir og Kremi frá Galtanesi 4,83/5,28
5. Lilja Karen Kjartansdóttir og Fía frá Hólabaki 4,63/4,72
T2 slaktaumatölt:
1. Reynir Aðalsteinsson og Oliver frá Sigmundarstöðum 5,93/6,92
2. Ísólfur Líndal Þórisson og Kylja frá Hólum 5,90/6,50
3. Pálmi Geir Ríkharðsson og Björgúlfur frá Syðri-Völlum 5,90/6,17
4. Helga Rós Níelsdóttir og Skjóni frá Fremri-Fitjum 5,23/6,17
5. Tryggvi Björnsson og Hörður frá Varmalæk 5,23/5,96
1. flokkur 5-gangur:
1. Jakob Svavar Sigurðsson og Vörður frá Árbæ 6,87/7,29
2. Reynir Aðalsteinsson og Kveikur frá Sigmundarstöðum 6,50/6,71
3. Bjarni Jónasson og Styrnir frá N-Vindheimum 6,30/6,76
4. Ísólfur Líndal Þórisson og Kylja frá Hólum 6,20/6,83
5. Jóhanna Heiða Friðriksdóttir og Húni frá S-Ásgeirsá 5,90/6,57 (upp úr b)
6. Herdís Einarsdóttir og Skinna frá Grafarkoti 6,23/6,40
b-úrslit
7. Pálmi Geir Ríkharðsson og Heimir frá Sigmundarst. 5,97/6,33
8. Jóhann B. Magnússon og Maístjarna frá Þóreyjarnúpi 6,00/6,17
9. Kolbrún Grétarsdóttir og Ívar frá Miðengi5,90/6,12
10. Aðalsteinn Reynisson og Gautur frá Sigmunarstöðum 6,07/5,74
1. flokkur 4-gangur:
a-úrslit:
1. Ísólfur Líndal og Ögri frá Hólum 6,67/7,20
2. Bjarni Jónasson og Vaðall frá Njarðvík 6,33/6,97
3. Jón Gísli Þorkelsson og Vökull frá Kópavogi 6,40/6,90
4.-5. Line Nörgaard og Hrappur frá Efri-Fitjum 5,97/6,73 (kom upp úr b-úrslitum)
4.-5.Jakob Víðir Kristjánsson og Börkur frá Brekkukoti 6,37/6,73
6. Kolbrún Grétarsdóttir og Snilld frá Hellnafelli 6,60/6,60
b-úrslit:
7. Helga Thoroddsen og Fylkir frá Þingeyrum 6,17/6,43
8. Guðmundur Þór Elíasson og Fáni frá Lækjardal 5,73/6,37
9. Reynir Aðalsteinsson og Oliver frá Syðri-Völlum 6,30/6,10
10. Elvar Logi Friðriksson og Flygill frá Bæ I 5,73/6,03
11. Gréta B. Karlsdóttir og Birta frá Efri-Fitjum 6,20/5,87
2. flokkur 4-gangur:
1. Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík 5,83/6,43
2. Cristine Mai og Ölur frá Þingeyrum 5,83/6,17
3. Bryndís Snorradóttir og Hrafn frá N-Svertingsstöðum 5,70/6,07
4. Ragnar Smári Helgason og Blær frá Hvoli 5,83/5,90
5. Alda Björnsdóttir og Skuggi frá Sauðadalsá 5,30/5,57
Ungmenni 4-gangur
1. Þórdís Jensdóttir og Gramur frá Gunnarsholti 6,37/7,20
2. Helga Una Björnsdóttir og Hljómur frá Höfðabakka 6,50/6,73
3. Óskar Sæberg og Glanni frá Múlakoti 6,17/6,67
4. Gerður Rósa Sigurðardóttir og Róni frá Kolugili 5,67/5,97
5. Ninni Kulberg og Sóldögg frá Efri-Fitjum 5,70/5,67
Unglingar 4-gangur:
1. Ásta Björnsdóttir og Glaumur frá Vindási 6,33/6,87
2. Jónína Lilja Pálmadóttir og Svipur frá Sigmundarst. 4,90/6,40
3. Hanna Rún Ingibersdóttir og Ísak frá Ytri-Bægissá II 5,83/6,27
4. Fríða Marý Halldórsdóttir og Sómi frá Böðvarshólum 4,90/6,07
5. Theódóra Dröfn Skarphéðinsdóttir og Spyrna frá S-Reykjum 4,97/5,57
6. Heiðar Árni Baldursson og Breki frá Brúarreykjum 6,03/5,27
Börn 4-gangur:
1. Kristófer Smári Gunnarsson og Orka frá Höfðabakka 5,07/6,03
2. Súsanna Katarína Guðmundsdóttir og Sprettur frá Múla 4,63/5,23
3. Lilja Karen Kjartansdóttir og Fía frá Hólabaki 4,23/4,83
4. Rakel Eir Ingimarsdóttir og Náttfari frá Flugumýri (lauk ekki keppni)
5. Atli Steinar Ingason og Spói frá Þorkelshóli gerði ógilt fékk að ríða úrslit 5,93
100m skeið
1. Tryggvi Björnsson og Hörður frá Reykjavík 7,56
2. Svavar Örn Hreiðarsson og Stígur frá Efri-Þverá 7,87
3. Jakob Svavar Sigurðsson og Felling frá Hákoti 7,99
4. Tryggvi Björnsson og Funi frá Hofi 8,01
5. Jóhann B. Magnússon og Hvirfill frá Bessastöðum 8,30
6. Herdís Einarsdóttir og Kapall frá Grafarkoti 8,60
7. Guðmundur M. Skúlason og Dregill 9,74
Gæðingaskeið:
1. Tyggvi Björnsson og Funi frá Hofi
2. Reynir Aðalsteinsson og Kveikur frá Sigmundarstöðum
3.-4. Herdís Einarsdóttir og Skinna frá Grafarkoti
3.-4. Svavar Örn Hreiðarsson og Myrkvi frá Hverhólum
5. Ísólfur Líndal Þórisson og Kylja frá Hólum
6-7. Fanney Dögg Indriðadóttir og Kapall frá Grafarkoti
6.-7. Jóhanna Heiða Friðriksdóttir og Húni frá Stóru-Ásgeirsá
Samanlagðir fjórgangssigurvegarar:
1.flokkur - Ísólfur Líndal og Ögri frá Hólum
2. flokkur - Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Þróttur frá Húsavík
Ungmenni - Þórdís Jensdóttir og Gramur frá Gunnarsholti
Unglingar - Heiðar Árni Baldursson og Breki frá Brúarreykjum
Börn - Kristófer Smári Gunnarsson og Kofri frá Efri-Þverá
Fimmgangssigurvegari 1. flokk:
Reynir Aðalsteinsson
Glæsilegasta par mótsins - Þórdís Jensdóttir og Gramur frá Gunnarsholti
__________________________________________